Fréttablaðið - 18.05.2019, Page 90

Fréttablaðið - 18.05.2019, Page 90
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is? Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is. Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot Elskuleg móðir okkar, amma, tengdamóðir og systir, Þóra Friðriksdóttir leikkona, andaðist þann 12. maí. Útför hennar verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 23. maí kl. 13. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á deild V-3 á dvalarheimilinu Grund, Reykjavík, fyrir þá alúð og umhyggju sem Þóru var sýnd. Lára Jónsdóttir Kristín Jónsdóttir Sigmundur Jóhannesson Iðunn Jónsdóttir, Tryggvi Jónsson og Þórunn Friðriksdóttir Okkar elskulegi faðir, tengdafaðir og afi, Jón Einarsson Öldutúni 18, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum laugardaginn 10. maí. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 22. maí klukkan 13.00. Íris Jónsdóttir Haraldur Örn Sturluson Einar Jónsson Alma Jónsdóttir Matthías Árni Ingimarsson og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Málfríður Sigurðardóttir Stapavöllum 12, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 11. maí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 23. maí kl. 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. Innilegar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót. Marís Hvannberg Gíslason Sigurður Marísson Kristín Auður Jónsdóttir Ingibjörg Guðný Marísdóttir Örn Benedikt Sverrisson Margrét Linda Marísdóttir Kristberg Snjólfsson Viðar Þór Marísson Tonje Tellefsen barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæra Hrefna Ólafsdóttir Kirkjuvegi 1, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 3. maí. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sigrún Birna Ólafsdóttir Þórir Jóhann Ólafsson María Sjöfn Helgadóttir Borgar Unnbjörn Ólafsson Þórdís Herbertsdóttir Elín Inga Ólafsdóttir Agnar Harðarson Björn Guðbrands Ólafsson Guðríður Gunnarsdóttir og systkini hinnar látnu. Já, nú nálgast þetta hröðum skref­um, en það er besta mál,“ segir Dagný Kristjánsdóttir, prófessor og bókmenntafræðingur, glað­lega þegar hún er minnt á afmælið á morgun. Hún er á vinnustað sínum, Háskóla Íslands, þegar ég hef samband. Þar hefur hún verið við kennslu frá árinu 1992, fyrst í íslensku en sem prófessor í bókmenntafræði frá 2001. Áður var hún lektor við Óslóar­ háskóla í átta ár. „Ég er enn að vinna en lýk störfum 1. júní, það er reglan að hætta um fyrstu mánaðamót eftir sjötugsafmælisdaginn. Mér finnst það bara fínt en samt svolítið óraunverulegt. Veit ekkert hvernig það verður að þurfa ekki og eiga ekki að mæta í vinnuna. Ég man að Helga Kress sagði það, ekki án beiskju, þegar hún varð sjötug að þetta væri eini afmælis­ dagurinn sem hún fengi það í afmælis­ gjöf að vera sagt upp. En í öllu þrefinu og púlinu og stressinu hef ég lengi hlakkað til að fá ótakmarkaðan tíma fyrir sjálfa mig. Veit þó að það sem gerist er að maður takmarkar hann sjálfur og býr sér til einhver verkefni.“ Ef laust verður Dagný ekki í vand­ ræðum með að finna sér áhugaverð við­ fangsefni. Spurð hvort hún sé með ein­ hver í sigti svarar hún. „Ja, það eru tvær bækur sem ég þarf að ljúka við og margt sem mig langar að gera og ég hlakka til að gera.“ Hún segir meðal annars ferðalög fram undan í sumar, bæði innan lands og utan og nefnir dæmi um eina utanlandsferð. „Við hjónin ætlum að fara til Skotlands á slóðir Auðar djúpúðgu undir fararstjórn Vilborgar Davíðsdóttur. Ég hlakka mjög til þess. Vilborg er búin að vera með þessar ferðir um nokkra hríð, auglýsingin kom upp bara í sviphending vegna þess að daginn eftir voru komnir 150 manns á biðlista!“ Dagný er uppalin á Akureyri. „Ég fæddist á Ísafirði en var eins árs þegar við f luttum þaðan og kenni mig því ekki við þann stað, því þá væri alltaf verið að spyrja mig hvort ég þekkti ein­ hverja þaðan – sem ég geri ekki. Svo ég segist vera frá Akureyri enda átti ég þar fyrsta og mikilvægasta mótunar­ skeiðið á ævinni – og ég elska Akureyri. Fjölskylda mín flutti suður þegar ég var fjórtán ára og ég var mjög ósátt við það, það er aldur sem maður vill ekki flytja á, burt frá öllum vinunum, svo ég fór aftur norður við fyrsta tækifæri og átti góðan tíma í Menntaskólanum á Akureyri.“ Að lokum er Dagný spurð hvort hún ætli að halda upp á daginn á morgun og hún svarar glaðlega: „Ja, það verður gert eitthvað skemmtilegt. Þó það nú væri!“ gun@frettabladid.is Fínt en samt óraunverulegt Brátt verða tímamót í lífi Dagnýjar Kristjánsdóttur, prófessors í bókmenntafræði við Háskóla Íslands, er hún lætur af störfum í kjölfar stórafmælis sem er á morgun. „Ég hef lengi hlakkað til að fá ótakmarkaðan tíma fyrir sjálfa mig,“ segir Dagný. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Dagleg störf prófessorsins Dagný hefur kennt íslenska bókmenntasögu, kvennabókmenntir, barnabók- menntir, kynjafræði og sálgreiningu við íslensku-og menningardeild Háskóla Íslands. Meðal námskeiða eru: Læknahugvísindi, Smásögur II: Frá rómantík til raf- rænna miðla, Norrænn módernismi og framúrstefna – frá Edith Södergran til óreiðu internetsins, Smásögur I: Fornar sögur og splunkunýjar og Heimur Halldórs Laxness. 1 8 . M A Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R40 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.