Fréttablaðið - 27.11.2019, Page 48
Öll umgjörð verksins er falleg og friðsöm, segir gagnrýnandi um Spills.
DANS
Spills
Tjarnarbíó
Höfundur og flytjandi: Rósa
Ómarsdóttir
Sviðsmynd Dora Durkesac
Tónlist: Nicolai Hovgaard Johansen
og Rósa Ómarsdóttir
Hljóðhönnun: Nicolai Hovgaard
Johansen
Ljósa innsetning, ljósahönnun og
tæknistjóri: Hákon Pálsson
Búningahönnun: Kristjana Björg
Reynisdóttir
Nokkur af þeim dansverkum sem
frumsýnd hafa verið síðustu miss-
erin væru sérlega vel til þess fallin að
vera römmuð inn í rafrænan ramma
og fest upp á vegg svo hægt væri að
njóta þeirra liggjandi uppi í sófa eftir
langan vinnudag. Þessi verk hafa átt
það sameiginlegt að leggja áherslu á
sjónræn áhrif og sefandi hljóðheim.
Dansverkið Spills eftir Rósu Ómars-
dóttur sem sýnt var í Tjarnarbíói í
liðinni viku sem hluti af Reykjavík
Dance Festival fellur vel í þennan
flokk.
Hreyfing er í forgrunni í verkinu.
Það eru þó ekki aðeins hreyfingar
dansarans, Rósu sjálfrar, heldur
einnig hreyfing alls í umhverfinu.
Ótal ljós sem hanga niður úr loftinu
fara á ferð með hjálp dansarans, vatn
sem liggur á gólfinu gárast bæði við
hreyfingar hans og þegar dropar
detta niður úr ísklumpum sem
hanga úr loftinu og bráðna í hitanum
í salnum. Óljósar hreyfingar varpast
upp á hvítt baktjald á sviðinu, reyk-
ur liðast um sviðið og hljóð líða frá
munni dansarans út í salinn og til
tónlistarstjórnandans sem sendir
það áfram út í salinn í nýrri mynd.
Hugmyndin um hið heildræna
listaverk kemur vel fram í verkinu
Spills. Myndlist, hönnun, tónlist
og dans koma þar saman sem ein
heild og skapa upplifun sem ekkert
af þessum formum gæti skapað eitt
og sér. Öll umgjörð verksins er falleg
og friðsöm. Vatnið, ljósin og litaval
sköpuðu róandi stemmingu eins
og kyrrlátt íslenskt síðsumarkvöld
og hljóðmyndin var áhugaverð á
sinn lágstemmda hátt. Reykurinn
sem birtist í lok sýningarinnar gaf
verkinu fallegan blæ en ólíkt því
að setja allt í móðu eins og hlutverk
reyks virðist oftast vera á sviði þá
dansaði hann sinn dans hljóðlega
og seiðandi.
Staða flytjandans, Rósu, í verkinu
verður tvíþætt. Annars vegar dans-
aði hún, það er hreyfði sig hreyfing-
arinnar vegna en hins vegar hreyfði
hún sig til þess að láta umgjörðina
hreyfast. Hreyfingar hennar voru
fíngerðar og agaðar og féllu vel inni
í heildarmynd verksins. En á sama
tíma og látleysi dansins undir-
strikaði heildar mynd verksins gerði
það verkið líka full f latt. Þar sem
dansarinn var skapari allra hreyf-
inga á sviðinu hefði hlutverk hans
mátt vera meira afgerandi. Miðað
við lengd verksins hefði mátt nýta
betur þá möguleika sem bjuggu í
umgjörðinni sem og í mannslíkam-
anum sjálfum sem listaverki til að
horfa á. Vatnið og ekki síður ljósin
í samspili við dansinn buðu upp á
endalausa möguleika á því að skapa
töfra fyrir áhorfendurna auk þess
sem dansarinn hefði gjarnan mátt
taka meira pláss í verkinu. Umgjörð
verksins bauð upp á enn sterkari
nærveru hans.
Í grunninn er dansverkið Spills
áferðarfallegt og vel gert sviðsverk
þar sem listrænir þættir myndlistar,
hönnunar, tónlistar og dans koma
saman í eina áhugaverða heild. Það
skortir þó á spennu í framsetning-
unni til að halda áhorfendum betur
á tánum og verður verkið of langt
miðað við nýtingu þeirra tækifæra
sem hugmyndin að verkinu býður
upp á.
Sesselja G. Magnsdóttir
NIÐURSTAÐA: Áferðarfallegt og vel
gert verk sem líður þó fyrir skort á
spennu í framsetningu.
Friðsælt landslag
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Miðvikudagur
hvar@frettabladid.is
27. NÓVEMBER 2019
Hvað? Getur sýndarheimur haft
meiri merkingu en raunveruleikinn?
Hvenær? 12.00 -13.00
Hvar? Háskólinn í Reykjavík, stofu
V101
Fyrirlestur Hilmars Veigars Pét-
urssonar, forstjóra CCP.
Hvað? Rithöfundakvöld
Hvenær? 20.00
Hvar? Gunnarshús, Dyngjuvegi 8
Fimm kvenskáld koma saman
og lesa úr nýútkomnum verkum
sínum, þær Fríða Ísberg, Gunn-
hildur Þórðardóttir, Ragna
Sigurðardóttir, Sigríður Kristín
Þorgrímsdóttir og Steinunn G.
Helgadóttir.
Fríða Ísberg er meðal skáldkvenna
sem lesa upp í Gunnarshúsi.
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
QOD AFM ÆLIS -DÚNSÆNG
Hlý og létt dúnsæng (650 gr).
90% dúnn, 10% smáfiður. 140x200 cm
100% bómullaráklæði.
25.000 kr. AFM ÆLISVERÐ
HÁGÆÐA DÚNVÖRUR
Á 25 ÁRA AFMÆLISVERÐI
QOD AFMÆLIS-DÚNKODDI
Þéttur og góður dúnkoddi. 80% hvítur
andadúnn og 20% smáfiður. 50x75 cm.
920 gr. og 100% bómullaráklæði.
8.900 kr. AFM ÆLISVERÐ
SATIN STRIPE
DÚNKODDI
Þriggja laga dúnkoddi. Efra og neðra
dúnlag með þéttum, hvítum andadún og
smáfiðurkjarna. Bómullarsatínáklæði.
9.900 kr. AFM ÆLISVERÐ
HÖFUM LAGT GRUNN AÐ GÓÐUM DEGI Í
LÍFIÐ ER Á
FRETTABLADID.IS
Líð á frettabladid.is allar um
fólk, menningu, tísku, heilsu
og margt eira.
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
2 7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R24 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
7
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
5
7
-D
3
A
4
2
4
5
7
-D
2
6
8
2
4
5
7
-D
1
2
C
2
4
5
7
-C
F
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K