Hlynur - 15.06.1956, Síða 16
4. ÁHG. 6. TBL. JÚNÍ 1956.
9
ott ad uita . ..
t o
að fyrirhuguð heimsókn norrænna sam-
vinnustarfsmanna til Islands, sem áður
hefir verið nefnd hér í blaðinu, hefir
nú verið ákveðin. Leggja ferðalangarn-
ir, sem eru 6 — þar 5 konur, af stað
23. júlí og munu dvelja hér á landi um
10 daga.
að Skipadeild SÍS, sem brátt verður 10
ára, hefir þegar 10.843 smálesta (dwt.)
skipastól. Er hið nýja olíuskip bætist í
flotann verður hann orðinn 27.573 smá-
lestir, eða 2845 smálestum framyfir nú-
verandi skipastól Eimskipafélags Is-
lands.
að Aðalfundur Sambands íslenzkra sam-
vinnufélaga, Vinnumálasambands sam-
vinnufélaganna, Samvinnutrygginga,
Líftryggingafélagsins Andvöku og Fast-
eignalánafélags Samvinnumanna verður
haldinn að Bifröst dagana 11.—13. júlí
næsikomandi.
að fyrri sumarleyfistími starfsfólks Sam-
bandsins og dótturfyrirtækjanna hefst
30. júní, en sá síðari 28. júlí. Ættu
innkaupastjórar kaupfélaganna að at-
huga þetta og gera innkaupin fyrir
þennan tíma.
að Sambadið hefir fest kaup á fjölritunar-
vél, sem er svo fullkomin, að hægt er
að prenta með henni reikninga og ým-
iskonar eyðublöð.
að á aðalfundi Kaupfélags Vestur-Hún-
vetninga, sem haldinn var 3. og 4. maí,
var samþykkt að reisa fullkomna mjólk-
urvinnslustöð á Hvammstanga eða í
nágrenni. Fól fundurinn stjórn félags-
ins og Karli Hjálmarssyni, kaupfélags-
stjóra, að hafa forgöngu í málinu og
hraða undirbúningi og framkvæmd eft-
ir megni.
að þegar eru farnar að berast ritgerðir í
hugmyndasamkeppni þá er Samvinnu-
tryggingar efndu til um umferðamál.
Svo sem kunnugt er heita Samvinnu-
tryggingar mjög háum verðlaunum, en
þau eru 7000 og 3000 krónur.
að stofnuð hefir verið íþróttadeild innan
SF/SÍS í Reykjavík, æfir hún aðallega
knattspyrnu og vann lið frá Borgar-
bílastöðinni með 3 gegn 0 og Hreyfli
með 4 gegn 1. Hyggst liðið mæta til
leiks á landsmótinu í sumar. Akureyr-
ingar, Keflvíkingar og Selfyssingar og
jafnvel fleiri kváðu vera farnir að æfa
knattspyrnu af kappi og ætla sér einn-
ig að mæta á landsmótinu til keppni.
að útbreiðsla Hlyns gengur mjög vel, og
betur en bjartsýnustu menn þorðu að
vcna. Fyrst var blaðið prentað í 600
eintökum, en það dugði brátt hvergi
til. Þá var upplagið hækkað í 1.200,
síðan 1.500 og nú er það komið upp í
2000 eintök.
HLYNUR
BLAÐ SAMVINNU-
STARFSMANNA
er gefinn út af Sambandi íslenzkra samvinnufélaga, Starfs-
mannafélagi SIS og Félagi kaupfélagsstjóra. Ritstjóri er
Orlygur Hálfdanarson, en auk hans í ritnefnd Guðrún Þor-
kelsdóttir og Gunnar Sveinsson, Keflavík. Ritstjórn og af-
greiðsla hjá fræðsludeild SIS, Sambandshúsinu, Reykjavík.
Verð: 35.00 kr. árg., 3.00 kr. hefti. Kemur út mánaðarlega.