Fréttablaðið - 28.11.2019, Side 68

Fréttablaðið - 28.11.2019, Side 68
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is HELMINGURINN KEMST INN, EN STUNDUM ER EINHVER MJÖG HÆFILEIKARÍKUR SEM ENDAR EKKI Í LOKAHÓPNUM. ÞAÐ ÞARF AÐ BÚA TIL BEKK SEM VERÐUR AÐ GERA UNNIÐ ALVEG ÓTRÚ- LEGA NÁIÐ SAMAN Í ÞRJÚ ÁR. Fannar ÉG FANN MIG TIL DÆMI Í SPUNANUM, Í IMPROV ÍSLAND. ÞAR ER ÉG BÚIN AÐ VERA MEÐ FRÁ UPPHAFI, EÐA Í FIMM ÁR. ÉG ER AÐ NOTA ÞAU VERKFÆRI SEM ÉG FÉKK ÞAÐAN ALVEG SJÚKLEGA MIKIÐ Í NÁMINU. Björk stod2.is 1817 Tryggðu þér áskrift HEFST FÖSTUDAG Næst a vor stef na annars árs nemar í leiklist við Lista­háskóla Íslands til Vilníus í Litháen þar sem æf ingar fara fram á verkum í samstarfi við meistaranema í leikstjórn þar ytra. Leikstjórarnir eru nú á landinu í nokkrar vikur að æfa verkin með leikurunum, en þau fara svo út til þeirra og æfa enn frekar í vor ásamt því að sýna verkið. Stórt verkefni „Við erum með styrktartónleika fyrir námsferðinni þann 7. desem­ ber. Verkið sem við erum að æfa er á ensku. Samstarfsverkefnið er milli okkar, leikaranema í Finn­ landi og leikstjóranema í Litháen. Þetta verkefni er tiltölulega nýtt, Listaháskólinn er að einbeita sér að meira samstarfi á milli landa,“ segir leiklistarneminn Björk Guðmunds­ dóttir. „Leikaranemar fyrri ára hafa oft farið til Danmerkur, til dæmis á kúrs í Shakespeare með þá dönsk­ um leikaranemum. Þetta er aðeins stærra. Yana Ross, sem hefur verið uppi í Borgarleikhúsi og leikstýrði meðal annars Mávinum, er leið­ beinandi nemanna úti í Litháen. Þetta er útskriftarverkefnið þeirra. Halldóra Geirharðsdóttir leiðbeinir svo okkur hérna heima,“ segir Fann­ ar Arnarsson. Nemunum er skipt í tvo hópa sem æfa sitt leikritið hvor undir leik­ stjórn Litháanna, en þau segja leik­ stjórana með mjög ólíkar áherslur. „Þeir eru mjög ólíkir, með öðru­ vísi sýn og aðferðafræði. Við erum saman í hóp, en verkið sem við erum að gera þekktum við ekki fyrir,“ segir Björk. „Það heitir Orange Peel. Hinn hópurinn er að æfa verk eftir Strind­ berg, en þetta er allt mjög mikið á byrjunarstigi enn sem komið er,“ segir Fannar. „Við erum bláfátækir leiklistar­ nemar, þannig að við þurfum að safna fyrir ferðinni,“ segir Björk. „Við verðum líka með fleiri við­ burði síðar,“ segi Fannar. Heildin skiptir miklu Það eru níu manns í bekknum. Fannar og Björk höfðu bæði reynt áður að komast inn, en Fannar komst inn í fjórðu tilraun og Björk í þeirri þriðju. Þau sinntu samt fag­ inu af natni á þeim tíma sem leið þar til þau komust loks inn. „Maður var alls ekki að bíða bara eftir því aðgerðalaus að komast inn. Ég fann mig til dæmi í spunanum, í Improv Ísland. Þar er ég búin að vera með frá upphafi, eða í fimm ár. Ég er að nota þau verkfæri sem ég fékk þaðan alveg sjúklega mikið í náminu,“ segir Björk. „Ég kláraði leiklist í FG á sínum tíma. Á þessum sex árum síðan þá kom ég mér inn hér og þar. Í Ung­ leik til dæmis, Stúdentaleikhúsið og f leira,“ segir Fannar, en hann sló einmitt í gegn nýverið í nýjasta tónlistarmyndbandi söngkonunnar Elísabetar Ormslev. Lokahópurinn er tuttugu manns og þarf ekki endilega að þýða að það séu þeir bestu sem komast inn, heldur snúist þetta mikið um að mynda hóp sem passar vel saman. „Helmingurinn kemst inn, en stundum er einhver mjög hæfileika­ ríkur sem endar ekki í lokahópnum. Það þarf að búa til bekk sem verður að geta unnið alveg ótrúlega náið saman í þrjú ár. Það spilar stórt inn í,“ segir Fannar. „Í rauninni eru allir í tuttugu manna hópnum nógu hæfir að komast inn, en svo er þetta bara hvernig fólk vinnur saman. Eftir því er hópurinn sniðinn,“ segir Björk. Hugguleg stemning „Það verður mjög hugguleg stemn­ ing á tónleikunum, það eru mörg róleg lög. Ég er til dæmis að syngja Sálina hans Jóns míns og Björk lag með Abba. Svo eru jú einhver jóla­ lög en við erum alls ekki að stimpla þetta sem bara jólatónleika,“ segir Fannar. „Við erum öll að æfa söng í nám­ inu. Þar lærum við vocal­tækni sem snýst um að allir geti sungið ef þeir beita líkamanum rétt,“ segir Björk. Tónleikarnir eru þann 7. desem­ ber og fara fram í Ljósinu á Lang­ holtsvegi 43. Það kostar 2.000 krón­ ur inn en ekki er posi á svæðinu. Húsið er opnað klukkan 19.30 og gestum boðið upp á léttar veitingar. steingerdur@frettabladid.is Leikaranemar halda jólatónleika Leiklistarnemar á öðru ári standa fyrir tónleikum í desember til að safna fyrir námsferð til Vilníus í Litháen. Fannar og Björk, tvö af nemunum, segja að boðið verði upp á huggulega stemningu. Frá vinstri: Stefán, Almar, Níels, Örn Gauti, Ellen, Fannar og Björk. Á myndina vantar þær Kristrúnu og Urði. 2 8 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R56 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 8 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 7 F B 0 7 2 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 5 B -D 7 E 0 2 4 5 B -D 6 A 4 2 4 5 B -D 5 6 8 2 4 5 B -D 4 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 7 2 s _ 2 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.