Fréttablaðið - 10.10.2019, Qupperneq 12
Aðilar á atvinnuhúsnæðismarkaði
og lánveitendur verða að vera undir
það búnir að viðvarandi verðhækk
unum linni fyrr en síðar. Nokkur
hætta er á að það skapist offramboð
sem muni hafa í för með sér verð
lækkanir. Sú hætta er hins vegar
enn sem komið er að mestu tak
mörkuð við hótel og gistiheimili.
Þetta er á meðal þess sem kemur
fram í nýju riti Fjármálastöðugleika
sem Seðlabankinn kynnti í gær.
Samanlagt námu útlán bankanna
til fasteignafélaga og byggingargeir
ans um 20 prósentum af útlánum til
viðskiptavina í lok ágúst. Vöxtur í
útlánum til fasteignafélaga, sem
hafa aukist mikið síðustu ár, fór
minnkandi í lok síðasta árs en í
byggingageiranum hefur lánavöxt
urinn verið mikill að undanförnu
og nemur um 16 prósentum á síð
ustu tólf mánuðum.
Verðlag at vinnuhúsnæðis á
höfuð borgarsvæðinu hefur hækkað
áfram á liðnum mánuðum og í lok
annars ársfjórðungs hafði verðvísi
tala atvinnuhúsnæðis hækkað um
tæplega 15 prósent að raungildi á
milli ára. Vísitalan er nú töluvert
yfir langtímaleitni, að því er fram
kemur í ritinu, og hefur hækkað
hlutfallslega mikið miðað við
tengdar hagstærðir, svo sem lands
framleiðslu og byggingarkostnað.
Á það er bent í riti Seðla
bankans að bankarnir eigi mikið
undir stöðug leika og hagstæðri
verðþróun á markaðnum. Vegna
langvarandi verðhækkana og á
markaði hafa verðhlutföll útlána
þeirra með veði í atvinnuhúsnæði
farið lækkandi. „Dvínandi vöxtur
eftirspurnar og vaxandi framboð
benda hins vegar til þess að leigu
verð atvinnuhúsnæðis geti staðnað
eða jafnvel lækkað eitthvað á næstu
misserum,“ segir í ritinu.
Rannveig Sigurðardóttir, að stoð
ar seðlabankastjóri, bendir á það í
formála ritsins að vísbendingar
séu um að velta á fasteignamarkaði
á höfuðborgarsvæðinu hafi dregist
saman og að sölutími hafi lengst en
á sama tíma hefur framboð aukist.
Samhliða fjölgun nýbygginga hefur
dregið úr skammtímaútleigu íbúða
á höfuðborgarsvæðinu til ferða
manna. Offramboð og lækkun
nafnverðs gætu fylgt í kjölfarið.
Í því felst áhætta fyrir fjármála
kerfið.
„Lánastofnanir þurfa að búa sig
undir að nýbyggingar seljist hægt,
veðsetningarhlutföll fasteigna
veðlána hækki og útlánatöp vegna
íbúðarhúsnæðis aukist,“ segir hún
og nefnir að tengsl séu á milli stöðu
ferðaþjónustu og áhættu á íbúðar
og atvinnuhúsnæðismörkuðum.
– hae
Lánastofnanir
þurfa að búa sig
undir að nýbyggingar seljist
hægt, veðsetningarhlutföll
fasteignaveð-
lána hækki og
útlánatöp
vegna íbúðar-
húsnæðis
aukist.
Rannveig Sigurðardóttir,
aðstoðarseðlabankastjóri
Stjórnvöld hafa
brugðist hratt við
athugasemdum FATF og
sýnast mér síðustu atriðin
vera á lokametrunum.
Katrín Júlíusdóttir,
framkvæmda-
stjóri SFF
38%
nemur lækkun hlutabréfa-
verðs Icelandair á árinu.
Rannsóknarsjóður Öldrunarráðs
Íslands auglýsir eftir umsóknum
um styrk úr sjóðnum
Umsóknarfrestur er til og með 16. október
2018 og skulu umsóknir sendar rafrænt á
oldrunarrad@oldrunarrad.is eða til
Öldrunarráðs Íslands, Sóltúni 2, 105
Reykjavík.
Frekari upplýsingar veitir Anna Birna
Jensdóttir, formaður stjórnar Öldrunarráðs.
Fyrirspurnir sendist á netfangið
oldrunarrad@oldrunarrad.is
Úr 5. gr. skipulagsskrár Rannsóknarsjóðsins:
Hlutverk sjóðsins er að styrkja rannsóknir í
öldrunarmálum á Íslandi svo og þau verkefni
sem stjórn sjóðsins ákveður.
Rannsóknasjóður
Öldrunarráðs Íslands
auglýsir eftir umsóknum
um styrk úr sjóðnum
Úr 5. gr. skipulagsskrár Rannsóknasjóðsins:
lutverk sjóðsins er að styrkja rannsóknir í
öldrunarmálum á Íslandi svo og þau verkefni sem
stjórn sjóðsins ákveður.
Umsóknarfrestur er til og m ð 3. desember 2019 og
skulu umsóknir sendar rafrænt á
oldrunarrad@oldrunarrad.is eða til Öldrunarráðs
Íslands, Snorrabraut 58, 105 Reykjavík.
Frekari upplýsingar veitir Jórunn Frímannsdóttir,
formaður stjórnar Öldrunarráðs Íslands.
Fyrirspurnir sendist á netfa gið
oldrunarrad@oldrunarrad.is
„Það er yfirhöfuð ekki gott að lenda
á svona lista og erfitt að leggja mat
á áhrifin í f ljótu bragði. Við munum
fylgjast vel með hvernig málum
lyktar og treystum því að stjórn
völd séu að leggja allt kapp á að
koma í veg fyrir að svona fari,“ segir
Katrín Júlíusdóttir, framkvæmda
stjóri Samtaka fjármálafyrirtækja,
í samtali við Fréttablaðið.
Í vikunni var greint frá því að
sérfræðingahópur FATF, sem er
alþjóðlegur hópur ríkja um aðgerðir
gegn peningaþvætti og fjármögnun
hryðjuverka, teldi að enn stæðu út
af sex atriði sem gætu leitt til þess að
umbætur Íslands varðandi aðgerðir
gegn peningaþvætti og fjármögnun
hryðjuverka verði ekki taldar full
nægjandi.
Verði það niðurstaðan fer Ísland
á lista yfir svokölluð áhættusöm
þriðju lönd þar sem aðgerðaáætlun
er í farvegi. Á listanum má finna
lönd á borð við Írak, Afganistan,
Jemen og Úganda.
Katrín ítrekar að atriðin sex sem
samtökin setja út á snúi ekki beint
að íslensku fjármálafyrirtækjunum.
„Íslensku bankarnir hafa sterkar
varnir gegn bæði peningaþvætti
og fjármögnun hryðjuverka, og
fylgja skýru regluverki og kröfum
hér heima sem og erlendis frá. Fjár
málafyrirtækin standast skoðun
hvað þetta varðar og eru sífellt að
bæta sig. Varnir gegn peningaþvætti
eru hluti af starfsemi fjármálafyrir
tækja og mat á þessum vörnum er
hluti af erlendum viðskiptasam
böndum þeirra enda kröfurnar
eðlilega miklar, “ segir Katrín. Í ljósi
þess sé ekki búist við því að málið
hafi áhrif á viðskiptasambönd
Yrðu mikil vonbrigði
að lenda á gráum lista
Framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja segir ekki gott að lenda á
gráum lista FATF. Erfitt sé að leggja mat á áhrifin sem það geti haft. Fulltrúar
funduðu með FATF í síðustu viku til að reyna að beina málinu í betri farveg.
Erfiðara fyrir námsmenn að opna reikninga úti
Ef Ísland fer á gráan lista FATF
gætu erlendir aðilar í viðskiptum
við íslensk fyrirtæki, þá einkum
fjármálafyrirtæki og trygginga-
félög, þurft að kanna sjálfstætt
hvort varnir gegn peningaþvætti
og fjármögnun hryðjuverka séu
nægilega tryggar.
Viðmælendur Fréttablaðsins
á fjármálamarkaði segja að með
því að lenda á listanum geti orðið
erfiðara fyrir Íslendinga að eiga
viðskipti við erlenda banka. Þann-
ig verði til að mynda erfiðara fyrir
námsmenn erlendis að stofna
bankareikning í viðkomandi
landi. Þá segja viðmælendurnir
að bandarísk fyrirtæki starfi mjög
stíft eftir þessum reglum og horfi
til þess hvaða lönd séu á þessum
lista þegar þau eiga í viðskiptum
við erlend fyrirtæki.
Hlutabréf Icelandair Group héldu
áfram að lækka í Kauphöllinni í gær
og nam lækkunin 2,2 prósentum. Á
undanförnum sjö dögum nemur
lækkunin tíu prósentum.
ViðskiptaMogginn sagði í for
síðufrétt í gær að „15. október gæti
orðið sögulegur dagur í íslenskri
f lugsögu“ því að þá myndi draga
til tíðinda hjá tveimur flugfélögum
sem unnið sé að því að koma á loft.
Um er að ræða WAB air, sem fyrr
verandi starfsmenn eru í forsvari
fyrir, og WOW 2 þar sem bandaríska
athafnakonan Michele Roosevelt
Edwards stendur í stafni eftir kaup
á vörumerki WOW af þrotabúi þess.
Sveinn Ingi Steinþórsson, stjórn
arformaður WAB air, vildi ekk
ert láta hafa eftir sér spurður um
áform félagsins og hvort búið væri
að tryggja fjármögnun og flugvélar
fyrir starfsemina.
Hlutabréfaverð Icelandair hefur
ekki verið lægra frá mars 2012.
Gengið hefur lækkað um 38 prósent
það sem af er ári. – hvj
Icelandair lækkaði enn í Kauphöll
íslensku bankanna erlendis sem
séu sterk fyrir.
Fréttablaðið greindi frá því í gær
að talsverðar áhyggjur væru innan
viðskiptabankanna vegna málsins.
Stjórnvöld sendu bréf á bankastjóra
viðskiptabankanna á fimmtudag í
síðustu viku þar sem fram kom að
taldar væru verulegar líkur á því að
Ísland lenti á listanum. Bankarnir
ættu því að búa sig undir þá niður
stöðu og haga undirbúningi sínum
í samræmi við það.
„Það yrðu veruleg vonbrigði ef
Ísland endar á þessum lista því
miðað við þau atriði sem FATF
metur að standi út af eru stærstu
atriðin í lagi. Stjórnvöld hafa aftur
á móti brugðist hratt við athuga
semdum FATF og sýnast mér síð
ustu atriðin vera á lokametrunum.
Ég vona að vel gangi að koma því
til skila,“ segir Katrín en vænta má
niðurstöðu á fundi fulltrúa allra
aðildarríkja FATF sem haldinn
verður um miðjan október.
Samkvæmt heimildum Frétta
blaðsins áttu fulltrúar stjórnvalda
fund í höfuðstöðvum samtakanna
í París í síðustu viku til að unnt yrði
að komast hjá því að málið færi í
þennan farveg. Verði niðurstaðan
eigi að síður sú að Ísland verði sett
á fyrrnefndan lista, munu íslensk
stjórnvöld kappkosta að það verði
aðeins til skamms tíma, en FATF
getur endurskoðað afstöðu sína á
næsta ári.
Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins, gat ekki orðið
við beiðni Fréttablaðsins um viðtal
vegna funda. thorsteinn@frettabladid.is
Innan viðskiptabankanna eru töluverðar áhyggjur vegna málsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Séu undir það búnir að
verðhækkunum linni
MARKAÐURINN
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð