Fréttablaðið - 27.11.2019, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 27.11.2019, Blaðsíða 16
Hækkaði rána í íslenskri knattspyrnu 38 mörk skoraði Margrét Lára í sextán leikjum í Landsbanka- deild kvenna árið 2007. 79 mörk skoraði Margrét Lára í 124 leikjum fyrir kvenna- landsliðið sem er met. Næst á eftir Margréti er Hólmfríður Magnúsdóttir með 37 mörk. 1 Mark Margrétar Láru gegn Nor- egi í lokakeppni EM 2013 tryggði Íslandi fyrsta stigið á stór- móti. 3 Þrisvar tókst Margréti Láru að skora yfir þrjá- tíu mörk á einu Íslandsmóti en engum öðrum leikmanni hefur tekist það. 7 Sjö mörk skoraði Margrét Lára í einum og sama leiknum með Val gegn Fylki árið 2006. Dóra María Lárusdóttir Það getur enginn deilt um ágæti Margrétar Láru sem knattspyrnu- konu. Hún býr yfir sjaldséðum hæfileikum og árangurinn talar sínu máli. Oft mætti ætla að það væru töfrar í takkaskónum hennar. Við höfum fylgst að frá því að við vorum unglingar og er ég afar þakklát fyrir að hafa fengið að vera sam- ferða henni í boltanum. Hún tekur mikið til sín innan vallar sem utan og hef ég lært mikið af henni. Hún er keppniskona fram í fingurgóma og gerir miklar kröfur til bæði sjálfrar sín og liðsfélaga sinna. Hún hefur gert mig að betri leikmanni og mun ég sakna hennar mikið á vellinum en sem betur fer mun ég áfram eiga hana að utan vallar sem er mér afar kært. Freyr Alexandersson Ég mun alltaf horfa til Margrétar og leikmanns- ferils hennar með þakk- læti fyrir að hafa fengið að vinna með jafn stórkostlegum íþróttamanni og hún er. Margrét Lára er óum- deilanlega ein sú allra besta sem við höfum átt. Þegar hún var heil heilsu stóðst henni enginn snúning, hvorki á Íslandi né á heimsvísu. Margrét gaf tóninn, með færni sinni og ekki síður hugarfari. Mar- grét hækkaði rána fyrir sjálfa sig á hverjum degi, fyrir liðsfélaga sína og fyrir íslenska knattspyrnu. Það gátu ekki allir tekist á við kröfurnar sem hún gerði og gæðin sem hún bjó yfir. Mótlæti innan vallar og utan þurfti hún að takast á við, ferillinn hefur ekki verið dans á rósum. En eitt er víst, Margrét Lára stendur alltaf uppi sem sigurvegari. Ég er henni þakklátur fyrir að hækka rána, takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir stúlkur á Íslandi með því að vera stærsta kvenkyns fyrirmynd í íþróttum sem fram hefur komið. Helena Ólafsdóttir Margrét Lára á magnaðan feril að baki. Þegar Margrét kemur í landsliðið í fyrsta sinn undir minni stjórn er hún búin að vera í hóp í nokkrum leikjum en ég fann það strax að hún væri tilbúin í stærra hlutverk. Það kom því ekki á óvart að hún skyldi ná að skora strax í fyrsta leik. Hún sló aldrei af á landsliðs- ferli sínum, hún óttaðist ekkert og var hrikalega öflugur leikmað- ur. Það er sjónarsviptir að henni en hún er að hætta á toppnum sem Íslandsmeistari eftir að hafa gengið í gegnum erfið meiðsli þegar hún sleit krossbandið. Hún og Ásthildur Helgadóttir voru fyrstu fyrirmyndirnar úr kvennalandsliðinu fyrir ungar íslenskar knattspyrnukonur og Margrét er klárlega ein af bestu knattspyrnukonum Íslands frá upphafi. Sara Björk Gunnarsdóttir Fyrir mína kynslóð var Margrét Lára stærsta fyrirmyndin í kvenna- boltanum. Margrét ruddi veginn fyrir okkur til að fara út í atvinnu- mennsku. Þegar ég mætti fyrst í landsliðið var ég enn hjá Haukum og hafði því aldrei mætt henni en sá strax hversu mikil gæði voru til staðar. Hún var með frá- bæra tækni, staðsetti sig vel til að komast í færi og var með ótrúlegt markanef. Á ferlinum hefur Mar- grét fengið sinn skerf af mótlæti í meiðslum en viðbrögð hennar við mótlætinu endurspegla það hversu magnaður karakter hún er og hversu frábær manneskja hún er. Hún var frábær fyrirliði, algjör leiðtogi sem var alltaf til staðar fyrir alla í liðinu og mun skilja eftir sig stórt skarð í landsliðinu. Hún getur gengið ótrúlega sátt frá borði eftir að hafa komið til baka eftir krossbandsslitin 2017, átt frábært tímabil með Val í sumar sem endaði með Íslands- meistaratitli og fengið að enda landsliðsferilinn með marki. FÓTBOLTI Tilkynnt var í gær að Mar- grét Lára Viðarsdóttir hefði lagt skóna á hilluna eftir nítján ára far- sælan feril. Markahæsta landsliðs- kona Íslands frá upphafi og fyrsta knattspyrnukonan sem kjörin var íþróttamaður ársins árið 2007 kveð- ur því sviðið sem ríkjandi Íslands- meistari eftir að hafa verið hluti af meistaraliði Vals í sumar. Þetta var fjórði Íslandsmeistaratitill Margrét- ar Láru með Valsliðinu og vantaði hana aðeins eitt mark í sumar til að deila markadrottningartitlinum. Margrét vakti ung athygli og lék fyrsta leik sinn með ÍBV í efstu deild aðeins fjórtán ára gömul. Sextán ára gömul skoraði Margrét sjö mörk í ellefu leikjum en gerði enn betur næstu tvö ár þegar hún skoraði 41 mark í 26 leikjum. Það reyndust síðustu tímabil hennar í Vestmannaeyjum því hún samdi við Val haustið 2004. Með Mar- gréti í fremstu víglínu varð Vals- liðið Íslandsmeistari þrjú ár í röð, árin 2006-2008, og skoraði Margrét alls 104 mörk í 48 leikjum á þessum þremur árum. Á atvinnumannsferlinum fór Margrét fyrst til Duisburg í Þýska- landi átti síðar eftir að leika fyrir Turbine Potsdam sem var þá eitt sterkasta félagslið Evrópu en henni tókst ekki að sýna sitt rétta and- lit í Þýskalandi. Í Svíþjóð stoppaði Margrét stutt hjá Linköpings en lék undir stjórn Elísabetar Gunnars- dóttur í fimm ár hjá Kristianstad í Svíþjóð þar sem hún varð marka- drottning árið 2011. Með kvennalandsliðinu braut Margrét Lára ísinn strax í fyrsta leik undir stjórn Helenu Ólafsdóttur í 4-1 sigri á Ungverjalandi. Það tók Margréti aðeins fjórar mínútur að komast á blað eftir að hafa komið inn á sem varamaður og gaf það tóninn fyrir landsliðsferil Mar- grétar. Sjö sinnum tókst henni að skora þrennu eða meira í leikjum Íslands og skoraði hún alls 79 mörk, það síðasta í 6-0 sigri á Lettlandi á dögunum í leik sem reyndist hennar síðasti fyrir landsliðið. kristinnpall@frettabladid.is Tilkynnt var í gær að Margrét Lára Viðars- dóttir hefði lagt skóna á hilluna eftir nítján ára farsælan feril. Eyjamær- in sem steig fyrstu skref sín í meistaraflokki fjórtán ára gömul hlaut fimm sinnum gullskó- inn á Íslandi, þrisvar gullskó Meistaradeildar Evrópu og gullskóinn í Svíþjóð. Hún var um árabil fyrirliði lands- liðsins og er ein af bestu knattspyrnukonum Íslands frá upphafi. 2 7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT Margrét fagnar hér jöfnunarmarki Íslands gegn Noregi í leik Íslands á EM 2013. Jöfnunarmarkið færði Stelpunum okkar fyrsta stigið í lokakeppni stórmóts. NORDICPHOTOS/EPA 2 7 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 5 7 -A 2 4 4 2 4 5 7 -A 1 0 8 2 4 5 7 -9 F C C 2 4 5 7 -9 E 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 5 6 s _ 2 6 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.