Fréttablaðið - 22.11.2019, Blaðsíða 22
Rithöfundar koma
gagngert í Hörpu
til að spjalla við lesendur
sína og þykir vænt um að
lesendur nálgist þá.
Skáldsögurnar sem hér er vitnað í eru: Aðferðir til að lifa af eftir
Guðrúnu Evu Mínervudóttur,
Delluferðin eftir Sigrúnu Pálsdótt-
ur, Helköld sól eftir Lilju Sigurðar-
dóttur, Hvítidauði eftir Ragnar
Jónasson, Innflytjandinn eftir Ólaf
Jóhann Ólafsson, Korngult hár grá
augu eftir Sjón, Tregasteinn eftir
Arnald Indriðason og Þögn eftir
Yrsu Sigurðardóttur.
1Sturtan var mun heitari en Númi átti að venjast. Hann forðaðist öfgar. Hann var
ekki hrifinn af mjög sterkum mat,
sjósundi, háværri tónlist, crossfit,
neon-litum, tekílaskotum eða
neinu sem gekk skrefinu lengra en
nauðsynlegt var. Drama þar með
talið. Hann þoldi ekki drama.
2Móða fellur á svala rúðuna þar sem kinn og munnur nema við glerið.
Þegar horft er á manninn frá
klefadyrunum rennur spegilmynd
hans saman við brautarstöðina;
dyrnar út á pallinn, klukkuna á
múrsteinsveggnum til hliðar
við þær og skyggnið sem veitir
ferðalöngum skjól fyrir heitri
ágústsólinni.
3Borðplatan var úr ljósum viði og virtist óskemmd þar til komið var alveg upp
að henni og horft á ská. Í harðri
birtunni sem barst inn um glugg-
ann sáust glærir glasahringir.
4Örvæntingarþögnin var rofin.Einhver var fyrir utan og bankaði, nokkuð harkalega,
hafði eflaust reynt að hringja
dyrabjöllunni nokkra stund en
bjallan var biluð.
5Hann hagræddi sér á hvössu hraungrýtinu, náði jafnvægi og teygði sig í höndina sem
stóð út úr ferðatöskunni.
6Og þarna stóð unga konan við stofugluggann og horfði út í kvöldmyrkrið. Hún reykti
sígarettu og blés reyknum mak-
indalega frá sér og útlínur hennar
voru greinilegar í daufri skímunni
sem barst innan úr íbúðinni.
7Febrúarlægð. Bálviðri. Götur auðar á meðan vindurinn æðir með snjóinn um borg-
ina og þrífur með sér allt sem laus-
legt er, skekur nakin tré í görðum,
grípur pappakassa og öskutunnur,
barnavagn sem gleymst hefur
að koma í skjól, auglýsingaskilti
við veitingastaðinn handan við
torgið, skó sem skilinn hefur verið
eftir á berangri, af hægra fæti,
svartan, með lágum hæl.
8Hljóðið barst neðan úr stofunni. Skringilegt manna-mál. Eitt augnablik var ég viss
um að mig væri að dreyma, því ég
skildi ekki orð af því sem sagt var.
Svör á blaðsíðu 14
Örvæntingarþögnin var rofin
Fyrstu setningar
í skáldsögu eiga
að kveikja áhuga
lesandans. Hér
eru sýnishorn af
fyrstu setningum
í nokkrum skáld-
sögum íslenskra
höfunda fyrir
þessi jól. Svo er
að geta upp á því
rétta!
6 KYNNINGARBLAÐ 2 2 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RBÓKAMESSA
Reykjavík varð Bókmennta-borg Unesco árið 2011, sú fyrsta í heiminum sem ekki
var enskumælandi. Þá voru aðeins
fimm borgir heimsins bókmennta-
borgir en í dag eru þær orðnar 39
um allan heim,“ útskýrir Lára um
þann mikla heiður sem Reykjavík
var sýnd því færri borgir komast
að en vilja verða Bókmenntaborgir
Unesco.
„Sem Bókmenntaborg Unesco
gefur Reykjavík loforð um að
styðja við orðlist í borginni. Það
gerum við með margvíslegum
hætti og er Bókamessan stærsti
viðburður ársins en við gerum líka
margt f leira sem skilgreinir okkur
Reykvíkinga í gegnum orðlist, eins
og að rista orðlist í gangstéttar
borgarinnar og voru línur Vil-
borgar Dagbjartsdóttur úr ljóðinu
Vetur ristar á nýtt torg Stein-
bryggjunnar í miðbæ Reykjavíkur
í september,“ upplýsir Lára.
Höfundar vilja hitta lesendur
Á Bókamessunni er rithöfundum
landsins, útgefendum og lesendum
stefnt á einn og sama staðinn í
Hörpu.
„Þar fá lesendur tækifæri til að
hitta sína uppáhaldsrithöfunda í
návígi og börnin fá skemmtilega
og metnaðarfulla dagskrá við sitt
hæfi. Við verðum í þremur rýmum,
einu fyrir börnin og tveimur fyrir-
lestrarýmum sem verða full af
þéttri og heillandi dagskrá báða
messudagana,“ upplýsir Lára um
dagskrána sem byggist á upp-
lestrum, umræðum við höfunda
og töfrandi stemningu.
„Það þarf enginn að vera feim-
inn eða hikandi við að ganga upp
að sínum eftirlætisrithöfundi því
þeir koma gagngert í Hörpu til að
spjalla við lesendur sína og þykir
beinlínis vænt um að lesendur
nálgist þá. Rithöfundar eru eins og
aðrir, fólk sem þykir gott að vera í
góðum, mannlegum samskiptum
og Bókamessan býður upp á það,“
segir Lára og útilokar ekki að les-
endur geti haft veruleg áhrif á verk
höfunda sinna.
„Það er aldrei að vita nema hægt
verði að hafa bein áhrif á sögu-
þráðinn í næstu bók Arnaldar
eða Yrsu og í raun þyrftum við að
skrá niður þær mörgu frábæru
hugmyndir sem höfundar fá frá
gestum bókamessunnar. Les-
endum gefast líka fágætt tækifæri
til að koma hugmyndum sínum
á framfæri við útgefendur og má
alveg geta sér til að út hafa komið
bækur í kjölfar Bókamessunnar
því gestir hennar leggja til svo
margt skemmtilegt og gagnlegt og
það er það sem gerir Bókamessuna
svo sérstaka; þetta beina samband
á milli útgefenda, rithöfunda og
lesenda,“ segir Lára.
Frjó og kraftmikil ljóðskáld
Þeir sem eiga ekki heimangengt
á Bókamessuna geta fengið
smjörþefinn af henni í beinni
útsendingu á Rás 1 á laugardaginn
klukkan 15 og 16.
„Á Bókamessuna koma um flest-
ir sem gefa út bækur fyrir þessi jól.
Þeir hafa tekið þessa helgi frá og
vilja hvergi vera nema í Hörpu þar
sem margir af helstu höfundum
landsins lesa úr bókum sínum og
eiga í samskiptum við lesendur.
Söguþráður Bókamessunnar er svo
jafnan óvæntur og spennandi því
alltaf dúkka upp óvæntir höfundar
og víst að margar góðar og ósagðar
sögur verða sagðar,“ segir Lára, full
tilhlökkunar.
„Á sunnudag verður ljóðaupp-
lestur allan daginn og markar þá
miklu sprengingu sem hefur orðið
í ljóðabókaútgáfu en við höfum
aldrei verið með jafn marga höf-
unda að lesa upp ljóð. Ljóðið er
afar sterkt á Íslandi og við sjáum
ekki þessa aukningu á ljóðabókum
á mörgum stöðum í heiminum.
Frakkar til dæmis syrgja ljóðið
þar sem það hefur mikil dalað
en hér eru ung, frjó og kraftmikil
ljóðskáld sem næra okkur í haust-
myrkrinu og gæði íslenskra ljóða-
bóka hafa sjaldan verið eins mikil,“
segir Lára og hvetur sem flesta til
að koma í Hörpu um helgina.
„Bókamessan er staðurinn
til að kaupa jólabækur á góðu
verði og eiga stefnumóti við alla
höfundana sem vitaskuld árita
bækurnar. Stemningin er mannleg
og skemmtileg, allir eru jafnir og
enginn frægari en annar og allir til
í að rabba saman.“
Dagskrá Bókamessunnar er á
bokmenntaborgin.is, inni í Hörpu
og í Fréttablaðinu. Aðgangur er
ókeypis og allir hjartanlega vel-
komnir á frábæra dagskrá við allra
hæfi.
Enginn þarf að vera
feiminn við höfunda
Bókamessan er vettvangur til að hitta skemmtilegasta
fólk í heimi; það sem les bækur,“ segir Lára Aðalsteins-
dóttir, verkefnastjóri Reykjavík Bókmenntaborg Unesco.
Við munum fylla Flóa af bókum og bókafólki, skemmtilegasta fólki í heimi
á Bókamessunni, segir Lára Aðalsteinsdóttir í Flóanum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
2
2
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
4
B
-8
4
4
8
2
4
4
B
-8
3
0
C
2
4
4
B
-8
1
D
0
2
4
4
B
-8
0
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K