Fréttablaðið - 28.11.2019, Side 4

Fréttablaðið - 28.11.2019, Side 4
JEEP® RENEGADE LIMITED - Verð á sýningarbíl: 4.990.000 kr. JEEP® RENEGADE TRAILHAWK - Verð á sýningarbíl: 5.490.000 kr. JEEP® CHEROKEE LONGITUDE LUXURY - Verð á sýningarbíl: 7.490.000 kr. JEEP® CHEROKEE LONGITUDE LUXURY - Verð á sýningarbíl: 7.990.000 kr. JEEP® CHEROKEE LIMITED - Verð á sýningarbíl: 8.790.000 kr. jeep.is UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF TILBOÐ Á VÖLDUM SÝNINGARBÍLUM ERUM Í SAMNINGSSTUÐI JEEP© WRANGLER TILBOÐSVERÐ Á SÝNINGARBÍL FRÁ: 11.590.000 KR. JEEP© GRAND CHEROKEE TILBOÐSVERÐ Á SÝNINGARBÍL FRÁ: 9.990. 00 KR. JEEP© CHEROKEE TILBOÐSVERÐ Á SÝNINGARBÍL FRÁ: 7.490.000 KR. JEEP© RENEGADE TILBOÐSVERÐ Á SÝNINGARBÍL FRÁ: 4. 90. 0 KR. VIÐSKIPTI Í síðustu viku lauk tökum á nýjum kínverskum raunveru­ leikaþáttum á Íslandi. Sjötíu manna teymi kom að gerð þáttanna og því var umfang verkefnisins stórt. Fjórar kínverskar raunveru­ leikastjörnur ferðuðust um Ísland og var ábyrg ferðamennska í for­ grunni. „Þættirnir munu heita The Protectors og eins og nafnið gefur til kynna munu þeir fjalla um umhverfisvernd og ábyrga ferða­ hegðun,“ segir Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður hjá Íslandsstofu. Til marks um það hófu kín­ versku stórstjörnurnar ferðina á því að sverja að halda loforðin átta um ábyrga ferðahegðun, Icelandic Pledge, við komuna til landsins. „Icelandic Pledge er verkefni sem við ákváðum að gefa aukinn kraft í árið 2018 til að skora á ferðamenn að sýna ábyrga hegðun hérlendis. Verkefnið er unnið undir merkjum Inspired by Iceland. Það segir ýmis­ legt um efni þáttanna að þetta skuli vera upphafsatriðið,“ segir hún. Í lok ferðarinnar var síðan hald­ inn viðburður í Hörpu þar sem ferðamálaráðherra og sendiherra Kína f luttu erindi og síðan fengu stjörnurnar af henta sérstaka Ice­ landic Pledge viðurkenningu. Að sögn Ingu Hlínar voru kín­ versku þáttagerðarmennirnir afar ánægðir með upplifunina hérlendis. „Þeim leið afar vel hér á landi og það sýnir sig í því að Ísland fær mikið vægi í þáttunum. Þeir heim­ sækja einnig önnur lönd, til dæmis Noreg. Okkur skilst að ferðalagið um Ísland taki þrjá þætti á meðan Noregur fær einn þátt,“ segir hún. Það sem af er ári hefur kínversk­ um ferðamönnum fjölgað hérlendis um 11 prósent miðað við árið 2018. Þá greindi Fréttablaðið frá því að kínverska f lugfélagið Juneyao Air hygðist hefja áætlunarf lug til Íslands tvisvar í viku næsta vor og sagði talsmaður fyrirtækisins við Fréttablaðið að f lugfélagið gerði ráð fyrir mikilli aukningu kín­ verskra ferðamanna til Íslands á næstu árum. Það má því segja að hinir kín­ versku þættir komi á frábærum tíma. „Þetta er næststærsta sjón­ varpsstöð Kína sem stendur að framleiðslunni og því má búast við því að tugmilljónir manna horfi á þættina. Þetta verður afar verðmæt landkynning með ábyrgð að leiðar­ ljósi,“ segir Inga Hlín. Hún bendir á að kínverskir ferða­ menn séu um margt ólíkir þeim vestrænu. „Kínverjar hafa mikinn áhuga á íslenska vetrinum og sér­ staklega norðurljósunum. Eitt helsta ferðatímabilið þeirra er í febrúar í tengslum við kínverska nýárið og því eru kínverskir ferða­ menn líklegir til að koma hér líka utan háannatíma sem er eitt af þeim markmiðum sem við höfum í ferða­ þjónustunni. Þeir eru því afar verð­ mæt viðbót,“ segir Inga Hlín. bjornth@frettabladid.is Kínverskir sjónvarpsþættir teknir upp víða um Ísland Kínversku raunveruleikastjörnurnar fengu viðurkenningar afhentar við hátíðlega athöfn í Hörpu í lok ferðarinnar. Nýlega yfirgaf um 70 manna teymi kín- verskra raunveruleika- þáttagerðarmanna Ís- land eftir velheppnaða tökudaga. Búast má við þáttunum á næsta ári og er gert ráð fyrir að milljónatugir áhorfenda muni berja þá augum. Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður hjá Íslandsstofu. Allar nýjustu fréttir og blað dagsins eru fáanleg á www.frettabladid.is VIÐSKIPTI Gengi nær allra félaga á Aðallista Kauphallarinnar hækkaði í viðskiptum gærdagsins. Hlutabréf Símans hækkuðu mest, um 5,06 prósent. Sýn hækkaði um 4,72 prósent, Icelandair Group um 4,02 prósent og TM um 3,99 prósent svo dæmi um mestu hækkanirnar séu nefnd. Viðmælendur Markaðarins á fjár­ málamarkaði röktu í gær hækkan­ irnar meðal annars til áforma kín­ verska f lugfélagsins Juneyao Air um að hefja f lug til Íslands, eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær og til áframhaldandi fjárfestinga erlendra aðila í Marel. – hvj, gar Rekja hækkun til Kínafréttar Í Kauphöllinni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 1 Skilur eftir sig fjögur börn sem óska eftir aðstoð Jóna Júlía lést aðeins 45 ára gömul. Hún var einstæð fjögurra barna móðir. 2 Helg i Selj an seg ir Björgólf eiga erf itt með að „höndl a ein fald­ ar stað reynd ir“ Helgi Seljan leggur til að forstjóri Samherja lesi sér betur til um áhrif fyrirtækisins á namibískan sjávarútveg. 3 Draumur 10 ára barna varð að engu: Sátu heima grátandi „Einu fórnar lömbin í þessu öllu saman eru krakkarnir, sonur minn er grátandi.“ 4 Söfnun fyrir Garðar Smára sem missti aleiguna í bruna Garðar Smári er 22 ára og er á örorku vegna einhverfurófs. Hann missti aleiguna í bruna á Akureyri. FÉLAGSMÁL Í gær var undirritaður verksamningur vegna átján íbúða áfangaheimilis Kvennaathvarfsins og samningur um fjármögnun. Safnað var fyrir verkefninu sem ber heitið Byggjum von um betra líf í þjóðarátaki Á allra vörum árið 2017. „Það hefur verið markmið verk­ efnisins alla tíð að við getum boðið upp á leigu með því besta sem þekk­ ist á höfuðborgarsvæðinu fyrir kon­ urnar sem til okkar leita og börnin þeirra,“ segir Eygló Harðardóttir, verkefnastýra Vonar um betra líf. „Þessar konur og börn eru þær fjöl­ skyldur sem hafa verið í hvað erf­ iðastri stöðu á húsnæðismarkaði.“ Hafist verður handa við bygging­ una 1. febrúar á næsta ári og á fram­ kvæmdum að ljúka sumarið 2021. „Þarna geta konurnar leigt íbúð og átt sitt eigið heimili samhliða því að fá stuðning í athvarfinu,“ segir Eygló. „Við sjáum svo fyrir okkur að hver fjölskylda setji sér markmið um það hvernig hún nýtir tímann þar. Sumir þurfa kannski að ganga frá skilnaði, finna vinnu eða byggja sig upp til þess að fá aftur það öryggi sem hefur verið tekið frá þeim.“ – bdj Kvennaathvarfið byggir átján íbúða áfangaheimili Skrifað undir samninga um nýja áfangaheimilið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 2 8 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 8 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 7 F B 0 7 2 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 5 B -C 9 1 0 2 4 5 B -C 7 D 4 2 4 5 B -C 6 9 8 2 4 5 B -C 5 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 7 2 s _ 2 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.