Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.11.2019, Qupperneq 58

Fréttablaðið - 28.11.2019, Qupperneq 58
HÖFUNDURINN SÝNIR HVERNIG KONURNAR KOMU INN Í TILVIST ÞESSARA HEIMSPEKINGA OG GJÖRBYLTU EKKI EINUNGIS LÍFI ÞEIRRA HELDUR EINNIG HUGSUNAR- HÆTTI OG OLLU ÞEIM SANN- KÖLLUÐU HUGARVÍLI – Í HEIMSPEKILEGRI MERKINGU. Hvað? Hvenær? Hvar? Fimmtudagur hvar@frettabladid.is 28. NÓVEMBER 2019 Hvað? List í almannarými − ráð- stefna: Þýðing og uppspretta Hvenær? 10.00-16.00 Hvar? Kjarvalsstaðir Ólöf Sigurðardóttir sýningarstjóri opnar ráðstefnuna og Sigurður Traustason deildarstjóri stýrir henni. Hvað? Útgáfuhóf – Lærum saman Hvenær? 17.00-18.00 Hvar? Kópavogsskóli Kristín Arnardóttir sérkennari kynnir námsefni fyrir börn 5 til 8 ára. Hvað? Fjarstjörnur og fylgihnettir Hvenær? 17.00-19.00 Hvar? Gallerí Grótta, Eiðistorgi, Seltjarnarnesi Katrín Matthíasdóttir opnar sýningu. Hvað? Lífið er leikfimi Hvenær? 12.15-13.00 Hvar? Listaháskóli Íslands, Laugarnesvegi 91, Reykjavík Halldóra Arnardóttir, doktor í listfræði og sýningarstjóri, f lytur opinn fyrirlestur um listamann- inn Örn Inga Gíslason. Hvað? Útgáfufagnaður Hvenær? 17.00 Hvar? Veröld – hús Vigdísar Birna Arnbjörnsdóttir, Jón Atli Benediktsson, Birna Bjarnadóttir, Gauti Kristmannsson og Guð- bergur Bergsson taka til máls í tilefni útgáfu bókanna Heiman og heim – Sköpunarverk Guð- bergs Bergssonar og Skáldið er eitt skrípatól – Um ævi og skáldskap Fernando Pessoa. Tómas R. og Ómar Guðjónsson spila. Allir vel- komnir, léttar veitingar í boði. Hvað? Gengið kringum Mont Blanc Hvenær? 20.00 Hvar? Snorrastofa, Reykholti Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir segir frá í Prjóna-bóka-kaffi Hvað? Laufabrauðsskurður Hvenær? 15.00 Hvar? Bókasafn Kópavogs Guðrún Sigurgeirsdóttir mat- reiðslukennari kennir laufa- brauðsskurð. Hver gestur fær eina köku til að æfa sig á. Þeir eru hvattir til að koma með laufabrauðsjárn ef kostur er. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Maður finnur keppnisandann þegar hann er að lýsa kenningum þessara höfunda. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Tími töframanna er bók eftir þýska heimspek-inginn Wolfram Eilen-berger sem Arthúr Björg v in Bol la son hef ur þýtt á íslensku. Í bókinni er fjallað um viðhorf og kenningar fjögurra heimspekinga: Heideggers, Wittgensteins, Ben- jamins og Cassirers. Bókin var metsölubók í Þýskalandi í fyrra og hefur setið á metsölulistum á Ítalíu og Spáni. „Þetta er bók um áratug mikilla heimspekinga, 1919-1929, aldar- spegill þýskrar hugsunar og þýskrar heimspeki á mjög sérstökum tíma. Þarna koma fjórir hugsuðir við sögu sem voru að reyna að átta sig á því hvert stefndi í heiminum,“ segir Arthúr Björgvin. „Hildarleikur fyrri heimsstyrjaldar var að baki þar sem manneskjan fór yfir öll villimanns- leg mörk og búið var að skekja undir stöður vestrænnar menning- ar. Þá komu fram þessir fjórir menn: Wittgenstein, Benjamin, Heidegger og Cassirers og reyndu að átta sig á stöðu mannsins í heimi sem var á hverfanda hveli. Þetta er ekki aðeins saga hugsun- ar þessara fjögurra manna heldur líka saga Weimarlýðveldisins og örlagaríks tíma í Þýskalandi og Evrópu allri. Það sem gerir bókina spennandi er einkum tvennt. Í fyrsta lagi eru það þeir tímar sem hún lýsir. Tilraun þessara fjögurra hugsuða til að fóta sig í ráðvilltri veröld sem er að mörgu leyti lík þeim tímum sem við lifum í dag. Þarna voru að koma fram öfga- fullar þjóðernishreyfingar, það er einnig að gerast núna. Þarna voru alls konar alræðisherrar við sjón- deildarhring, og þeir eru það líka á okkar tímum. Það ríkti hugmynda- leg upplausn og rótleysi, hugsjónir voru hrundar og menn vissu ekki hvert stefndi. Andlegt ástand og menningarástand í Evrópu á okkar dögum er mjög svipað því sem þarna var. Hinn þátturinn sem er ekki síðri er að höfundurinn dýpkar mjög myndina af þessum heimspeking- um með því að fara í sérstaka þætti í þeirra eigin lífi. Þar koma ástríður þeirra og ástir ekki síst við sögu og það gerir bókina að mergjaðri lesn- ingu á köflum.“ Sterkur ástarbrími Arthúr Björgvin nefnir dæmi um þetta. „Höfundurinn segir frá því þegar Martin Heidegger, kvæntur maður, varð ástfangin af Hönnu Arendt sem var gyðingakona. Það er kaldhæðni örlaganna að þessi postuli nasismans seinna meir skuli verða ástfanginn af gyðinga- konu og það var engin smáást. Þau urðu gagntekin hvort af öðru. Þessi ástarbrími varð svo sterkur að hann leiddi til þess að Heidegger lenti í vandræðum með sína eigin heim- speki, sína eigin hugsun og kenn- ingar. Þær voru allar mjög sjálfmið- aðar, en allt í einu kom eitthvert „þú“ sem ruglaði hann gjörsamlega í ríminu og varð örlagavaldur í lífi hans og hugsun. Walter Benjamin er annað dæmi, þekktur sem róttækur marxískur höfundur en var það alls ekki til að byrja með. Þegar ég var að þýða þessa bók, sem var æði vanda- samt verk á köflum, lenti ég í tölu- verðu bjástri með hans fyrri rit þar sem hann var mjög borgaralegur í hugsun, gagntekinn af heimspeki Kants og Hegels og afskaplega tor- ræður. Síðan kynnist hann bols- évískri byltingarkonu, Asja Lacis, sem heillaði hann upp úr skónum. Hann varð gagntekinn af henni og hún umturnaði allri hugsun hans. Hennar vegna breyttist hann á skömmum tíma í róttækan marx- ista. Eins og spennandi kappleikur Arthúr Björgvin Bollason er þýðandi bók arinnar Tími töframanna eftir þýska heimspekinginn Wolfram Eilenberger. Bók um áratug mikilla heimspekinga. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Höfundurinn sýnir hvernig kon- urnar komu inn í tilvist þessara heimspekinga og gjörbyltu ekki einungis lífi þeirra heldur einnig hugsunarhætti og ollu þeim sann- kölluðu hugarvíli – í heimspekilegri merkingu.“ Ráðgjafi Joachims Löw Wolfram Eilenberger er þekktur heimspekingur og heldur úti föst- um heimspekiþætti í svissneska sjónvarpinu. „Hann er líka mikill áhugamaður um fótbolta,“ segir Arthúr Björgvin. „Hann sagði við mig í símaspjalli sem ég átti við hann úti fyrir skömmu: Ef þú ferð að kynna bókina á Íslandi þá gæti verið gaman að nefna við Íslendinga, sem ég veit að eru margir áhugasamir um knattspyrnu, að ég sit í þjóðar- ráði þýska landsliðsins sem einn af ráðgjöfum Joachims Löw, þjálfara þýska landsliðsins í fótbolta. Sumir hafa einmitt sagt að þessi bók sé eins og spennandi kappleik- ur. Eilenberger er að lýsa átökum sem minna um sumt á íþróttir, nema þarna er á ferð það sem mætti kalla „hugsanafótbolta“. Maður finnur keppnisandann þegar hann er að lýsa kenningum þessara höfunda og dramatískum átökum þeirra.“ Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is Slakaðu á með Slö g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is lakaðu á eð lö g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, ki pir og spe na g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartslá tur g Kvíði g Streita g Pi ringur Einke i agnesí skorts i t.i 2 8 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R46 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 8 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 7 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 5 B -D C D 0 2 4 5 B -D B 9 4 2 4 5 B -D A 5 8 2 4 5 B -D 9 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s _ 2 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.