Fréttablaðið - 27.11.2019, Page 56
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000
Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Bjarna
Karlssonar
BAKÞANKAR
Haustið 1991 þegar við hjónin hófum prestskap í Vest-mannaeyjum fórum við í
kveðjukaffi hjá Ingibjörgu Þor-
steinsdóttur móðurömmu minni.
Í íbúðinni hennar ríkti værð;
svarthvítar ljósmyndir af látnum
ættingjum, risastórt útvarpsvið-
tæki sem þurfti að hitna áður en tók
að heyrast í því, upptrekkt klukka
með taktföstum kólfi, pottaplöntur
og útsaumaðir púðar frá milli-
stríðsárunum. Þegar komið var
á okkur fararsnið bað amma mig
að líta inn í eldhús. Við hlið gamla
ísskápsins sem Hróbjartur afi hafði
keypt nýjan frá Ameríku um miðbik
aldarinnar opnaði hún kústaskáp-
inn og tók fram pokaskjatta sem
bundið var fyrir með sláturgerðar-
þræði. Hérna væni minn, það er
alltaf gott að eiga svona. Hafðu þetta
með þér.
Pokinn góði fór í kústaskápinn á
okkar nýja heimili og var stundum
tekinn fram til að skemmta gestum.
Í honum var haganlega fyrir komið
snærisspottum, teygjum, fata-
klemmum og samanbrotnum plast-
pokum af ýmsum stærðum.
Pokinn er löngu týndur. Með
árunum hefur hann orðið mér
hugleikinn og ég blygðast mín fyrir
hláturinn þegar skjattinn var látinn
ganga milli gesta upp á grín og
gjarnan fylgdi sagan af ömmu þegar
hún fór í sína einu utanlandsferð
klædd í upphlut. En auðvitað vissi
amma vel að okkur vantaði ekkert
úr pokanum. Kveðjugjöfin hennar
voru skilaboð um að við mættum
tileinka okkur hófsemd. Að betra
væri að fara hægar, nýta betur,
binda vel um hnúta.
Í kvöld kl. 19.30 ætla ég að halda
fyrirlestur í safnaðarheimili Laugar-
neskirkju. Þar mun ég segja fleiri
sögur af Ingibjörgu ömmu og kynna
doktorsrannsókn mína sem ég von-
ast til að verja á nýju ári. Hún fjallar
um umhverfissiðfræði sem eftir á að
hyggja var öll í pokanum góða.
Amma
Ingibjörg
Ódýrt
fyrir
alla
siminnpay.is
Dreifðu
greiðslum,
borgaðu
eftir jól
Notaðu Pay Léttkaup í desember, dreifðu
greiðslum í allt að 36 mánuði og þú byrjar
ekki að borga fyrr en í febrúar.
2
7
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
5
7
-9
3
7
4
2
4
5
7
-9
2
3
8
2
4
5
7
-9
0
F
C
2
4
5
7
-8
F
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K