Fréttablaðið - 27.11.2019, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 27.11.2019, Blaðsíða 12
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Jón Þórisson jon@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Oft býr eldra fólk yfir mikilli reynslu sem það getur miðlað til þeirra sem yngri eru. Sú viska má ekki tapast. Hvað ungur nemur gamall temur. Þar sem hverfisskipu- lag hefur verið sam- þykkt geta íbúar með einföldum hætti fengið heimild til að stækka húsnæðið sitt með litlum viðbygg- ingum. Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunna@frettabladid.is EKKERT BRUDL Gjafakort BÓNUS • Fæst í öllum verslunum • Góð gjöf sem kemur sér vel fyrir alla Ólöf Örvarsdóttir sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur- borgar Með gildistöku fyrsta hverfisskipulags í Reykjavík hefur verið stigið stórt skref í skipulagsmálum borgarinnar en segja má að hverfisskipulag sé bylting fyrir borgarbúa sem eiga fasteignir og hyggja á framkvæmdir. Það var sérstaklega ánægjulegt fyrir okkur sem höfum starfað lengi að skipulagsmálum að hverfisskipulagið var samþykkt af öllum flokkum í skipulags- og samgönguráði Reykjavíkur. Hverfisskipulag er stefnumótun sem fjallar um hvernig hverfin í borginni geta þróast á komandi árum svo þau verði skemmtilegri, grænni og betri fyrir alla. Hverfisskipulag er ekki síður verkfæri til að auðvelda leiðina fyrir íbúa sem vilja byggja við húsin sín og breyta þeim. Þar sem hverfisskipulag hefur verið sam- þykkt geta íbúar með einföldum hætti fengið heimild til að stækka húsnæðið sitt með litlum viðbyggingum, innréttað aukaíbúðir eða breytt bílskúr í litla íbúð. Með þeim hætti nýtast innviðir betur, aldursdreifing í hverfum verður jafnari og íbúasamsetning fjölbreyttari. Fólk sem býr í stórum húsum getur skapað sér leigu- tekjur og jafnvel búið lengur í eignum sem annars væru orðnar of stórar. Nú hefur hverfisskipulag verið samþykkt fyrir Árbæjarhverfin. Vinna við önnur hverfi í borginni er komin vel á veg og ráðgert er að Breiðholt verði næst í röðinni. Hverfisskipulag er stórt verkefni sem byggir á samráði og hafa þúsundir borgarbúa komið að gerð þess, allt frá grunnskólabörnum sem gerðu módel af hverf- unum sínum til opinna íbúafunda og einstaklinga sem sitja í rýnihópum hverfisskipulags auk þess sem hópur sérfræðinga hefur komið að vinnunni. Til að auðvelda íbúum að kynnast hverfisskipulaginu hefur verið útbúið vandað kynningarefni sem má finna á hverfisskipulag.is. Í hverfisskipulagi er lögð áhersla á sjálfbærni sem þýðir að gott er að ganga og hjóla á milli staða, auðvelt er að flokka úrgang, valdar eru umhverfisvænar lausnir og þjónusta er innan seilingar. Þannig verða lífsgæði þeirra sem búa í hverfunum meiri og nærumhverfið heilsusam- legra. Tímamótabreytingar í ReykjavíkHunangið og edikið Utanríkisráðherra Íslands fundaði í Moskvu með rúss- neskum starfsbróður sínum. Munu þeir hafa rætt viðskipti, samskipti þjóðanna á 20. öld og málefni norðurslóða. Okkar maður kvartaði undan við- skiptabanni. Lauk svo fund- inum á að sá rússneski fékk íslenska landsliðstreyju. Það sem vekur mesta athygli er það sem var ekki rætt. Þar á meðal afstaða Íslands til eignarhalds á Krímskaga, hvað kjarnorku- knúnir kaf bátar Rússa eru að gera upp við íslenska landhelgi og hvort Rússar hafi íhugað að hafa áhrif á kosningar á Íslandi líkt þeir gerðu í Bandaríkjun- um. Það er þetta með f lugurnar, hunangið og edikið. Stór vifta Stóra frétt gærdagsins var ekki Samherji, fjárlög eða enn eitt galið spillingarmálið. Nei. Það var athugasemd á ensku frá syni fjármálaráðherra á Instagram um að kærastan hans, heitfeng- ur áhrifavaldur, sé kynþokka- full. Þegar athugasemdinni er snarað yfir á íslensku er hann annaðhvort mikill aðdáandi eða stór vifta. Það er eins gott að hann geti staðið við stóru orðin í ljósi þess að Neytenda- stofa hefur slegið á puttana á áhrifavöldum vegna merkinga- klúðurs á Instagram. arib@frettabladid.is Það er staðreynd að eldri borgarar hér á landi glíma við fjárhagserfið-leika. Niðurstöður nýlegrar sam-evrópskrar viðhorfskönnunar, þar sem þorri landsmanna telur lífskjör aldraðra á Íslandi slæm, komu því ekki á óvart. Íslendingar fá lægstu meðal- talseinkunn allra Norðurlanda og aðeins þrjú lönd í allri Evrópu fá lægri einkunn; Portúgal, Litháen og Rússland. Óhjákvæmilega breytist margt í lífi okkar þegar aldurinn færist yfir. Fólk hættir að geta gert allt sem það gerði á yngri árum og þess vegna þyrmir yfir marga sem þurfa að hætta að vinna, nokkuð sem gefið hefur lífinu lit. Allt annar veruleiki tekur við. Það eykur líka á vanlíðan að þurfa að taka ellilaun, stundum strípuð sem veldur því að of margir lepja dauðann úr skel. Fólk sem unnið hefur myrkranna á milli megnið af ævinni á skyndilega ekki fyrir lyfjum eða lækniskostn- aði. Auðvitað eru margir eldri borgarar við góða heilsu og búa við fjárhagslegt öryggi en það að banna heilsuhraustu fólki að vinna, og hreinlega henda því út af vinnumarkaði við sjötugsaldurinn, er fullkomlega óboðlegt og í raun ómanneskjulegt. Skerðingarnar eru líka til skammar. Sömuleiðis er óboðlegt að tala um ellilaun sem ellistyrk þegar um er að ræða líf- eyri sem varð til í kjölfar lífsstrits og óþrjótandi vinnu sem hefur átt ríkan þátt í að skapa það samfélag sem við búum í í dag. Oft býr eldra fólk yfir mikilli reynslu sem það getur miðlað til þeirra sem yngri eru. Sú viska má ekki tapast. Hvað ungur nemur gamall temur. Eldra fólk sem er heilsuhraust getur sannarlega unnið samfélaginu mikið gagn og þess vegna á að líta á þann hóp sem eftir- sóknarverðan en ekki svipta hann möguleikum á að vinna fyrir sér og skapa verðmæti. Nú barma stjórnvöld sér yfir hækkandi líf- aldri fólks sem leiðir til þess að gamalmennum fjölgar með „tilheyrandi kostnaði“. Reynum að nýta fólkið okkar til góðra verka frekar en að tala það niður. Við virðumst öll vera sammála um að lífskjörin þarf að bæta, í það minnsta ef marka má fyrrnefnda könnun. Gleymum því ekki að einn daginn, vonandi, komumst við á efri ár. Krafan um áhyggjulaust ævikvöld er engan veginn ósanngjörn. Við getum gert svo miklu betur, ef ekki fyrir ömmur okkar og afa, þá fyrir okkur sjálf. Í þessum efnum eins og svo mörgu öðru er vilji allt sem þarf. Áhyggjulaust ævikvöld 2 7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 2 7 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 5 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 5 7 -B A F 4 2 4 5 7 -B 9 B 8 2 4 5 7 -B 8 7 C 2 4 5 7 -B 7 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 5 6 s _ 2 6 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.