Fréttablaðið - 10.10.2019, Qupperneq 41
Undanfarin fimm ár hefur hluti af söluágóða Nokian gæðadekkja hjá MAX1
runnið til Bleiku slaufunnar.
MAX1 Bílavaktin og Nokian Tyres
á Íslandi ganga nú til samstarfs
við Bleiku slaufuna í sjötta sinn.
MAX1 er stoltur styrktaraðili
Bleiku slaufunnar og finnst sérlega
ánægjulegt að fá að halda farsælu
samstarfi við Krabbameinsfélag
Íslands áfram. Allt frá upphafi
samstarfsins hafa viðskiptavinir
og starfsmenn MAX1 tjáð ánægju
sína með að fá tækifæri til þess að
vekja athygli á svo brýnu málefni.
Dekk sem má treysta
„Við erum gífurlega stoltir full-
trúar Nokian dekkja frá Finnlandi.
Nokian vetrardekk eru gæðadekk,
eins og kannanir og prófanir hafa
sýnt fram á undanfarin ár, og þau
eru margverðlaunuð,“ segir Sigur-
jón Árni Ólafsson, framkvæmda-
stjóri MAX1 Bílavaktarinnar.
„Þau eru fáanleg í miklu úrvali og
mörgum gerðum sem henta vel
á Íslandi og ekki skemmir gott
verð fyrir. Það er áríðandi að velja
gæðadekk undir bílinn, því dekk
eru mikilvæg öryggistæki. Það
skiptir gríðarlega miklu máli að
geta treyst eiginleikum dekkja í
krefjandi aðstæðum.
Á hverju ári fara tveir full-
trúar frá okkur til Finnlands
til að heimsækja höfuðstöðvar
Nokian þar sem vetrardekkin eru
prófuð á fullkomnu 700 hektara
prófunarsvæði þeirra í Ivalo,“
segir Sigurjón. „Á svæðinu eru um
50 mismunandi brautir þar sem
þeir prófa og sannreyna Nokian
vetrardekk á mismunandi undir-
lagi í afar erfiðum og krefjandi
vetraraðstæðum. Nokian er einnig
leiðandi í visthæfni og notkun
vistvænna efna við framleiðslu
gæðadekkja.“
Hvert er rétta vetrardekkið?
„Hjá Nokian getur þú valið um
negld dekk, harðkorna vetrardekk
sem og vetrardekk sem henta allt
árið. Þegar kemur að vali á réttum
dekkjum er gott að velta því fyrir
sér hvernig dekk henta hverjum
og einum,“ segir Sigurjón. „Þegar
kemur að vetraröryggi kemur
ekkert í stað nagladekkja, næst
þar á eftir koma harðkornadekk,
síðan almenn vetrardekk og síðast
í röðinni eru vetrardekk sem henta
vel sem heilsársdekk. Hjá MAX1
leggjum við áherslu á að veita
Í samstarfi við Bleiku
slaufuna sjötta árið í röð
Sigurjón Árni
Ólafsson,
framkvæmda
stjóri MAX1
Bílavaktarinnar,
Kolbrún Silja
Ásgeirsdóttir,
fjáröflunarstjóri
Krabbameins
félags Íslands,
og Marís Gústaf
Marísson,
rekstrarstjóri
MAX1 í Jafn
aseli, innsigla
samstarfið.
Nokian Hakk
apeliitta 9 SUV
er framúr
skarandi vetrar
og nagladekk
með Aramid
hliðarstyrkingu.
Dekkin henta í
öllum vetrarað
stæðum.
Nokian Hakk
apeliitta R3
er harðkorna
vetrardekk þar
sem öryggi og
þægindi bland
ast fullkom
lega saman.
Áhersla er lögð
á stöðugleika,
nákvæmni og
áhyggjulausan
akstur í vetrar
færð.
Nokian WR
Snowproof
vetrarheils
ársdekkið er
snilldarlega
samsett og þar
nýtist áralöng
reynsla af vetr
araðstæðum
á norðlægum
slóðum.
Viðskiptavinir sem koma í MAX1 og kaupa Nokian gæðadekkin í október
og nóvember styrkja Bleiku slaufuna um leið með kaupunum.
MAX1 Bílavaktin
og Nokian tyres á
Íslandi styrkja nú
fjáröflun Bleiku
slaufunnar sjötta
árið í röð með
hluta af sölu-
ágóða af Nokian
dekkjum. Það er
því hægt að fá ný
dekk og styðja
gott málefni um
leið.
viðskiptavinum ráðgjöf við val á
dekkjum því dekk eru flókin vara
og það er mismunandi hvað hentar
hverjum og einum.“
Léleg dekk geta valdið
slysum
„Vanmat ökumanna á ástandi
dekkja getur verið stórvarasamt.
Við sjáum því miður alltof oft að
viðskiptavinir koma með dekk
á haustin til þess að skipta fyrir
veturinn og þá kemur í ljós að
mynstur dekkjanna er komið
undir slitmörk til þess að f lokkast
sem gagnleg vetrardekk,“ segir
Sigurjón. „Nokian dekkin eru
með svokallaðar DSI-merkingar á
öllum sínum dekkjum, sem segja
til um hversu mikið er eftir af
dekkinu. Fyrir vikið er auðveldara
að átta sig á hvort dekkið sé enn
öruggt.“
Bókaðu tíma á netinu
„Nú er mikilvægt að fara að huga
að vetrinum, forðast örtröð og
bóka tíma í dekkjaskipti á netinu.
Á heimasíðu MAX1 Bílavaktar-
innar, max1.is, getur þú bókað
tíma fyrir dekkjaskipti og þannig
sloppið við örtröð þegar veturinn
skellur á,“ segir Sigurjón.
Nokian gæðadekk styrkja
Bleiku slaufuna
„Viðskiptavinir MAX1 sem kaupa
Nokian gæðadekk í október og
nóvember styrkja Bleiku slaufuna
um leið með kaupunum,“ segir
Sigurjón. „Samstarf MAX1 og
Bleiku slaufunnar hófst 1. október
og verður út nóvembermánuð. Að
sjálfsögðu verður Bleika slaufan
líka til sölu á öllum verkstæðum
MAX1, en þau eru þrjú talsins, tvö í
Reykjavík og eitt í Hafnarfirði.“
BLEIKA SLAUFAN 9 F I M MT U DAG U R 1 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 9