Fréttablaðið - 27.11.2019, Side 28
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Á vefsíðu Leiðbeiningastöðvarinnar er að finna ýmis góð ráð í sambandi
við þrif og efni til að nota til þrifa.
Jenný ráðleggur fólki að byrja
tímanlega að þrífa fyrir jólin og
taka fyrir eitt herbergi í einu. „Það
er gott að skipta þrifunum niður á
herbergi og gera hvert herbergi vel
áður en byrjað er á því næsta, þá
þarf ekki að vera að hlaupa um allt
hús í einni stórri hreingerningu
rétt fyrir jól,“ segir Jenný.
Hún segir þó enga þörf vera á
stórhreingerningu og þrífa alla
veggi og loft í myrkrinu í desem
ber. „Við ráðleggjum fólki mun
frekar að þrífa bara það mikilvæg
asta eins og baðherbergið og eld
húsið. Það sér enginn hvort veggir
eða loft hafa verið þrifin. Það
er miklu sniðugra að gera það á
vorin. Það ætti enginn að keyra sig
í kaf í hreingerningum í desember.
Þá er best að hafa það bara huggu
legt og kveikja á kertum. Það getur
verið gott að deila stórhreingern
ingum yfir árið. Til dæmis deila
verkum á mánuðina, en það fer
auðvitað eftir því hversu oft fólk
telur þörf á þrifum. Það er auð
vitað misjafn umgangur á hverju
heimili fyrir sig,“ segir Jenný. Hún
segir þó gott að þrífa vel ísskápinn
og eldhússkápana fyrir jól svo þeir
séu hreinir áður en þeir eru fylltir
af jólamat.
Leiðbeiningastöð heimilanna
mælir með því að fólki kaupi
svansvottuð hreingerningar
efni. Svansvottunin er nor
rænt umhverfismerki sem gerir
strangar kröfur um lágmörkun
umhverfisáhrifa. Merkið er auð
veldlega hægt að sjá á umbúð
unum. „Mild sápa og vatn er best
við flest dagleg þrif. En svo er líka
hægt að nota 100% náttúruleg efni
eins og edik og matarsóda. Edik er
gott að nota á glugga og á baðher
bergi en það má ekki nota það á
allt. Það má til dæmis alls ekki
nota það á lakk eða marmara og
granít því edikið er ætandi,“ segir
Jenný. „En það er fínt á baðkar og
klósett og alls staðar þar sem er
glerungur.“
Jenný segir að matarsódann
megi nota á f leiri f leti þar sem
hann er basískur en ekki nægi
lega til að vera ertandi og því
er hann frábær kostur til að
nýta á margan hátt við þrifin á
heimilinu. „Það er til dæmis gott
að nota matarsóda til að þrífa
ísskápinn. Þar er ekki sniðugt að
nota sápu því matvælin eru svo
fljót að draga í sig lykt. Þú blandar
bara smá matarsóda út í vatn og
nuddar svo með tusku. Matar
sódinn er ágætis skrúbbefni.“
Einfaldar aðferðir
við að þrífa gull og silfur
Fyrir jólin draga margir fram gull
og silfurmuni, borðbúnað eða
annað skraut sem oft hefur fallið á.
Hreinsiefni fyrir gull og silfur eru
oft ekkert sérlega umhverfisvæn
eða góð fyrir húðina. En Jenný er
með umhverfisvæna lausn til að
fægja silfrið. Það sem þarf er:
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. matarsódi
2,5 dl kalt vatn
„Þú sýður kalda vatnið, bætir
þurrefnunum út í og lætur rjúka.
Svo er silfrið sett ofan í löginn,
látið liggja í smástund og svo bara
þurrkað með mjúkum klút,“ segir
Jenný.
„Gullið er best að þvo og fægja
með því að sjóða kalt vatn og setja
smá uppþvottalög saman við og
láta gripina liggja í blöndunni í um
klukkustund, óhreinindin leysast
upp út í vatnið og þá er hægt að
bursta þá með mjúkum bursta.
Svo skolað með köldu vatni og fægt
með mjúkum klút.“
Gott að skipta þrifunum
Nú þegar jólin nálgast eru margir farnir að huga að jólaþrifunum. Áður fyrr var algengt að fólk
gerði allsherjar hreingerningu fyrir jólin þar sem hver einasti krókur og kimi var skrúbbaður. Jenný
Jóakimsdóttir hjá Leiðbeiningastöð heimilanna segir það þó óþarfa í dimmasta mánuði ársins.
Mild sápa og vatn
er best við flest
dagleg þrif. En svo er líka
hægt að nota 100%
náttúruleg efni eins og
edik og
matarsóda.
Jenný
Jóakimsdóttir
Gott er að þrífa ísskápinn með matarsóda svo það komi ekki sápulykt í matinn. NORDICPHOTOS/GETTY
4 KYNNINGARBLAÐ 2 7 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RJÓLAHREINGERNING
2
7
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
5
7
-B
1
1
4
2
4
5
7
-A
F
D
8
2
4
5
7
-A
E
9
C
2
4
5
7
-A
D
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K