Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 2019, Síða 9

Sveitarstjórnarmál - 2019, Síða 9
SVEITARSTJÓRNARMÁL miða við heildargreiðslur samkvæmt samningnum í 48 mánuði. Útreikningur virðis þjónustusamninga Almennt þegar um er að ræða þjónustusamninga þar sem heildarfjárhæð er ótilgreind skal reikna virði út með eftirfarandi hætti: • Þegar samningur er gerður til 48 mánaða eða skemmri tíma skal miða við áætlaða samningsfjárhæð allan gildistíma samningsins. • Þegar samningur er ótímabundinn eða óvíst er hver samningstíminn verður skal miða við heildargreiðslur samkvæmt samningnum í 48 mánuði. Gott er að hafa í huga að það þarf ekki háar fjárhæðir til þess að ótímabundnir þjónustusamningar séu orðnir útboðsskyldir. Þjónustusamningar þar sem greitt er 322.916 kr. eða meira á mánuði munu á 48 mánaða tímabili vera komnir yfir 15.500.00 kr. og því útboðsskyldir samkvæmt lögunum. Athygli er vakin á því að sérstakar reglur gilda um útreikninga á heildarverðmæti tryggingarþjónustu og banka- og fjármálaþjónustu. Tryggja þarf þekkingu innan sveitarfélagsins. Nauðsynlegt er að þeir starfsmenn sem sjá um innkaup fyrir sveitarfélög séu með grunnþekkingu á lögum um opinber innkaup og viti hvaða heimildir standa til boða við innkaup. Grunnupplýsingar um innkaup sveitarfélaga má nálgast á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga ásamt því sem heimasíða Ríkiskaupa er með gott fræðsluefni. Sambandið mun einnig standa fyrir námskeiði fyrir starfsmenn sveitarfélaga og stofnanna þeirra í apríl ásamt því sem Endurmenntun Háskóla Íslands heldur reglulega námskeið um opinber innkaup. Góð þekking á löggjöf um opinber innkaup getur reynst mikils virði þegar upp koma álitamál um framkvæmd innkaupa og eru sveitarfélögin hvött til þess að huga að símenntun sinna starfsmanna við þessi tímamót. Markmið laganna er að tryggja jafnræði fyrirtækja, stuðla að hagkvæmni í opinberum rekstri með virkri samkeppni og efla nýsköpun og þróun við innkaup hins opinbera á vörum, þjónustu og verklegum framkvæmdum. OneSystems® sími: +354 660 8551 | fax: +354 588 1057 www.onesystems.is | one@onesystems.is OneSystems bjóða heildarlausn í skjalamálum sveitarfélaga og þjónustu við íbúa VELJU M ÍSLENST - VELJU M ÍS LE N SK T -V EL JUM ÍSLENSKT - Þróunarstefna OneSystems styður MoReq2, kröfur evrópulanda um gagnsæi, rekjaleika og öryggi. Hagkvæmar lausnir með áherslu á rekjanleika, auðveldan aðgang og gagnsæi. OneSystems hefur hannað og rekur yr 40 gagnvirkar þjónustugáttir af ýmsum toga, víðsvegar um landið hjá sveitarfélögum og fyrirtækjum. Þar á meðal eru: Íbúagáttir, starfsmannagáttir, nefndarmanna- og gagnagáttir. Auktu aðgengi gagna og gagnsæi ákvarðanatöku með öruggu og rekjanlegum hætti. Stórauktu þjónustu án þess að auka yrbyggingu og sparaðu með skilvirkari stjórnun mála. Gagnvirkar þjónustugáttir Upplýsingagátt Portal Information Vefgátt fyrir íbúa Citizen Nefndarmannagátt Committee Starfsmannagátt Employee Self-Service Portal Project Verkefnavefur

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.