Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.11.2019, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 22.11.2019, Qupperneq 28
Bókamessan í Reykjavík hefur verið haldin síðan 2011 og er orðin ómissandi hluti af jólaundirbúningi margra lands- manna. Þar er ljúft að láta sig fljóta milli bása, reka nefið ofan í spennandi nýja bók, rekast jafnvel á höfundinn og spyrja viðkomandi spjörunum úr (innan velsæmis- marka auðvitað) og svo bjóða útgef- endur margir upp á eitthvað gott að narta í. Þá eru bækur að sjálfsögðu til sölu og hægt að fá áritað eintak ef heppnin er með. Bókamessur eru haldnar úti um allan heim og gríðarlega vinsælar, bæði hjá hagsmunaaðilum eins og útgefendum og höfundum en ekki síður hjá bókelskum almenningi. Alþjóðlegar bókamessur eru mikil- vægur staður til að mynda tengsl og kynna sér hvað er á döfinni. Þær eru á stundum einnig markaðstorg þar sem bókaútgefendur hvaðan- æva kynna bækur sínar og og stundum myndast jafnvel spenn- andi aðstæður þar sem fleiri en eitt forlag berjast um réttinn að bók sem áætlað er að gæti orðið vinsæl. Bókamessan í Frankfurt er stærsta bókamarkaðstorg heims, bæði hvað varðar fjölda bókaútgáfa sem eiga þar fulltrúa, fjölda gesta og mikilvægi fyrir alþjóðleg bóka- viðskipti. Hún er haldin um miðjan október og stendur í fimm daga. Messan hefst á miðvikudegi og eru fyrstu þrír dagarnir einvörðungu fyrir samskipti bókafólks hvaðan- æva úr heiminum. Þá skiptast útgefendur á titlum, höfundar eru kynntir fyrir umboðsmönnum og útgáfuréttur er keyptur og seldur í þúsundavís Um helgina kemur svo almenningur í hundruðum þúsunda og skoðar bækur og bása, útgefendur og höfunda. Íslendingar hafa verið drjúgir í þátttöku sinni á bókamessunni og margir íslenskir höfundar fundið sinn hljómgrunn á öðrum málsvæðum einmitt þar, vakið athygli útgefenda og umboðsmanna og bækur þeirra í kjölfarið komið út á öðrum og stærri mörkuðum, bæði höfund- unum sjálfum og ekki síður landi og þjóð til heilla. Hátíðin hefur valið eitt land eða málsvæði sem heiðursgest síðan árið 1976. Heiðursþátttakan felst í því að sérstök áhersla er lögð á bók- menntir viðkomandi málsvæðis með ýmsum hætti, til að mynda með upplestrum, listsýningum, pallborðsumræðum, leikhúsupp- færslum og sjónvarps– og útvarps- þáttum. Sérstakur sýningarsalur er settur upp þar sem stærstu útgáfu- fyrirtæki landsins eiga fulltrúa og rithöfundar viðkomandi mál- svæðis fá sérstaka athygli. Halldór Guðmundsson kom fyrst á bókamessuna í Frankfurt árið 1985 og hefur síðan sótt hana reglu- lega, sem útgáfustjóri, rithöfundur og áhugamaður um bókmenntir. Hann stýrði heiðursþátttöku Íslendinga þar árið 2011 og Norð- manna nú í október 2019. „Bóka- messan í Frankfurt hefur sennilega verið til allt frá tímum Gutenbergs,“ segir Halldór sem starfaði lengi sem útgáfustjóri Máls og menningar og seinna Eddu útgáfu og hefur því sótt hátíðina í ýmsum hlutverkum. „Hún var endurreist eftir seinni heimsstyrjöld og varð fljótlega mikilvægasta bókamessa heims á sviði réttindasölu, en það eru meðal annars kaup og sala á þýð- ingarrétti.“ Hann segir að Íslend- ingar hafi snemma farið að taka þátt í sýningunni, til dæmis hafi bæði Mál og menning og Almenna bókafélagið sent fulltrúa þangað á sjöunda áratugnum, meðal annars til að selja bók um Surtsey, en gosið þar hafði þá komið Íslendingum í heimsfréttirnar. „Síðar settu íslensk forlög upp bása á sýningunni til að koma bókmenntum sínum á fram- færi og bættust þar með í hóp sjö þúsund sýnenda frá meira en eitt hundrað þjóðum, sem að jafnaði sýna í Frankfurt,“ segir Halldór, sem árið 2008 var ráðinn verk- efnisstjóri verkefnisins Sögueyjan Ísland þegar Ísland var heiðurs- gestur bókamessunnar 2011. Verkefnið var stórt og tók þrjú ár í undirbúningi enda voru þegar upp var staðið um 200 íslenskir titlar gefnir út á þýsku það ár auk þess sem á þriðja hundrað viðburða fóru fram til kynningar á íslenskri menningu í Þýskalandi, Austurríki og Sviss í tengslum við Bókamess- una auk þess sem Sögueyjan blés til yfirgripsmikillar menningar- dagskrár í öllum helstu söfnum Frankfurtborgar þar sem íslensk myndlist, dans, tónlist, byggingar- list, hönnun og ljósmyndir voru í aðalhlutverki. Það má því með sanni segja að Íslendingar hafi nýtt tækifærið vel en þeir voru fyrstir Norður- landaþjóða til að fá boð um að vera heiðursgestir bókamessunnar. „Íslenskir útgefendur hafa æ síðan sameinast um bás á sýningunni, þótt auðvitað sé misjafnt hvað menn hafa sig þarna mikið í frammi; sumir selja, aðrir kaupa,“ segir Halldór og bætir við: „Messan reynir sjálf að skilgreina réttinda- sölu mun víðar en áður, og horfir æ meir til rafbóka, hljóðbóka, kvikmynda og sjónvarps: vettvang- urinn þar sem hægt er að koma góðum sögum á framfæri fer nefni- lega stækkandi, ekki minnkandi. Þess vegna held ég að messan muni áfram vera íslenskum útgefendum og höfundum mikilvæg.“ Messað síðan á tímum Gutenbergs Bókamessur eru víðar en í Reykjavík. Bókamessan í Frankfurt er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum. Halldór Guðmundsson var þar þegar Ísland var heiðursgestur á hátíðinnni 2011. Á bókamessum gefst einstakt tækifæri fyrir les- endur til að ræða við höfunda og jafnvel fá áritun. Halldór Guð- mundsson á bókamessunni í Frankfurt í síð- asta mánuði þar sem hann stýrði heiðursþátttöku Norðmanna. Brynhildur Björnsdóttir brynhildur@frettabladid.is Það má því með sanni segja að Íslendingar hafi nýtt tækifærið vel en þeir voru fyrstir Norður- landaþjóða til að fá boð um að vera heiðursgestir bókamessunnar. 12 KYNNINGARBLAÐ 2 2 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RBÓKAMESSA 2 2 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :2 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 4 B -8 9 3 8 2 4 4 B -8 7 F C 2 4 4 B -8 6 C 0 2 4 4 B -8 5 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 2 1 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.