Fréttablaðið - 28.11.2019, Síða 30
FÓTBOLTI Það er óhætt að segja að
Pólverjinn Robert Lewandowski sé
markaskorari af guðs náð. Lewand
owski skoraði fjögur marka þýska
liðsins Bayern München í 60 sigri
gegn Rauðu stjörnunni í riðla
keppni Meistaradeildar Evrópu fyrr
í þessari viku en þetta er í annað
skipti sem hann gerir það í þessari
keppni.
Það tók Lewandowski einungis 14
mínútur að skora þessi fjögur mörk
en enginn hefur náð að skora jafn
mörg mörk á svo skömmum tíma í
leik í Meistaradeildinni. Þá er pólski
framherjinn annar leikmaðurinn
til þess að skora fjögur mörk oftar
en einu sinni í keppninni en Lionel
Messi hefur sömuleiðis tekist að
gera það.
Lewandowski hefur nú skorað
27 mörk í fyrstu 20 leikjum Bayern
München í öllum keppnum á yfir
standandi leiktíð en sigurleikurinn
gegn Fortuna Düsseldorf í þýsku
efstu deildinni um síðustu helgi
var fyrsti leikurinn þar sem hann
var ekki á meðal markaskorara hjá
liðinu. Þar lagði Lewandowski hins
vegar sitt af mörkum með því að
leggja upp mark Philippe Coutinho
í þeim leik.
Þessi 31 árs gamla markamaskína
á fjöldann allan af metum tengdum
markaskorun. Meðal þeirra er að
hann er markahæsti erlendi leik
maðurinn í sögu þýsku efstu deild
arinnar en Lewandowski hefur
skorað 211 mörk fyrir Borussia
Dortmund og Bayern München.
Þá skoraði hann fimm mörk á níu
mínútum í 90 sigri Bæjara á móti
Wolfsburg en það er sneggsta fimma
í sögu þýsku efstu deildarinnar.
Kominn upp að hlið goðsögn
hjá Bayern München
Mörkin hans 61 fyrir pólska
landsliðið gera Lewandowski að
markahæsta leikmanni í sögu
liðsins. Pólverjar hafa kosið hann
besta leikmann ársins sjö sinnum
sem er met. Þá hefur Lewandowski
einu sinni verið kjörinn íþrótta
maður ársins í Póllandi en það var
árið 2015.
Eins og sakir standa er Lewand
owski markahæsti leikmaður í
riðlakeppni Meistaradeildarinnar
með 10 mörk en hann varð þriðji
f ljótasti leikmaðurinn til þess að
skora 50 mörk í keppninni með því
að gera það í 77 leikjum. Lewand
owski hefur skorað 63 mörk alls
í keppninni sem gerir hann að
fimmta markahæsta leikmann
inum í sögu keppninnar.
Af þessum 63 mörkum hafa 46
þeirra komið í búningi Bayern
München sem gerir hann að marka
hæsta leikmanni félagsins í sögu
þeirrar keppni. Þetta var í þriðja
skipti sem Lewandowski skorar
þrjú mörk eða meira á leiktíðinni
sem er enn afar ung en hann hefur
skorað 51 mark á almanaksárinu
sem fer senn að ljúka.
Lewandowski hefur skorað 16
mörk í fyrstu 12 leikjum Bayern
München í deildinni í vetur en það
gerir rúmlega 1,3 mörk í leik. Nái
hann að halda uppteknum hætti
fram á vorið mun hann slá met
Gerds Müller yfir f lest mörk á einni
leiktíð í þýsku efstu deildinni. Müll
er skoraði 40 mörk tímabilið 1971
til 1972 en Lewandowski myndi
skora 45 mörk haldi hann áfram að
skora jafn mikið og hann hefur gert
hingað til.
Næsta mark Lewandowskis fyrir
Bayern München gerir hann að
næstmarkahæsta leikmanni í sögu
félagsins en hann er jafn KarlHeinz
Rummenigge, núverandi stjórnar
formanni hjá félaginu, með 218
mörk fyrir liðið. Hæpið er hins
vegar að Lewandowski takist að
skáka Müller sem er langt á undan
Lewandowski og Rummenigge á
toppi þess lista, en hann skoraði 564
mörk á sínum tíma.
Ferillinn var afar nálægt því að
taka aðra stefnu en síðar varð
Leikmannaferill Lewandowskis
var hársbreidd frá því að fara aðra
leið en hann hefur farið en gosið í
Eyjafjallajökli árið 2010 varð til
þess að hann fór ekki til Blackburn
Rovers eins og til stóð. Sam Allar
dyce sem var þá knattspyrnustjóri
Blackburn Rovers vantaði tilfinnan
lega stöðugan markaskorara í lið
sitt og var með Lewandowski í huga
til þess að bæta úr því.
Allardyce hafði farið með njósna
teymi sínu að sjá Lewandowski í
leik með Lech Poznan og leist þeim
vel á framherjinn sem hafði skorað
21 mark í 34 leikjum fyrir pólska
liðið. Viðræður voru komnar langt á
milli forráðamanna liðanna. Þegar
Lewandowski átti að fljúga til Eng
lands til þess að ganga frá kaupum
og kjörum lágu öll f lug niðri til
Bretlands vegna gossins í Eyjafjalla
jökli. Í kjölfarið fékk John Williams,
þáverandi stjórnarformaður hjá
Blackburn Rovers, bakþanka yfir
kaupverðinu sem var um það bil
fjórar milljónir punda og ekkert
varð af kaupunum.
Lewandowski hefur reglulega
verið orðaður við önnur stórlið í
Evrópu og hefur Real Madrid þá
helst verið nefnt til sögunnar. Hann
nefndi það á einum tímapunkti
að hann vildi yfirgefa herbúðir
Bayern München þar sem hann
væri ekki metinn að verðleikum.
Forráðamenn þýska liðsins tóku
það ekki í mál að hleypa Lewan
dowski frá félaginu og hafa líklega
brugðist við með því að hækka
launaték ka hans umt alsver t .
hjorvaro@frettabladid.is
Ótrúleg tölfræði hjá Lewandowski
Robert Lewandowski skoraði fjögur marka Bayern München þegar liðið lagði Rauðu stjörnuna að velli í Meistaradeild Evrópu í
vikunni. Lewandowski bætti þar með enn eitt metið á ferli sínum og fikraði sig upp listann yfir markahæstu leikmenn félagsins.
Pólverjinn Robert Lewandowski fagnar fjórða markinu sem hann gerði fyrir Bayern München á móti Rauðu stjörnunni í vikunni. NORDICPHOTOS/GETTY
Lewandowski er orðinn
næst markahæsti leikmaður
i sögu Bayern München.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Frjálsíþrótta
konan Ásdís Hjálmsdóttir fékk í
vikunni gullverðlaunin í kúluvarpi
fyrir Smáþjóðaleikana 2017, 908
dögum eftir að keppni lauk. Ásdís,
sem er þrefaldur Ólympíufari í
spjótkasti, hlaut silfurverðlaun
á sínum tíma og þurfti að horfa á
eftir gullverðlaununum til Gavriella
Fella frá Kýpur en Fella féll á lyfja
prófi og var Ásdísi því úrskurðaður
sigur. Með því féll met Fella einnig
úr gildi en hún átti besta kast í sögu
kúluvarps kvenna á Smáþjóðaleik
unum sem fóru fram í San Marínó.
Það þýðir einnig að Thelma Krist
jánsdóttir náði fjórða sætinu í kúlu
varpinu en hana vantaði tæpan
metra til að ná í verðlaunasæti.
Fella átti besta kastið í San Mar
ínó þegar hún kastaði 15,81 metra
en besta kast Ásdísar var 15,39
metrar. Ásdís hefur tekið miklum
framförum í kúluvarpi á síðustu
árum og bætti fyrr á þessu ári 27
ára gamalt Íslandsmet í kúluvarpi
þegar hún átti kast upp á 16,53
metra. Þá á Ásdís einnig Íslands
metið í kúluvarpi innanhúss sem
er 15,96 metrar.
Ásdís vann því tvöfalt á Smá
þjóðaleikunum eftir að hafa unnið
öruggan sigur í spjótkastinu en hún
var stödd hér á landi til að halda
erindi í Afreksbúðum ÍSÍ þar sem
hún sagði frá ferli sínum. ÍSÍ nýtti
því tækifærið til að afhenda Ásdísi
gullverðlaunin eftir að henni var til
kynnt fyrr á árinu að henni hefði
verið úrskurðaður sigur í San Mar
ínó.
„Ég fékk að vita af þessu fyrr á
árinu og það stóð til að af henda
mér þessi verðlaun fyrr en þetta
hentaði vel enda var ég að halda
fyrirlestur hjá ÍSÍ. Það var í sumar
sem ég sendi silfurverðlaunin aftur
heim til Íslands til þess að þau gætu
farið til stelpunnar sem lenti í þriðja
sæti,“ sagði Ásdís sem býr og æfir í
Svíþjóð.
„Þetta er auðvitað langt ferli, ef
það finnst eitthvert efni þarf að
rannsaka það betur og ég veit ekki
hvort hún neitaði sök en þetta er
auðvitað ekki í lagi. Það á ekki að
komast upp með þetta og það er
auðvitað grafalvarlegt að hún hafi
fallið á lyfjaprófi. Það þarf að taka
harkalega á þessum málum þó að ég
taki glöð við þessum verðlaunum.“
Gullverðlaunin voru Ásdísi kær
komin enda í fyrsta sinn sem hún
vinnur til gullverðlauna á erlendri
grund í annarri íþrótt en spjót
kasti. Hún hefur um árabil verið
ein fremsta frjálsíþróttamanneskja
landsins og stefnir á fjórðu Ólymp
íuleikana í röð í Tókýó næsta sumar.
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég vinn
til gullverðlauna í alþjóðlegu móti
í annarri íþróttagrein en spjót
kasti. Ég hef fengið silfurverðlaun í
kringlukasti á Smáþjóðaleikunum
og bronsverðlaun í kúluvarpi á NM
unglinga en þetta var fyrsti sigur
inn. Þetta er ákveðinn áfangi á ferl
inum sem ég er stolt af.“ – kpt
Fékk gullverðlaunin loksins afhent 908 dögum síðar
Ásdís með gullverðlaunin um hálsinn í höfuðstöðvum ÍSÍ í gær. MYND/ÍSÍ
Það er auðvitað
graf alvarlegt að hún
hafi fallið á lyfjaprófi og það
þarf að taka harkalega á
þessu þó að ég taki glöð við
þessum verðlaunum.
Ásdís Hjálmsdóttir
2 8 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R30 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
5
C
-0
9
4
0
2
4
5
C
-0
8
0
4
2
4
5
C
-0
6
C
8
2
4
5
C
-0
5
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
2
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K