Fréttablaðið - 27.11.2019, Qupperneq 34
Ofangreindar skipulagslýsingar/skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast lýsingar og tillögur á
vefslóðinni http://www.utu.is. Þá eru gögnin aðgengileg á heimasíðum sveitarfélaganna: https://www.blaskogabyggd.is; https://www.gogg.is; https://www.fludir.is;https://skeidgnup.is;
https://www.floahreppur.is; http://asahreppur.is/
Skipulagslýsingar og tillögur nr. 1 – 2 og 4 - 9 eru í kynningu frá 27. nóvember til 18. desember 2019, en tillögur nr. 3 og 10 - 16 eru í auglýsingu frá 27. nóvember til 10. janúar 2020. Athugasemdir og ábendingar við
tillögum nr. 1 – 2 og 4 - 9 þurfa að berast skipulagsfulltrúa eigi síðar en 18. desember 2019, en fyrir tillögur nr. 3 og 10 – 16, eigi síðar en 10. janúar 2020.
Athugasemdir og ábendingar skulu berast skipulagsfulltrúa UTU og vera skriflegar.
Rúnar Guðmundsson
skipulagsfulltrúi
runar@utu.is
Aðalskipulagsmál
Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynnt lýsing að eftirfarandi aðalskipulags-
breytingu:
1. Breyting á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027. Árgil, L167054, Bláskógabyggð.
Kynnt er skipulags- og matslýsing vegna Árgils, L167054, í Bláskógabyggð. Breytingin fellst í að hluti
verslunar- og þjónustusvæðis (VÞ18) sem er um 11 ha að stærð, verði minnkað um 2 ha og þeirri landnot-
kun breytt í landbúnaðarland.
Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að eftirfarandi aðalskipulags-
breytingu:
2. Breyting á aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029. Ósbakki, L165463, Flóahreppi.
Kynnt er tillaga að breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029, sem tekur til 2 ha lands Ósbakka,
L165463, sem í gildandi aðalskipulagi Flóahrepps er skilgreint sem frístundasvæði (F36) og er áætlað
að breyta landnotkun í landbúnaðarland. Áætlað er að byggja upp nýtt íbúðarhús og hesthús/skemmu.
Samhliða kynningu á aðalskipulagsbreytingu er kynnt tillaga vegna deiliskipulags á svæðinu.
Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst eftirfarandi aðalskipulagsbreyting:
3. Breyting á aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022. Miðmundarholt 1-6, Ásahreppi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti þann 18. september 2019, að auglýsa tillögu/uppdrátt og grein-
argerð, þ.m.t. umhverfisskýrslu, að breytingu á gildandi aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022 vegna
breytingar á landnotkun í landi Miðmundarholts. Breytingin fellst í að svæði sem tekur til 7 íbúðarlóða
sem í gildandi aðalskipulagi er skilgreint sem íbúðarsvæði, er breytt í verslunar- og þjónustusvæði.
Deiliskipulagsmál
Samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar skipulagslýsingar fyrir eftirfarandi
deiliskipulagsverkefni:
4. Deiliskipulag Sultartangavirkjunar. Ásahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
(auk Rangárþings ytra)
Kynnt er skipulagslýsing dags. 25. september 2019, í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr.123/2010, sem
gerir grein fyrir deiliskipulagi Sultartangavirkjunar, L191624, og svæði tengd henni. Deiliskipulagið mun
ná til þriggja sveitarfélaga, Ásahrepps, Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Rangárþings ytra.
Deiliskipulagið tekur til Sultartangastöðvar og mannvirkja hennar. Stöðin var tekin í notkun árið 1999 og
nýtir vatn Tungnaár og Þjórsár sem sameinast í Sultartangalóni, sem er miðlunarlón stöðvarinnar.
Sultartangalón var myndað með 6,1 km langri stíflu skammt ofan ármóta Þjórsár og Tungnaár. Mes-
ta hæð stíflunnar er 22 m. Úr Sultartangalóni er vatni veitt um 3,4 km löng aðrennslisgöng í gegnum
Sandafell, að jöfnunarþró suðvestan í fellinu. Við enda þróarinnar er inntak og þaðan liggja tvær
stálpípur að hverflum í stöðvarhúsinu. Frá Sultartangastöð liggur um 7 km langur frárennslisskurður
sem veitir vatninu aftur í farveg Þjórsár, skammt fyrir ofan Ísakot. Yfirfall Sultartangalóns er austast í
stíflunni og fer í farveg Tungnaár. Núverandi virkjunarleyfi er fyrir virkjun með uppsettu afli 125 MW.
Landsvirkjun vinnur að umsókn um breytingu á virkjunarleyfi til Orkustofnunar þannig að virkjunarleyfið
verði fyrir uppsett afl allt að 133 MW. Umsóknin byggir á úrskurði Skipulagsstofnunar frá apríl 2019 um
að aflaukning Sultartangastöðvar um allt að 8 MW væri er ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Tengivirki Landsnets er vestan stöðvarhússins. Þangað liggja nokkrar háspennulínur frá Hrauneyjafoss-
og Sigöldustöðvum. Frá tengivirkinu liggja háspennulínur í Búrfellsstöð og tengivirki við Brennimel.
5. Deiliskipulagsbreyting. Nesjar - Nesjaskógur, Grímsnes- og Grafningshreppi.
Kynnt er skipulagslýsing dags. 10. október 2019, sem gerir grein fyrir fyrirhugaðri breytingu á gildandi
deiliskipulagi frístundabyggðar Nesjar-Nesjaskógur (F1), í Grímsnes- og Grafningshreppi. Ástæða
breytingarinnar er að fá allar fyrri breytingar skipulags inn á sama uppdrátt ásamt skilmálum auk eftir-
farandi áhersluþátta: Deiliskipulagssvæðið er stækkað úr 45 ha í 48 ha. Lóðir teiknaðar inn á hnitasettan
loftmyndagrunn eftir mælingum á staðnum og núverandi deiliskipulagi m.s.br.. Deiliskipulagsskilmálar
verða uppfærðir, þannig að þeir uppfylli nútíma kröfur. Lóðir hnita- og málsettar. Flóttaleiðir verða skip-
ulagðar og gerð grein fyrir vatnstöku slökkviliðs. Áætluð skipulagsbreyting er í samræmi við gildandi
aðalskipulag Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020. Allar eldri deiliskipulagsbreytingar munu falla
úr gildi við gildistöku væntanlegs deiliskipulags.
6. Deiliskipulagsbreyting. Þóroddsstaðir L168295, Langirimi. Grímsnes- og Grafningshreppi.
Kynnt er skipulagslýsing, dags. 15. október 2019, sem gerir grein fyrir fyrirhugaðri breytingu á gildandi
deiliskipulagi frístundabyggðar (F44) í landi Þóroddsstaða. Deiliskipulagsbreytingin tekur til um 50
ha svæðis og mun meginmarkið með breytingunni auk stækkunar vera að uppfæra fyrri breytingar til
samræmis við nútíma kröfur. Þá verður horft til eftirfarandi þátta: Lóðir teiknaðar inn á hnitasettan
loftmyndagrunn eftir mælingum á staðnum og núverandi deiliskipulagi m.s.br.. Deiliskipulagsskilmálar
verða uppfærðir, þannig að þeir uppfylli nútíma kröfur. Lóðir hnita- og málsettar. Lóðir í nýju deiliskip-
ulagi munu hafa eitt samræmt götu og númerakerfi. Að svæðið fái heitið Langirimi. Flóttaleiðir verða
skipulagðar og gerð grein fyrir vatnstöku slökkviliðs. Áætluð skipulagsbreyting er í samræmi við gildan-
di aðalskipulag Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020. Allar eldri deiliskipulagsbreytingar munu falla
úr gildi við gildistöku væntanlegs deiliskipulags.
7. Deiliskipulag. Tjarnarhólar. Útivistar og göngusvæði, Grímsnes- og Grafningshreppi.
Kynnt er skipulags- og matslýsing, dags. 1. október 2019, sem gerir grein fyrir fyrirhuguðu deiliskipulagi
við Tjarnarhóla og Kerhól (Kerið) í landi Snæfoksstaða. Í fyrirhuguðu deiliskipulagi sem tekur til um 35
ha svæðis, er gert ráð fyrir uppbyggingu svæðisins í þágu ferðamanna með gerð bílastæða, göngustíga,
upplýsingaskilta og byggingu tveggja þjónustuhúsa. Aðkoma að svæðinu er um núverandi gatnamót
Vaðness og Snæfoksstaða frá Biskupstungnabraut.
Samkvæmt 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar skipulagstillögur fyrir eftirfarandi
deiliskipulagsverkefni:
8. Deiliskipulag. Kringla 4, L227914, Grímsnes- og Grafningshreppi. Frístundabyggð.
Kynnt er tillaga deiliskipulags sem tekur til um 22.6 ha svæði á jörðinni Kringlu 4, í Grímsnes- og Graf-
ningshreppi. Gert er ráð fyrir 32 nýjum frístundahúsalóðum frá 5.000-8.753 m2 að stærð. Aðkoma að
svæðinu er um Sólheimaveg og inn Árveg. Deiliskipulagstillagan er í samræmi við gildandi aðalskipulag
Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020 m.s.br. og hefur skilgreiningu sem frístundasvæði (F52b).
9. Breyting deiliskipulags svæði D. Snæfoksstaðir frístundabyggð. Grímsnes- og Grafningshreppi.
Kynnt er deiliskipulagsbreyting sem nær yfir svæði fyrir frístundabyggð, merkt F20c í greinargerð aðal-
skipulags Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020 m.s.br. Svæðið sem breytingin nær yfir er um 70 ha
að stærð og er merkt sem svæði D í deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Snæfoksstaða.
Í deiliskipulagsbreytingunni er gert ráð fyrir að fjölga frístundalóðum úr 47 lóðum í 53 lóðir. Þar af eru 49
frístundalóðir byggðar og 4 óbyggðar. Enn fremur er innan svæðisins gert ráð fyrir einni landbúnaðarlóð
(Nautavakavegi nr. 2) sem tengist starfsemi skógræktarinnar á Snæfoksstöðum. Lóðirnar eru frá 6.980
m2 til 17.678 m2 að stærð.
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur að eftirfarandi deiliskipu-
lagsáætlunum:
10. Deiliskipulagsbreyting. Miðmundarholt. Ásahreppi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti þann 18. september 2019, að auglýsa tillögu/uppdrátt og grein-
argerð, þ.m.t. umhverfisskýrslu, að breytingu á gildandi deiliskipulagi íbúðarhúsasvæðis Miðmundar-
holts í Ásahreppi. Á svæðinu eru 7 íbúðarhúsalóðir, þar sem landnotkun verður breytt í verslunar- og
þjónustulóðir, og verður við breytinguna heimilt að gefa út rekstrarleyfi í fl.II á lóðunum. Samhliða er
auglýst samsvarandi breyting á gildandi aðalskipulagi Ásahrepps.
11. Deiliskipulagsbreyting. Gullfoss 1-2, L167192. Reitur M3. Bláskógabyggð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti þann 7. nóvember 2019 að auglýsa tillögu, uppdrátt og
greinargerð, vegna breytinga á gildandi deiliskipulagi fyrir svæði M3 (neðra útsýnissvæði) við Gullfoss,
Bláskógabyggð. Breytingin fellst í að ítarlegri grein er gerð fyrir bílastæðum svæðisins, þar með talið
rafhleðslustöðvum. Settur verður út byggingarreitur fyrir sand og verkfærageymslu við aðkomuplan. Þá
verða gerðar breytingar á göngustígum.
12. Deiliskipulagsbreyting. Mosaskyggnir 18 – 22. Bláskógabyggð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti þann 7. nóvember 2019 að auglýsa tillögu, uppdrátt og gre-
inargerð, vegna breytingar á gildandi deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Úthlíðar í Bláskógabyggð.
Upprunalegt deiliskipulag öðlaðist gildi 1993 og var gerð breyting á þessum hluta 2006 “svæði vestan
Skarðsvegar” Breytingin tekur til vegstæðis við lóðirnar Mosaskyggnir 18, 20 og 22. Í breytingunni felst
að lóðarmörk Mosaskyggnis 20 breytast vegna breyttrar legu vegar fram hjá lóðinni. Samhliða breyttri
legu Mosaskyggnis 20 breytast mörk aðliggjandi lóða Mosaskyggnis 18 og Mosaskyggnis 22 auk þess
sem mörk á milli Mosaskyggnis 18 og 20 breytast.
13. Deiliskipulagsbreyting. Vaðlækjarvegur 8, L169070 (Miðengi L168261). Grímsnes- og Grafningshreppi.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti þann 6. nóvember 2019 að auglýsa tillögu, að
breytingu á gildandi deiliskipulagi frístundabyggðar í Miðengi, vegna lóðarinnar Vaðlækjarvegur 8,
L169070. Breytingin felst í tilfærslu á spildu sem á er götuslóði upp að lóð 8 sem aðskilur lóðirnar 6 og 10
við Vaðlækjarveg. Spildan sem um ræðir er hluti af landareign Miðengis, L168261, en bætist við lóðina
Vaðlækjarveg 8 sem stækkar úr núverandi skráningu 7.700 m2 í 8.352 m2. Með stækkuninni er tryggt
aðgengi að lóðinni til framtíðar. Skilmálar í gildandi skipulagi verða óbreyttir.
14. Deiliskipulag. Bjarkarlækur L224049. Grímsnes- og Grafningshreppi.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti þann 6. nóvember 2019 að auglýsa tillögu að
nýju deiliskipulagi fyrir spilduna Bjarkarlæk í Grímsnes- og Grafningshreppi. Deiliskipulagssvæðið
tekur til alls lands Bjarkalækjar sem er um 9,5 ha að stærð. Gert er ráð fyrir tveimur byggingarreitum
undir íbúðarhús, bílskúr og gestahús auk skemmu og hesthúss með aðkomu af Biskupstungnabraut um
Bjarkarveg. Tillagan er í samræmi við gildandi aðalskipulag Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020,
þar sem landið er skilgreint sem landbúnaðarland.
15. Deiliskipulagsbreyting . Ölvisholt L207869. Kúlutjöld og þjónustusvæði. Flóahreppi.
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti þann 5. nóvember 2019, tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi
spildu úr landi Ölvisholts, L207869, fyrir kúlutjöld og þjónustubyggingar.
Breytingin fellst í að fjölga kúlutjöldum úr 6 í 15, fjölgun byggingarreita fyrir þjónustuhús úr 2 í 5 og stof-
nun tveggja nýrra lóða innan spildunnar fyrir stærri þjónustubyggingar og bílastæði.
16. Deiliskipulag Miklaholtshellis 2, L223302. Flóahreppi.
Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti þann 5. nóvember 2019, tillögu að deiliskipulagi, uppdrátt og grein-
argerð vegna stækkunar á alifuglabúi að Miklaholtshelli 2, L223302. Með fyrirhuguðu deiliskipulagi er
áætlað að heimiluð verði bygging tveggja 1.500 m² húsa sem gætu hýst allt að 18.000 fugla. Heildarfjöldi
alifugla á svæðinu yrði þá samtals 49.000 fuglar. Með stækkuninni er verið að efla og styðja við núver-
andi framleiðslu á lífrænum eggjum að
Miklaholtshelli 2 á vegum Nesbúeggja ehf.
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL
Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi,
Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR
4 SMÁAUGLÝSINGAR 2 7 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R
2
7
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
5
7
-D
D
8
4
2
4
5
7
-D
C
4
8
2
4
5
7
-D
B
0
C
2
4
5
7
-D
9
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K