Fréttablaðið - 22.11.2019, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
stod2.is 1817
Tryggðu þér áskrift
HEFST 29. NÓV
Bræðurnir Egill og Bjarki Viðarssy nir my nda hljómsveitina Andy Svarthol. Nafnið á vel við þar sem hljóm-sveitin varð til í stúdíói
í kjallara, eða dýf lissunni eins og
meðlimirnir tveir kalla hana. Nú
í apríl á þessu ári kom út þeirra
fyrsta breiðskífa, Mörur, á netið en
hún kemur út á vínyl í dag. Í tilefni
útgáfunnar heldur hljómsveitin
tónleika í kvöld á skemmtistaðnum
Hressó í Austurstræti.
Spila sjaldan
Sagan um tilurð sveitarinnar byrjar
heldur bratt.
„Ég dró Bjarka niður í dýflissuna
mína. Eða sko, ég er með stúdíó í
kjallaranum mínum,“ segir Egill.
„Hann er stóri bróðir minn þann-
ig að hann komst upp með það,“
segir Bjarki, og bræðurnir hlæja.
„Mig langaði bara til að gera eitt-
hvað skemmtilegt með litla bróður
mínum. Við byrjuðum á að gefa út
eitt lag og því var mjög vel tekið, en
við gerum allt sjálfir; spilum á allt,
tökum upp og syngjum. Svo vorum
við fengnir til að spila á KEXP tón-
leikum um það leyti sem lagið kom
út. Það voru fyrstu tónleikarnir
hans Bjarka, hann varð fyrir hálf-
gerðu áfalli,“ segir Egill.
„Já, það var erfitt. Ljósin í aug-
unum. Við fríkuðum út þannig að
við f lúðum bara aftur niður í dýfl-
issuna,“ segir Bjarki.
„Við höfum bara verið þar saman
síðan, að nostra við að gera þessi
lög. Það er samt smá óheilbrigt, því
við erum þarna alltaf bara tveir
einir saman. Þannig að við dettum
stundum inn í okkar þráhyggju-
heim,“ segi Egill.
„Skríðum svo upp úr dýflissunni
og sjáum sólarljósið. Þess vegna spil-
um við svona sjaldan,“ segir Bjarki.
„Já, einmitt, við spilum mjög
sjaldan og svo þegar við gerum
það þá skiljum við ekkert af hverju
við erum að því. Við viljum helst
bara vera í myrkrinu. Okkur finnst
bara best að vera þar, þótt þetta
sé ekkert besti staðurinn til eyða
tímanum sínum. Við viljum bara
semja skemmtileg lög og gera góðar
melódíur,“ segir Egill.
Kjallarapopp
En hvernig tónlist spilar Andy Svart-
hol?
„Ég myndi lýsa þessu sem kjall-
arapoppi,“ segir Bjarki.
„Við notum mikið af sömplum og
slíku til að láta eins við séum stærð-
arinnar hljómsveit,“ segir Egill.
„Það er einfalt að vera bara tveir
en það er mjög erfitt þegar við þurf-
um svo að flytja lögin fyrir framan
fólk,“ segir Bjarki.
Tónlistarkonan unga og efnilega
gugusar hitar upp fyrir hljómsveit-
ina. Gugusar er listamannsnafn
Guðlaugar Sóleyjar Höskuldsdótt-
ur, sem hefur vakið verðskuldaða
athygli undanfarin misseri.
„Hún er mjög góð. Við veltum eitt-
hvað fyrir okkur hvort við þyrftum
að tala við forráðamenn hennar til
að fá hana til að spila,“ segir Egill
„Hún er að gera alveg ótrúlega
góða og mjög þroskaða tónlist,“
segir Bjarki.
Bragi Páll Sigurðsson skáld og
vinur strákanna les upp úr nýjustu
bók sinni, Austur.
Sérfræðingur í músagangi
Það stendur ekki til að bæta með-
lim við í bili, þótt óboðinn gestur
hafi gert vart við sig í dýf lissunni
undanfarið. Eða verður það mögu-
lega þriðji meðlimurinn?
„Egill er orðinn sérfræðingur í
músagangi. Við erum ekki lengur
einir í dýflissunni,“ segir Bjarki.
„Fyrst voru við mjög vinalegir við
hana, gáfum henni ost og Bjarki gaf
henni nafn og allt. Þegar á leið átt-
uðum við okkur á því að það væri
kannski ekki góð hugmynd. Eigin-
lega bara hræðileg hugmynd,“ segir
Egill.
„Þá urðum við stressaðir yfir að
hún kæmi kannski með músavini
sína,“ segir Bjarki.
„Þá myndum við kannski enda
með tuttugu meðlimi í bandinu. En
ég veit annars ekkert af hverju við
stofnuðum þessa hljómsveit,“ segir
Egill.
Svalið forvitninni og sjáið hvort
músagengið úr dýf lissunni stígi á
svið með strákunum í Andy Svart-
hol í kvöld á Hressó klukkan 21.00.
Miðar fást á tix.is.
steingerdur@frettabladid.is
Nýstignir úr dýflissunni
Bræðurnir Bjarki og Egill mynda saman hljómsveitina Andy Svart-
hol. Í kvöld halda þeir tónleika á Hressó í tilefni útgáfu sinnar fyrstu
Bjarki og Egill Viðarssynir stofnuðu saman hljómsveitina Andy Svarthol fyrir þremur árum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ANDY
SVARTHOL
FYRST VORUM VIÐ
MJÖG VINALEGIR VIÐ
MÚSINA, GÁFUM HENNI OST OG
BJARKI GAF HENNI NAFN OG
ALLT. ÞEGAR Á LEIÐ ÁTTUÐUM
VIÐ OKKUR Á ÞVÍ AÐ ÞAÐ VÆRI
KANNSKI EKKI GÓÐ HUGMYND.
Egill Viðarsson
2 2 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
2
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
4
B
-7
A
6
8
2
4
4
B
-7
9
2
C
2
4
4
B
-7
7
F
0
2
4
4
B
-7
6
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
1
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K