Fréttablaðið - 18.05.2019, Page 40

Fréttablaðið - 18.05.2019, Page 40
Allir eru boðnir og búnir til að hjálpa, það er fallegt að upplifa það og sjá hvað fólk er tilbúið að leggja á sig fyrir unga fólkið okkar.Í Berginu munu starfa ráðgjafar sem hafa reynslu, þekkingu og/eða menntun í geðheilbrigði, og hlutverk þeirra verður að vísa ung­ mennum sem þurfa á meðferð við sínum vanda að halda á viðeigandi staði. „Því verður Bergið í miklu samstarfi við til dæmis Land­ spítalann, BUGL, Barnavernd, heilsugæslur, félagsþjónustuna og starfsendurhæfingargeirann“ segir Sigurþóra Bergsdóttir, forstöðu­ maður og stofnandi Bergsins. Sigurþóra, aðrir starfsmenn Bergsins, sjálf boðaliðar og iðn­ aðarmenn vinna hörðum höndum við að gera Suðurgötu 10 tilbúna til opnunar. „Þetta er 300 fermetra rými, þetta er ansi stórt og leynir á sér,“ segir Sigurþóra og bætir við að það sé verið að byggja þrjú við­ talsherbergi, hópavinnuherbergi sem er stærra, og skrifstofu. Fyrir utan það mun húsnæðið nýtast í opið rými fyrir þau ungmenni sem þangað munu leita. Um daginn fékk Bergið 60 millj­ ónir frá ríkisstjórninni, Sigurþóra segir að það sé fallegt að sjá hvað verkefnið hefur fengið mikinn meðbyr frá bæði fólki og fyrirtækj­ um. „Allt þetta ferli og allt sem við erum að gera hefur gengið ótrúlega vel, af því að við fáum svo mikinn velvilja frá öllu samfélaginu. Allir eru boðnir og búnir til að hjálpa, og það er fallegt að upplifa það og sjá hvað fólk er tilbúið að leggja á sig fyrir unga fólkið okkar.“ Það verður farið af stað með kynningar á verkefninu í gegnum samfélagsmiðla þegar nær dregur opnuninni. „Ég grínast stundum með að við erum búin að vera með svona „old people“ markaðs­ setningu, þar sem við erum bara búin að vera að skapa okkur nafn og efna til samstarfs við ýmsar stofnanir, nú þurfum við að fara í kynningarherferð fyrir yngra fólk þegar líður að opnuninni, sem við erum öll farin að hlakka mikið til. Þetta verkefni er búið að vera langhlaup og ég er tiltölulega óþolinmóð manneskja en ég er að læra að vera þolinmóð. Við erum að vanda okkur.“ Bergið er búið að vera í bígerð frá því í ágúst 2018 eins og kemur fram á heimasíðu þess, bergid.is, þegar Sigurþóra fékk hugmyndina. Hún átti son sem glímdi við mikla andlega vanlíðan sjálfur og svo fór að hann svipti sig lífi árið 2016, aðeins 19 ára gamall. Eins og kemur fram hér að framan verður ekki veitt sérhæfð sálfræðimeðferð við geðrænum vanda í Berginu. „Ég geri samt ráð fyrir að sálfræðinemar sem eru í klínísku sálfræðinámi verði verð­ mætir fyrir okkur. Við munum líka fá til okkar félagsráðgjafa og iðjuþjálfa, það er iðjuþjálfi að vinna með okkur núna í undirbúningi þjónustunnar. Við viljum líka fá fólk til starfa sem hefur einhvers konar reynslu af svipuðu starfi og langar til að vinna í þessu verkefni. Síðan verður unnið með krökk­ unum sem koma hingað og þeim hjálpað að komast í umfangsmeiri úrræði ef þess þarf. En ef það eru einhverjir hlutir sem eru að valda þeim vanlíðan og þau þurfa aðstoð og stuðning til að takast á við þá, erum við hér í Berginu til þess. Við vonumst líka til að fá fjölskyldur ungmennanna til að vinna með okkur, en það verður gert á for­ sendum unga fólksins. Allt sem við erum að gera er fyrir ungt fólk og á forsendum þess. Þau eru við stjórn, ekki við.“ Bergþóra segir að tilgangur starfsfólks Bergsins sé ekki að skipa unga fólkinu í samfélaginu fyrir um hvað það á að gera til að öðlast bætta geðheilsu. „Við viljum finna leiðina í samstarfi við ung­ mennin. Þau eru að finna leiðina sína, en með okkar stuðningi. Við segjum þeim ekki hvað þau eiga nákvæmlega að gera.“ Í Berginu er starfandi ung­ menna ráð sem vinnur með stjórnendum í skipulagningunni, og unga fólkið fær að ráða miklu um skipulagið. „Við héldum með þeim vinnustofu í janúar á þessu ári, og það sat í mér það sem þau sögðu þá. Þau sögðu að þau þyrftu ekki einhvern til að segja þeim hvað þau ættu að gera, þau vissu hvað þau ættu að gera. Þau þyrftu bara einhvern sem væri tilbúinn til að hlusta. Það opnaði augu mín. Maður er alltaf að reyna að bjarga einhverjum, en stundum er einfaldlega nóg að veita stuðning, taka utan um viðkomandi og hlusta á hann. Leyfa tímanum stundum bara að líða.“ Bergþóra segir tilganginn ekki að stofna félagsmiðstöð, þó það verði skipulögð spilakvöld og skipulagt hópastarf. „Þetta er staður sem allir mega koma á og vera á ef þeim líður illa, það er engum vísað frá. En þetta verður ekki staður til að koma að hanga á með vinum sínum. Ekki til að byrja með. Við eigum eftir að sjá hvernig þetta þróast. Það er nóg af félagsmiðstöðvum, við viljum gera eitthvað sem aðrir eru ekki nú þegar að gera, eitthvað sem vantar.“ Unga fólkið ræður ferðinni Bergið, Headspace verður opnað í Suðurgötu 10 í miðbæ Reykjavíkur í júní. Bergið er hugsað sem fyrsta þreps úrræði fyrir ungmenni sem eiga við einhvers konar andlegan vanda að stríða, allt frá því að líða af og til illa eða líðan sem einkennir alvarlega geðsjúkdóma. Sigurþóra Bergsdóttir stendur hér í húsnæði Bergsins á Suðurgötu 10, sem verður opnað í júní. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Sólrún Freyja Sen solrunfreyja@frettabladid.is LOKAR! WWW.SIGURBOGINN.IS SIGURBOGINN VEFVERSLUN SIGURBOGINN -25% afsláttur af öllum vörum! 15% afsláttur af BIOEFFECT! Laugavegi 80, 101 Reykjavík Innritun stendur yfir í Suzukitónlistarskólanum í Reykjavík fyrir skólaárið 2019-2020. Þeir sem hafa hug á skólavist vinsamlegast hafið samband við skrifstofu skólans í síma 551-5777 á milli kl. 9:00 – 13:00 alla virka daga eða sendið á netfang skólans postur@suzukitonlist.is Stendur undir nafni 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . M A Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.