Fréttablaðið - 28.11.2019, Blaðsíða 12
Þorgeir, Kristófer og
Bragi fara yfir málefni
líðandi stundar.
VIRKA DAGA MILLI
16:00 OG 18:30.
REYKJAVÍK
SÍÐDEGIS
MARKAÐURINN
2 8 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Vera Íslands á gráum lista alþjóðlega
hópsins FATF hefur ekki áhrif á áætl
anir Nasdaq verðbréfamiðstöðvar,
systurfyrirtækis Kauphallarinnar,
um að innleiða nýtt uppgjörskerfi
sem byggir á alþjóðlegum stöðlum
og mun auðvelda erlendum fjár
festum að koma inn á íslenska verð
bréfamarkaðinn.
„Þetta hefur engin áhrif á verk
efnið sjálft. Það mun klárast óháð
þessu og við höfum ekki fundið fyrir
minnkandi áhuga erlendra fjárfesta
á markaðinum vegna málsins,“ segir
Magnús Kristinn Ásgeirsson, fram
kvæmdastjóri Nasdaq verðbréfamið
stöðvar, í samtali við Fréttablaðið.
Eins og greint var frá í Markað
inum í gær var erlendum verðbréfa
reikningum tveggja Íslendinga lokað
vegna veru Íslands á gráa lista FATF.
Erlendu fyrirtækin sem lokuðu
reikningunum áttu það sameiginlegt
að vera í viðskiptum við bandaríska
uppgjörsfyrirtækið Apex Clearing
Corporation sem hefur sett Ísland á
bannlista vegna ákvörðunar FATF.
Á næstu vikum verður innleidd
hér á landi ný Evrópulöggjöf um
samræmt verklag verðbréfaupp
gjörs innan Evrópu (CSDR) en hún
skapar grundvöll fyrir sameiningar
verðbréfamiðstöðva. Evrópskar
verðbréfamiðstöðvar Nasdaq voru
sameinaðar árið 2017 og Nasdaq
verðbréfamiðstöð mun á næsta ári
bætast í þann hóp með sameiningu
við Nasdaq CSD SE. Þá verður Nas
daq verðbréfamiðstöð hluti af sam
ræmdri tækni og þjónustuumgjörð.
„Grálistunin hefur engin áhrif á
sameininguna. Ég held að vandinn
snúi aðallega að Íslendingum sem
vilja eiga í viðskiptum erlendis og fái
ekki þjónustu en síður að erlendum
fjárfestum sem vilja koma hingað.
Við höfum ekki heyrt um að erlendir
aðilar séu orðnir fráhverfir því að
fjárfesta á íslenska markaðinum
út af þessu. Hins vegar getur verið
að grái listinn hafi fælandi áhrif til
lengri tíma en við höfum ekki orðið
vör við bein áhrif enn sem komið
er,“ segir Magnús Kristinn. Þá hefur
Nasdaq verðbréfamiðstöð ekki
fengið athugasemdir frá uppgjörs
fyrirtækinu Clearstream sem er í
þjónustu hjá þeim vegna málsins.
Það er til mikils að vinna með inn
leiðingu á uppgjörskerfi sem byggir á
alþjóðlegum stöðlum að sögn Magn
úsar. Aðgengi erlendra verðbréfa
miðstöðva og fjármálafyrirtækja að
Nasdaq CSD mun auðvelda erlend
um fjárfestum að eiga viðskipti með
íslensk verðbréf. Einnig verður lögð
áhersla á að styðja við innlend fjár
málafyrirtæki í þjónustu þeirra við
erlenda viðskiptavini.
„Það hafa verið hömlur í upp
gjörsumhverfinu, bæði á tæknilegu
hliðinni og í framkvæmd. Upp
gjörin hafa verið framkvæmd upp
á séríslenskan og óstaðlaðan máta
sem hefur fælt erlenda fjárfesta frá.
Alþjóðlegir staðlar munu auðvelda
fjárfestum svo um munar að eiga við
skipti og ljúka uppgjöri með íslensk
verðbréf,“ segir Magnús Kristinn.
Stefnt er að því að ljúka innleiðingu
á kerfinu næsta vor og standa þær
áætlanir óbreyttar þó svo að Ísland
hafi verið sett á gráan lista FATF.
Einstök tilvik um stöðvun
Seðlabanki Íslands fylgist með
greiðslumiðlun milli Íslands og ann
arra landa, meðal annars í samvinnu
við fjármálafyrirtæki hér á landi. Í
svari frá Seðlabankanum við fyrir
spurn Fréttablaðsins segir að enn
sem komið er virðist staða landsins
hjá FATF hafa haft mjög takmörkuð
áhrif.
„Þó er viðbúið að einhverra áhrifa
geti gætt og hafa einstök tilvik komið
upp þar sem greiðslur hafa verið
stöðvaðar eða tafist hjá viðskipta
vinum bankanna. Ekki hafa komið
upp neinir erfiðleikar hjá Seðla
bankanum. Þrátt fyrir að Seðla
bankinn telji ekki að niðurstaða
FATF hafi áhrif á fjármálastöðug
leika á Íslandi og muni ekki hafa
mikil áhrif á greiðslumiðlun milli
landa, hefur bankinn metið það
svo að erfiðara geti orðið að koma á
nýjum viðskiptasamböndum,“ segir
í svari Seðlabankans.
Einnig sé hætt við því að erlend
fjármögnun innlendra aðila geti
orðið erfiðari þar sem einhverjir
erlendir aðilar telji aukinnar áreið
anleikakönnunar þörf, slíkt svari
ekki kostnaði og þeir sleppi því
frekar að eiga í viðskiptum við inn
lenda aðila.
„Mat á þessum áhrifum er ávallt
nokkrum erfiðleikum háð þar sem
meta þarf áhrif af viðskiptum sem
hefðu getað orðið ef ekki væri fyrir
stöðu Íslands hjá FATF.“
Ísland var sett á gráan lista alþjóð
lega hópsins FATF um miðjan októ
ber vegna ófullnægjandi aðgerða
gegn peningaþvætti. Stjórnvöld
vinna nú að því að uppfylla skilyrði
FATF og er vonast til að Ísland kom
ist af listanum í febrúar á næsta ári.
Alþjóðlega matsfyrirtækið S&P
býst ekki við því að staða Íslands
á lista FATF muni hafa marktæk
áhrif á fjárhag eða orðspor íslensku
bankanna. Hún gæti hins vegar
varpað neikvæðu ljósi á íslenska
stofnanaumgjörð ef ekki er brugðist
rétt við. Þetta kom fram í fréttabréfi
S&P sem sent var í kjölfar ákvörðun
arinnar.
Grái listinn ekki steinn
í götu Kauphallarinnar
Það að Ísland sé á gráa lista FATF hefur ekki áhrif á innleiðingu Nasdaq verð
bréfamiðstöðvar á nýju uppgjörskerfi sem á að klárast næsta vor. Seðlabankinn
segir að upp hafi komið tilvik þar sem greiðslur hafa tafist eða verið stöðvaðar.
Auknar kannanir
og fyrirspurnir
Fréttablaðið sendi fyrirspurnir
á Samtök fjármálafyrirtækja
(SFF). Þær sneru að því hvort
samtökin og stofnunin hefðu
orðið vör við neikvæð áhrif af
veru Íslands á gráa lista FATF.
„Við höfum ekki orðið vör við
annað en það sem við var búist,
það er að auknar áreiðanleika-
kannanir eru framkvæmdar
í einhverjum tilfellum og
aukning fyrirspurna,“ segir í
svari SFF sem telur lykilatriði
að stjórnvöld haldi áfram á
þeirri braut sem þau hafa verið
á undanfarið og vinni hörðum
höndum að því að uppfylla úti-
standandi viðmið FATF svo að
landið komist af listanum sem
allra fyrst.
Fjármálaeftirlitið hefur ekki
upplýsingar um að viðskiptum
við íslensk fjármálafyrirtæki
hafi verið sagt upp eða þau
orðið erfið. Eftirlitið mun
áfram fylgjast með því hvort
þeir aðilar sem heyra undir
eftirlit stofnunarinnar verði
fyrir áhrifum af ákvörðun FATF
frá því í október.
Á næstu vikum verður innleidd hér á landi ný Evrópulöggjöf um samræmt verklag verðbréfauppgjörs. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
tfh@frettabladid.is
2
8
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
5
B
-F
F
6
0
2
4
5
B
-F
E
2
4
2
4
5
B
-F
C
E
8
2
4
5
B
-F
B
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
0
7
2
s
_
2
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K