Fréttablaðið - 28.11.2019, Page 23

Fréttablaðið - 28.11.2019, Page 23
Við þek kjum öll merk in. Brandararnir sem skilja eftir sting í maga. Tvíræða hrósið. Grófa orðfærið. Útilokun frá verkefnum eða samstarfi. Óvið- eigandi skilaboð í gegnum sam- félagsmiðla, SMS eða tölvupóst. Starandi augnaráð upp og niður líkamann. Snertingu sem varir of lengi. Spurningar um líkamann eða kyn sem gerir viðtakanda orð- lausa(n). Óþarf lega mikil nálægð. Daður sem breytist í pressu um að látið sé undan vilja annars. Allt eru þetta dæmi um kyn- bundna eða kynferðislega áreitni sé hún í óþökk þess sem fyrir henni verður. Hegðunin einkennist af vanvirðingu. Hún misbýður, ógnar, niðurlægir, auðmýkir eða móðgar. Hún tengist nær alltaf misbeitingu valds og valdaójafnvægi, en þekkt er að fordómar gegn kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, fötlun, skertri star fsgetu, aldri, kyn- hneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu auka líkurnar á að misrétti þrífist á vinnustaðnum. Það er þekkt að sá sem fyrir áreitni, misrétti eða öðru of beldi verður stígi ekki fram af því það sé að þeirra mati ekki nægilega alvarlegt, það sé erfitt, óþægilegt eða viðkomandi kenni sér um. Samt getur áreitnin setið lengi í viðkomandi, sem gjarnan leitar til einhvers; fjölskyldu, vina eða samstarfsfélaga. Sumum finnst málið aldrei hafa verið gert upp og upplifa minni starfsánægju og óöryggi í vinnunni. Það getur leitt af sér verri andlega eða líkamlega heilsu, að viðkomandi íhugi upp- sögn, segi upp störfum eða tapi tekjum af öðrum orsökum. Áreitni er því ekki bara málefni þess ein- staklings sem fyrir henni verður heldur hefur hún áhrif á fjölskyldu og vini viðkomandi, vinnustaðinn sjálfan og samfélagið allt. Við eigum öll rétt á því að komið sé fram við okkur af virðingu á vinnustaðnum. Við eigum rétt á vernd atvinnurekanda gegn kyn- bundinni og kynferðislegri áreitni og öðru of beldi á vinnustað af hálfu yfirmanna, samstarfsmanna og einstaklinga sem við þurfum að eiga í samskiptum við vegna vinn- unnar, til dæmis skjólstæðinga eða viðskiptavina. Bir tingar my ndir áreitni og of beldis geta verið ýmiss konar. Í mörgum reynslusögum þolenda á Íslandi hefur komið fram að það sé auðveldara að átta sig á áreitni þegar hún fer fram með orðum, en erfiðara þegar hún er líkamleg eða táknræn. Samkvæmt þeim reglum sem gilda um áreitni á vinnustað skiptir þó ekki máli hvort áreitnin eða of beldið sé með orðum, líkam- leg eða táknræn. Öll kynbundin og kynferðisleg áreitni er bönnuð. Það er ekki annarra að ákveða hvar mörkin liggja Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB Upplifun okkar getur verið mis- munandi og vinnustaðamenning sömuleiðis. Lögin eru þó skýr: upplifun þess sem fyrir hegðuninni verður sker úr um hvort um áreitni eða of beldi sé að ræða. Það er ekki annarra að meta hvernig við upp- lifum samskipti eða tiltekna hegð- un heldur okkar sjálfra. Það á engin(n) að þurfa að eiga á hættu að vera áreitt(ur) í vinnunni. Atvinnurekendur hafa skyldu sam- kvæmt lögum til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að áreitni komi fyrir til að byrja með og bregðast strax við ef þeir hafa vitneskju um áreitni og stöðva hana. Hættum að f lokka eftir úreltum hugmyndum um hvar mörkin liggja milli áreitni eða óþæginda. Hvers kyns áreitni er alvarleg og hana verður að taka alvarlega. Hættum að flokka eftir úr- eltum hugmyndum um hvar mörkin liggja milli áreitni eða óþæginda. Hvers kyns áreitni er alvarleg og hana verður að taka alvarlega. Greinin er liður í 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Mánudag til Laugardags Opnunartímar 10:00 - 18:00 BLACK FRIDAY! Reykjavík • Mörkin 3 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 BLACKFRIDAY STÚTFULL UR AF SPENNAN DI GRÆJUM TILBOÐS BÆKLING UR Af af tölvuskjám Allt að 40%AfslátturAf yfir 300 fartölvum Allt að50.000Afsláttur Af yfir 100 All in One tölvum Allt að30.000Afsláttur Af yfir 100 leikjaturnum Allt að50.000Afsláttur Af yfir 1.000 vörum 90%Afsláttur Allt að 6.993MI BAND 4 HEILSUÚRGlæsilegt vatnsvarið íþrótta- snjallúr með snertiskjá VERÐ ÁÐUR 49.990 VERÐ ÁÐUR 6.990VERÐ ÁÐUR 9.990 29.994PS4 SLIM 500GBÓtrúlegt verð á þessari ofurvinsælu leikjatölu TILBOÐ DAGSINS Gildir aðeins föstudag Aðeins 50 stk1 stk á mann! 30%Afsláttur Aðeins 50 stk1 stk á mann! 40%Afsláttur TILBOÐ DAGSINS Gildir aðeins fimmtudag TILBOÐ DAGSINS Gildir aðeins laugardag 1.748T&V FREI BT 4.1Öflugur 16W RMS þráðlaus ferðahátalari með bassa! 16W RMS Aðeins 50 stk1 stk á mann! 75%Afsláttur 5 LITIR 149.990YOGA 730Lúxus Yoga fartölva með 360° Dolby Atmos hljóm fingrafaraskanna, fislétt og nett aðeins 1,12kg. VERÐ ÁÐUR 199.990 Aðeins 50 stk1 stk á mann 50.000Afsláttur VERÐ ÁÐUR 9.990 1.stk á mann OMNI+ 20.000mAh Trust hleðslubanki með Quick Charge QC3.0 Micro & USB-C hraðhleðslu sem hleður tvö snjalltæki í einu 2.977 ALLA VIKUNA 25%Afsláttur IDEACENTRE AIO 22” FHD IPS skjátölva, Intel Pentium örgjörvi, falin FHD vefmyndavél og þráðlaust AC net VERÐ ÁÐUR 79.990 59.992 ALLA VIKUNA 70%Afsláttur 13” FHD IPS 1920x1080 snertiskjár Intel i7-8565U 4.6GHz Turbo Quad Core 16GB minni DDR4 2400MHz 512GB SSD NVMe diskur YFIR 1.000 VÖRUR Á ALLT AÐ 90% AFSLÆTTI ALLA VIKUNA B irt m eð fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og m yndabrengl 28. nóvem ber 2019 • B lack Friday tilboð gilda 25.-30. nóvem ber eða m eðan birgðir endast. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 23F I M M T U D A G U R 2 8 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 2 8 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 7 F B 0 7 2 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 5 B -E 1 C 0 2 4 5 B -E 0 8 4 2 4 5 B -D F 4 8 2 4 5 B -D E 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 7 2 s _ 2 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.