Fréttablaðið - 27.11.2019, Blaðsíða 20
80
milljörðum króna námu
innlán ÍLS um mitt ár.
Austurstræti 18
Skólavörðustíg 11
Laugavegi 77
Hallarmúla 4
Álfabakka 16, Mjódd
Kringlunni norður
Kringlunni suður
Smáralind
Hafnarfirði - Strandgötu 31
Keflavík - Krossmóa 4
Akureyri - Hafnarstræti 91-93
Akranesi - Dalbraut 1
Ísafirði - Hafnarstræti 2
Vestmannaeyjum - Bárustíg 2
Húsavík - Garðarsbraut 9 540 2000 | penninn@penninn.is | www.penninn.is | www.eymundsson.is
Café
AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG
LAUGAVEGI • AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM
Austurstræti 18
Skólavörðustíg 11
Laugavegi 77
Hallarmúla 4
Álfabakka 16, Mjódd
Kringlunni norður
Kringlunni suður
Smáralind
Hafnarfirði - Strandgötu 31
Keflavík - Krossmóa 4
Akureyri - Hafnarstræti 91-93
Akranesi - Dalbraut 1
Ísafirði - Hafnarstræti 2
Vestmannaeyjum - Bárustíg 2
Húsavík - Garðarsbraut 9 540 2000 | penninn@penninn.is | www.penninn.is | www.eymundsson.is
C fé
AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG
LAUGAVEGI • AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM
Kúlupenni Gear
Metal króm
Verð: 9.100.-
Kúlupenni
Storyline svartur
Verð: 10.100.-
SKRIFAÐU EINS OG BOSS!
FÁST Í VERSLUN OKKAR Í SMÁRALIND
NÝIR PENNAR FRÁ
Fyrirtækið Íslandspóstur er að komast á réttan kjöl. Það hefur um árabil verið rekið með tapi en árangurinn af stórfelldum hagræðingarað
gerðum á þessu ári er nú að koma í
ljós. Rekstrarhagnaður á fyrstu tíu
mánuðum ársins hefur margfald
ast miðað við sama tímabil í fyrra
og útlit er fyrir að afkoman verði við
núllið á næsta ári. Forstjóri Íslands
pósts segir að þegar búið sé að leysa
úr skuldavanda Íslandspósts geti
fyrirtækið byrjað að skila hagnaði
og orðið eitt arðbærasta póstfyrir
tækið á Norðurlöndum.
„Maður verður að spara lýsing
arorðin en þetta er öf lugur við
snúningur. Það var búið að hag
ræða töluvert í rekstri Póstsins
á liðnum árum en þær aðgerðir
sneru fyrst og fremst að því að
skerða þjónustu með því að fækka
dreifingardögum og stytta opnun
artíma. Núna erum við hins vegar
að ná þessum viðsnúningi með því
að taka til í rekstrinum en á sama
tíma stórauka þjónustu við við
skiptavini,“ segir Birgir Jónsson,
forstjóri Íslandspósts, í samtali
við Markaðinn. Hann var ráðinn
forstjóri í maí og tók þá við mikil
endurskipulagning.
Íslandspóstur sagði upp 43
starfsmönnum í sumar en alls
hefur stöðugildum fækkað um
15 prósent. Fækkað var í fram
kvæmdastjórn um tvo og samhliða
varð mikil endurnýjun í stjórn
endastöðum. Pósturinn f lutti
síðan nýlega í minna og ódýrara
sk rifstofuhúsnæði og þremur
dreifingarstöðum á höfuðborgar
svæðinu hefur verið lokað. Þá var
gripið til þess að f lokka póst á því
svæði sem hann á að fara á en áður
var til dæmis bréf sem var póstlagt
á Egilsstöðum sent til Reykjavíkur
í f lokkun og svo aftur austur.
Endurskipulagning hefur skilað
því að á fyrstu tíu mánuðum ársins
var EBITDA Íslandspósts, rekstrar
Öflugur viðsnúningur hjá Íslandspósti
Árangurinn af hagræðingu Íslandspósts er að koma í ljós. Útlit fyrir að afkoman verði við núllið á næsta ári eftir stanslaust tap
um margra ára skeið. Forstjórinn sér fram á að Íslandspóstur geti byrjað að skila hagnaði þegar búið er að bæta skuldastöðuna.
Birgir Jónsson tók við stjórnartaumunum í vor og hefur síðan þá látið til sín taka. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Rekstrarbati Íslandspósts
l Í 10 mánaða uppgjöri Íslands-
pósts er EBITDA 410 milljónir
króna en var 95 milljónir króna
á sama tíma í fyrra. Veltan á
tímabilinu var 5,9 milljarðar
króna samanborið við 6 millj-
arða á síðasta ári.
l Gert er ráð fyrir að EBITDA
fyrir allt árið 2019 verði 475
milljónir króna en hún var 133
milljónir króna í fyrra. Veltan í
ár verður 7,4 milljarðar króna
samanborið við 7,5 milljarða á
síðasta ári.
l Gert er ráð fyrir 625 milljóna
króna tapi á þessu ári en
það var 287 milljónir í fyrra.
Skýringin er einskiptiskostn-
aður við endurskipulagningu.
Ef ekki hefði verið farið í neinar
aðgerðir hefði samanburðar-
hæft tap á þessu ári verið um
465 milljónir.
l Árið 2020 er áætlað að veltan
verði 7,6 milljarðar króna,
EBITDA verði 625 milljónir, og
afkoman verði um núllið.
l Launahlutfallið hefur lækkað
úr rúmlega 70 prósentum niður
í rúmlega 60 prósent á síðustu
12 mánuðum. Stöðugildum
hefur fækkað um 15 prósent.
hagnaður fyrir fjármagnsliði og
skatta, 410 milljónir króna saman
borið við 95 milljónir á síðasta
ári. Þannig varð ríf leg fjórföldun
á rekstrarhagnaði þrátt fyrir að
veltan hefði dregist lítillega saman
á milli ára.
„Það jákvæða við það þegar
fyrirtæki lendir í ógöngum eins og
Pósturinn gerði er að umboðið til
breytinga er svo sterkt. Það hefur
verið mjög ánægjulegt að sjá alla
starfsmenn, allt stjórnendateymið
og stjórnina vera á sama máli um
hvað þurfi að gera og um að það sem
var gert áður gekk ekki upp. Það er
mikill samtakamáttur og þá er hægt
að breyta miklu,“ segir Birgir.
Íslandspóstur gerir ráð fyrir
625 milljóna króna tapi á þessu
ári vegna einskiptiskostnaðar við
endurskipulagninguna. Á næsta
ári er hins vegar áætlað að af kom
an verði við núllið og EBITDA verði
625 milljónir. Fyrirtækið glímir við
þunga af borgunarbyrði og mikla
skuldsetningu eftir ýmis fjárfest
ingarverkefni síðustu ára og segir
Birgir að nú sé stóra verkefnið að
létta byrðina.
„Ef þú horfir á EBITDA sem hlut
fall af heildartekjum þá gerum við
ráð fyrir að það verði um 8 prósent
á næsta ári. Ef við setja það síðan
í norrænt samhengi þá verður
Íslandspóstur eitt arðbærasta
póstfyrirtækið á Norðurlöndum.
Við erum skuldsett og það er vandi
sem við erum að taka á en ég sé
alveg fyrir mér að í framtíðinni
verði hægt að skila hagnaði.“
Íslandspóstur lokaði sem fyrr
segir þremur dreifingarstöðvum
á höfuðborgarsvæðinu og þann
ig losnuðu fasteignir sem verða
seldar til að greiða niður skuldir.
Sala fasteigna muni nema um 400
milljónum króna og fara beint inn
á lánin að sögn Birgis. Þá hafa öll
dótturfélög Póstsins verið seld eða
eru á lokametrum í söluferli. Um
áramótin mun Pósturinn ekki eiga
nein dótturfélög í rekstri.
„Þessi félög eru ekki stórir bitar
og salan snýst því meira um að
draga okkur út úr ábyrgðum og því
að setja inn pening í félögin. Við
erum líka að skapa frið um Póst
inn með því að bregðast við þeirri
gagnrýni að Pósturinn hafi verið
með umsvif á mörkuðum sem
tengjast ekki kjarnastarfseminni
með beinum hætti,“ segir Birgir.
Spurður hvort stærstu hag
ræðingaraðgerðirnar séu að baki
svarar Birgir játandi en tekur fram
að Íslandspóstur muni stöðugt
leita leiða til að gera reksturinn
skilvirkari.
„Í venjulegum fyrirtækjum er
svona verkefnum aldrei lokið. Við
erum stanslaust að leita leiða til
að gera hlutina með skilvirkari og
ódýrari hætti. En ég á ekki von á
eins stórum höggum og hafa verið
á þessu ári. Þetta verða meiri fín
stillingar.“ thorsteinn@frettabladid.is
Maður verður að
spara lýsingarorðin
en þetta er öflugur viðsnún-
ingur.
Birgir Jónsson,
forstjóri Íslandspósts
Íbúðalánasjóður (ÍLS) hefur að undanförnu dregið úr innstæðum sjóðsins sem hann hefur
geymt á bundnum reikningum
í Seðlabanka Íslands en um mitt
þetta ár námu innlán hans í bank
anum um 80 milljörðum króna.
Þetta kemur fram í greinargerð
með frumvarpi fjármálaráðherra
um úrvinnslu eigna og skulda ÍL
sjóðs, sem er nýr sjóður vegna upp
safnaðs taps ÍLS á síðustu árum, og
var kynnt fyrr í þessum mánuði.
Um miðjan síðasta mánuð til
kynnti Seðlabankinn að hann hefði
ákveðið frá og með apríl á næsta ári
að fækka þeim aðilum sem geta átt
viðskiptareikning í bankanum.
Breytingin snertir ÍLS langsamlega
mest enda hafa innlán sjóðsins í
Seðlabankanum vaxið verulega á
síðustu misserum og árum.
Þrátt fyrir að breytingin taki
ekki gildi fyrr en eftir rúmlega fjóra
mánuði hefur ÍLS þegar brugðist
við, að því er fram kemur í greinar
gerð frumvarpsins, og ráðstafað
innlánum sínum í aðra fjárfest
ingarkosti að undanförnu en með
því að geyma fé sjóðsins í Seðla
bankanum hefur dregið úr virku
peningamagni í umferð.
Líklegt er að ÍLS hafi því fært fjár
muni sína í Seðlabankanum á inn
stæðureikninga í viðskiptabönkun
um og keypt sértryggð skuldabréf
útgefin af þeim. Í greinargerðinni er
bent á að slík fjárfesting geti lækkað
fjármögnunarkostnað bankanna og
þá um leið hagkerfisins.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
hefur sagt að með því að fækka
þeim sem geta átt í viðskiptum við
bankann sé verið að reyna að örva
hagkerfið og fjármálakerfið.
„Þeir peningar sem eru lagðir
inn í Seðlabankann fara úr umferð.
Þannig að ef við fækkum þeim sem
geta verið með innlán í Seðlabank
anum þá erum við að auka lausafé í
umferð. Við höfum verið að lækka
vexti og við viljum að því sé miðlað
út í efnahagslífið með lánum á lægri
vöxtu ,“ sagði Ásgeir við Frétta
blaðið í síðasta mánuði. – hae
Íbúðalánasjóður minnkar
innlán í Seðlabankanum
2 7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN
2
7
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
5
7
-C
9
C
4
2
4
5
7
-C
8
8
8
2
4
5
7
-C
7
4
C
2
4
5
7
-C
6
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K