Fréttablaðið - 28.11.2019, Side 12

Fréttablaðið - 28.11.2019, Side 12
Þorgeir, Kristófer og Bragi fara yfir málefni líðandi stundar. VIRKA DAGA MILLI 16:00 OG 18:30. REYKJAVÍK SÍÐDEGIS MARKAÐURINN 2 8 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð Vera Íslands á gráum lista alþjóðlega hópsins FATF hefur ekki áhrif á áætl­ anir Nasdaq verðbréfamiðstöðvar, systurfyrirtækis Kauphallarinnar, um að innleiða nýtt uppgjörskerfi sem byggir á alþjóðlegum stöðlum og mun auðvelda erlendum fjár­ festum að koma inn á íslenska verð­ bréfamarkaðinn. „Þetta hefur engin áhrif á verk­ efnið sjálft. Það mun klárast óháð þessu og við höfum ekki fundið fyrir minnkandi áhuga erlendra fjárfesta á markaðinum vegna málsins,“ segir Magnús Kristinn Ásgeirsson, fram­ kvæmdastjóri Nasdaq verðbréfamið­ stöðvar, í samtali við Fréttablaðið. Eins og greint var frá í Markað­ inum í gær var erlendum verðbréfa­ reikningum tveggja Íslendinga lokað vegna veru Íslands á gráa lista FATF. Erlendu fyrirtækin sem lokuðu reikningunum áttu það sameiginlegt að vera í viðskiptum við bandaríska uppgjörsfyrirtækið Apex Clearing Corporation sem hefur sett Ísland á bannlista vegna ákvörðunar FATF. Á næstu vikum verður innleidd hér á landi ný Evrópulöggjöf um samræmt verklag verðbréfaupp­ gjörs innan Evrópu (CSDR) en hún skapar grundvöll fyrir sameiningar verðbréfamiðstöðva. Evrópskar verðbréfamiðstöðvar Nasdaq voru sameinaðar árið 2017 og Nasdaq verðbréfamiðstöð mun á næsta ári bætast í þann hóp með sameiningu við Nasdaq CSD SE. Þá verður Nas­ daq verðbréfamiðstöð hluti af sam­ ræmdri tækni­ og þjónustuumgjörð. „Grálistunin hefur engin áhrif á sameininguna. Ég held að vandinn snúi aðallega að Íslendingum sem vilja eiga í viðskiptum erlendis og fái ekki þjónustu en síður að erlendum fjárfestum sem vilja koma hingað. Við höfum ekki heyrt um að erlendir aðilar séu orðnir fráhverfir því að fjárfesta á íslenska markaðinum út af þessu. Hins vegar getur verið að grái listinn hafi fælandi áhrif til lengri tíma en við höfum ekki orðið vör við bein áhrif enn sem komið er,“ segir Magnús Kristinn. Þá hefur Nasdaq verðbréfamiðstöð ekki fengið athugasemdir frá uppgjörs­ fyrirtækinu Clearstream sem er í þjónustu hjá þeim vegna málsins. Það er til mikils að vinna með inn­ leiðingu á uppgjörskerfi sem byggir á alþjóðlegum stöðlum að sögn Magn­ úsar. Aðgengi erlendra verðbréfa­ miðstöðva og fjármálafyrirtækja að Nasdaq CSD mun auðvelda erlend­ um fjárfestum að eiga viðskipti með íslensk verðbréf. Einnig verður lögð áhersla á að styðja við innlend fjár­ málafyrirtæki í þjónustu þeirra við erlenda viðskiptavini. „Það hafa verið hömlur í upp­ gjörsumhverfinu, bæði á tæknilegu hliðinni og í framkvæmd. Upp­ gjörin hafa verið framkvæmd upp á séríslenskan og óstaðlaðan máta sem hefur fælt erlenda fjárfesta frá. Alþjóðlegir staðlar munu auðvelda fjárfestum svo um munar að eiga við­ skipti og ljúka uppgjöri með íslensk verðbréf,“ segir Magnús Kristinn. Stefnt er að því að ljúka innleiðingu á kerfinu næsta vor og standa þær áætlanir óbreyttar þó svo að Ísland hafi verið sett á gráan lista FATF. Einstök tilvik um stöðvun Seðlabanki Íslands fylgist með greiðslumiðlun milli Íslands og ann­ arra landa, meðal annars í samvinnu við fjármálafyrirtæki hér á landi. Í svari frá Seðlabankanum við fyrir­ spurn Fréttablaðsins segir að enn sem komið er virðist staða landsins hjá FATF hafa haft mjög takmörkuð áhrif. „Þó er viðbúið að einhverra áhrifa geti gætt og hafa einstök tilvik komið upp þar sem greiðslur hafa verið stöðvaðar eða tafist hjá viðskipta­ vinum bankanna. Ekki hafa komið upp neinir erfiðleikar hjá Seðla­ bankanum. Þrátt fyrir að Seðla­ bankinn telji ekki að niðurstaða FATF hafi áhrif á fjármálastöðug­ leika á Íslandi og muni ekki hafa mikil áhrif á greiðslumiðlun milli landa, hefur bankinn metið það svo að erfiðara geti orðið að koma á nýjum viðskiptasamböndum,“ segir í svari Seðlabankans. Einnig sé hætt við því að erlend fjármögnun innlendra aðila geti orðið erfiðari þar sem einhverjir erlendir aðilar telji aukinnar áreið­ anleikakönnunar þörf, slíkt svari ekki kostnaði og þeir sleppi því frekar að eiga í viðskiptum við inn­ lenda aðila. „Mat á þessum áhrifum er ávallt nokkrum erfiðleikum háð þar sem meta þarf áhrif af viðskiptum sem hefðu getað orðið ef ekki væri fyrir stöðu Íslands hjá FATF.“ Ísland var sett á gráan lista alþjóð­ lega hópsins FATF um miðjan októ­ ber vegna ófullnægjandi aðgerða gegn peningaþvætti. Stjórnvöld vinna nú að því að uppfylla skilyrði FATF og er vonast til að Ísland kom­ ist af listanum í febrúar á næsta ári. Alþjóðlega matsfyrirtækið S&P býst ekki við því að staða Íslands á lista FATF muni hafa marktæk áhrif á fjárhag eða orðspor íslensku bankanna. Hún gæti hins vegar varpað neikvæðu ljósi á íslenska stofnanaumgjörð ef ekki er brugðist rétt við. Þetta kom fram í fréttabréfi S&P sem sent var í kjölfar ákvörðun­ arinnar. Grái listinn ekki steinn í götu Kauphallarinnar Það að Ísland sé á gráa lista FATF hefur ekki áhrif á innleiðingu Nasdaq verð­ bréfamiðstöðvar á nýju uppgjörskerfi sem á að klárast næsta vor. Seðlabankinn segir að upp hafi komið tilvik þar sem greiðslur hafa tafist eða verið stöðvaðar. Auknar kannanir og fyrirspurnir Fréttablaðið sendi fyrirspurnir á Samtök fjármálafyrirtækja (SFF). Þær sneru að því hvort samtökin og stofnunin hefðu orðið vör við neikvæð áhrif af veru Íslands á gráa lista FATF. „Við höfum ekki orðið vör við annað en það sem við var búist, það er að auknar áreiðanleika- kannanir eru framkvæmdar í einhverjum tilfellum og aukning fyrirspurna,“ segir í svari SFF sem telur lykilatriði að stjórnvöld haldi áfram á þeirri braut sem þau hafa verið á undanfarið og vinni hörðum höndum að því að uppfylla úti- standandi viðmið FATF svo að landið komist af listanum sem allra fyrst. Fjármálaeftirlitið hefur ekki upplýsingar um að viðskiptum við íslensk fjármálafyrirtæki hafi verið sagt upp eða þau orðið erfið. Eftirlitið mun áfram fylgjast með því hvort þeir aðilar sem heyra undir eftirlit stofnunarinnar verði fyrir áhrifum af ákvörðun FATF frá því í október. Á næstu vikum verður innleidd hér á landi ný Evrópulöggjöf um samræmt verklag verðbréfauppgjörs. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@frettabladid.is 2 8 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 7 F B 0 7 2 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 5 B -F F 6 0 2 4 5 B -F E 2 4 2 4 5 B -F C E 8 2 4 5 B -F B A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 A F B 0 7 2 s _ 2 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.