Fréttablaðið - 28.11.2019, Blaðsíða 54
BÆKUR
Dimmumót
HHHHH
Steinunn Sigurðardóttir
Fjöldi síðna: 92
Útgefandi: Mál og menning / For-
lagið
Jöklunum blæðir út „eins og hverju
öðru helsærðu dýri“ segir í bókinni
Dimmumót sem er nýjasta ljóða-
bók Steinunnar Sigurðardóttur.
Er þar dregin upp heldur dökk
mynd af því sem bíður, vegna þess
að „í því glæra blóði mun hálfur
heimurinn hrekkjast og drekkjast“
(60). Ljóð bókarinnar eru sem sagt
helguð hörfandi jöklum landsins
og hamfarahlýnun jarðar.
Hvítagullfjallið ofar öllu
ljós landsins.
Það fer og skuggarnir verða. (26)
Steinunn Sigurðardóttir (f. 1950)
á fimmtíu ára skáldaafmæli um
þessar mundir og Dimmumót er
hennar tíunda ljóðabók. Stein-
unn var aðeins 19 ára gömul þegar
hennar fyrsta bók, Sífellur, kom
út en frá þeim tíma hefur hún
jöfnum höndum gefið út ljóðmæli
og skáldsögur og hlotið margvís-
legar viðurkenningar og verðlaun
fyrir ritstörf sín, svo sem verðlaun
Jónasar Hallgrímssonar og íslensku
bókmenntaverðlaunin. Hún hefur
lengi látið sig varða náttúru lands-
ins og umhverfismál á ýmsum
vettvangi. Þessi ljóðabók er þó sú
afdráttarlausasta sem frá henni
hefur komið um þau efni.
Inn í lýsingar á hopandi jöklum,
saman við hughrif og tilfinningar
sem sú þróun vekur, tvinnast upp-
vaxtarsaga telpukorns sem svipar
sterklega til Steinunnar sjálfrar.
Ber þar nýrra við, því hingað til
hefur Steinunn haldið
sjálfri sér utan við
eigin skáldverk. Hér
hins vegar byggir hún
á bernskuupplifunum
þegar hún varði hluta
æsku sinnar í návist
jökla, einkum í Fljóts-
hlíð, eins og fram
hefur komið í nýlegu
viðtali. Þannig fær
„stelpan“ í ljóðabók-
inni að kynnast sveit-
inni þar sem jökull-
inn gnæfir mikill og
bjartur við himin,
táknmynd varanleik-
ans sem þó er á hverfanda hveli.
Jökullinn, svo sterkur og máttugur
sem hann virðist, er bara vatn í
fjötrum þegar allt kemur til alls,
ofurseldur umhverfi sínu og lofts-
lagi. Vatn sem leysist og rennur
burt. Þannig verður Vatnajökull
að tvíræðu tákni hugar og heims.
Vonir og draumar hverfa á braut,
varanleg gildi sömuleiðis. Allt er
breytingum undirorpið og nafn
jökulsins felur í sér dystópískan
spádóm um um afdrif þiðnandi
vatna-jökla.
Myndmál ljóðanna er opið og
orðfærið afdráttarlaust. Menn-
irnir eru „móðurmorðingjar“ (80)
sem hirða ekki um jörðina heldur
drepa hana hægt og örugglega með
aðgerðum sínum og aðgerðaleysi.
Hafið súrnar og plastvæðist.
Garmurinn fiskur étur plastið og
við étum garminn.
Frýs í æðum plastblóð andskot-
ans. (77)
Titill bókarinnar
Dimmumót geymir
myrkan grun. Nafn-
ið mun vera skaft-
fellska og merkja
ljósaskipti. Lítill vafi
leikur á því að ljósa-
skiptin boða nótt
en ekki dag. Þann
skilning staðfestir
röðun ljóðanna í
nokkra bálka, sá fyrsti
nefnist „Það kemur í
ljós“ en sá síðasti „Það
hverfur“.
Eins og jafnan áður í
ljóðabókum Steinunnar getur hér
víða að líta tilvísanir í bókmennta-
hefðina, jafnt Ritninguna sem verk
íslenskra skálda. Í anda Jónasar
Hallgrímssonar skartar textinn
nýyrðum og nýgervingum sem
auðga ljóðmálið og votta öruggt
vald höfundar síns á íslensku máli:
Fagurkalt haf, dulareyjan ósnert-
anlega, ísfiðrildislíf, eilífðarfjall,
harmsól og hávaðableik kvöldsól
eru aðeins nokkur dæmi þar um,
valin af handahófi.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
NIÐURSTAÐA: Kraftmikil og
myndræn tjáning á heimsins
bráðasta samtímavanda.
Hverfandi hvel
BJARNI ARA
LATIBÆR
SIGGA KLINGJÓLASVEINAR
HELGA MÖLLER
ÍRIS LIND & SJONNI
INGÓ VEÐURGUÐ
Arnaldur er á toppnum eins og venjulega. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
Félag íslenskra bókaútgefenda hefur birt sölulista íslenskra bóka fyrir tímabilið 1.-24. nóv-
ember. Ekki kemur á óvart að Arn-
aldur Indriðason situr þar í fyrsta
sæti með Tregastein. Andri Snær
Magnason má vel við una en hann
er í öðru sæti með hina rómuðu bók
sína Um tímann og vatnið. Glæpa-
sagnadrottningin Yrsa Sigurðar-
dóttir er í þriðja sæti með Þögn.
Þinn eigin tölvuleikur eftir Ævar
Þór Benediktsson er í því fjórða og
Leikskólalögin okkar í því fimmta.
Arnaldur er sömuleiðis í topp-
sætinu á netsölulista Eymundsson
fjórðu vikuna í röð. Í öðru sæti er
ný bók um Orra óstöðvandi eftir
Bjarna Fritzson og í því þriðja er
Innf lytjandinn eftir Ólaf Jóhann
Ólafsson. Þar á eftir koma Þögn
eftir Yrsu Sigurðardóttur og Um
tímann og vatnið eftir Andra Snæ
Magnason.
Bókmenntaunnendur bíða svo
spenntir eftir tilnefningum til
Íslensku bókmenntaverðlaunanna
sem kynntar verða um helgina.
Eftir helgina verður síðan tilkynnt
um tilnefningar til Fjöruverð-
launanna, bókmenntaverðlauna
kvenna. – kb
Glæpasagnakóngurinn Arnaldur
situr sem fastast á toppnum
2 8 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R42 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
5
B
-B
A
4
0
2
4
5
B
-B
9
0
4
2
4
5
B
-B
7
C
8
2
4
5
B
-B
6
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
7
2
s
_
2
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K