Sveitarstjórnarmál - 2019, Blaðsíða 13
13
SVEITARSTJÓRNARMÁL
„Ég er persónulega afar ánægður með allt
mitt samstarfsfólk.. Það nálgast hlutina af
jákvæðni og er hæft í sínum störfum enda er
í mörgum tilvikum um að ræða mikilsmetna
sérfræðinga á sínu sviði. Við finnum það að
sveitarfélögin og ríkisvaldið bera traust til
starfsfólksins hérna. Það er mjög hvetjandi
fyrir okkur og skapar í raun sterkan grunn
fyrir starfsánægju sem er í raun forsenda
fyrir góðri framleiðni í öllum störfum. Að
sama skapi höfum við alltaf átt mjög gott
samstarf og samvinnu við formenn og
stjórnir sambandsins í gengum tíðina og
finnum fyrir miklu trausti af þeirra hálfu. Slíkt
jákvætt viðhorf hvetur einnig alla til dáða.“
Hríslast um allt samfélagið
Sambandið vinnur ötullega að því að koma
sér og stefnumörkun sinni á framfæri
við þá sem taka þátt í stjórnmálum á
landsvísu. Sveitarstjórnarfólk sem tekur
þátt í landsfundum stjórnmálaflokkanna
er hvatt til þess að halda stefnumörkun
sambandsins á lofti á þeim vettvangi og
að sögn Karls skilar það sér iðulega í því að
atriði úr stefnumörkun sambandsins má
finna í stefnu stjórnmálaflokka og síðan í
samstarfsyfirlýsingum nýrra ríkisstjórna.
„Þetta hríslast um allt samfélagið. Eitt
fyrsta erindi sem þingmenn fá að loknum
kosningum er erindi frá okkur þar sem
við vekjum athygli á sjónarmiðum
sveitarfélaganna, drögum saman mikilvæg
atriði úr stefnumörkuninni og minnum á
sambandið sem lögformlegan málsvara
sveitarstjórnarstigsins. Við merkjum árangur
af þessu vinnulagi þó oft vildum við sjá hann
meiri. “
Stjórnvöld eru ríki og sveitarfélög
Starf sambandsins að hagsmunamálum
sveitarfélaganna beinist eðli málsins
samkvæmt iðulega að ríkisvaldinu. Karl
segist ótrúlega oft þurfa að minna fulltrúa
ríkisins á að stjórnvöld í landinu eru ríki og
sveitarfélög, ekki bara ríkið. Hann bendir
á að sveitarfélögin fá til sín um þriðjung
skatttekna hins opinbera. Þau bera ábyrgð á
um 40 prósent samneyslunnar og 52 prósent
opinberra starfa eru hjá sveitarfélögunum.
Annað dæmi um hve umsvifamikið og
mikilvægt sveitarstjórnarstigið er að
þegar upp er staðið byggja um 65 prósent
heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna
um sjálfbæra þróun á innleiðingu af
hálfu sveitarfélaga. „Það hefur verið allt
of rík tilhneiging hjá ríkisvaldinu að klára
mál án samráðs við okkur sem málsvara
sveitarfélaganna og þingmenn, ekki
síst nýir þingmenn, átta sig ekki alltaf á
því hve mikilvægur aðili hins opinbera
sveitarfélögin eru. En það er okkar hlutverk
að halda sameiginlegum hagsmunum
sveitarfélaganna á lofti gagnvart ríkisvaldinu
og þar gegnir stefnumörkunin algjöru
lykilhlutverki,“ segir Karl.
Séð yfir hluta salarins á landsþingi sambandsins sem haldið var á Akureyri haustið 2018.
Karl flytur skýrslu stjórnar fyrir árið 2017 á XXII. landsþingi sem fór fram á Akureyri haustið 2018.