Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 2019, Qupperneq 22

Sveitarstjórnarmál - 2019, Qupperneq 22
22 SVEITARSTJÓRNARMÁL Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is • tengi@tengi.is Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15 OLÍUSKILJUR • Þýsk gæði og hugvit • Hægt að fá í mismunandi útfærslum • Olíuskiljur í flokki II • Áralöng reynsla fyrir minni iðnaðargólf Eydís Ásbjörnsdóttir tók á síðasta ári við formennsku í bæjarráði Fjarðabyggðar, fyrst kvenna og braut við það blað í sögu sveitarfélagsins. Ekki voru það þó einu sögulegu tíðindin úr þessu fjölmennasta sveitarfélagi Austurlands, þar sem Eydís, sem skipar fyrsta sæti Fjarðalistans, er jafnframt fyrsta konan til að leiða bæjarmálasamtök í Fjarðabyggð. Að sveitarstjórnarkosningum loknum síðastliðið vor eftir sigur Fjarðalistans, gerði hún sér síðan lítið fyrir og fór fyrir myndun nýs meirihluta, eftir átta ára setu í minnihluta. Hún játar því, að sér hafi fundist undarlegt að vera fyrsta konan til að leiða bæjarmálaframboð í Fjarðabyggð og að það hafi ekki gerst fyrr en árið 2018. Þessi rísandi stjórnmálakona á Austfjörðum er enda þekkt fyrir hógværð og rólynt fas. Þeir sem þekkja Eydísi vel segja þó, að undir kyrrlátu yfirborði leynist glerhörð jafnaðarkona með mikla réttlætiskennd. Árangur hennar í stjórnmálum megi rekja til þess, að hún vandi vel valið á þeim orustum sem hún ákveður að taka. Hlakkar til að takast á við spennandi og krefjandi starf „Formennskan í bæjarráðinu leggst vel í mig, þetta er spennandi og krefjandi starf,“ segir Eydís sem leiðir ásamt forseta bæjarstjórnar, Jóni Birni Hákonarsyni, nýjan meirihluta Fjarðalistans og Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð. „Ég hlakka til að starfa með fjölbreyttum og sterkum hópi fólks, sem er reiðubúinn að leggja mikið á sig fyrir samfélagið okkar.“ Eydís segist alltaf hafa haft mikinn áhuga á bæði félagsstörfum og sveitarstjórnarmálum. „Ég vil láta gott af mér leiða og valdi að fara þessa leið. Skemmtilegast við sveitarstjórnarmálin eru áskoranirnar, að ögra sjálfum sér. Þá kynnist maður mörgu frábæru fólki með alls konar skoðanir og myndar tengsl, sem er mér afar dýrmætt.“ Spurð að því hvort og þá hvað henni leiðist við stjórnmálin, svarar Eydís að bragði: „Óheiðarleiki, ekki bara í stjórnmálum heldur í lífinu almennt. Þá hverfur allt traust um leið.“ Nýi meirihlutinn náði fljótlega saman að kosningum loknum og segir Eydís að það megi þakka góðum undirbúningi Fjarðalistans fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Fyrir vikið gekk hún ásamt félögum sínum til meirihlutaviðræðna með afar skýrt málefnaumboð. „Framsóknarflokkurinn reyndist reiðubúinn í þessa vegferð með okkur. Við horfum bjartsýn fram á veginn og tökum samhent þeim áskorunum sem verða á okkar leið,“ segir hún og brosir. Á meðal þess sem nýi meirihlutinn vinnur að er umhverfisstefna Fjarðabyggðar til fjögurra ára. „Einnig er verið er að vinna að endurskoðun og nýrri stefnumörkun fyrir fræðslu- og frístundamál sveitarfélagsins. Þetta er mikil vinna sem á vonandi eftir að halda áfram að efla sveitarfélagið“ Bjartsýn baráttukona Eydís hefur setið í bæjarstjórn Fjarðabyggðar frá árinu 2010. Hún tekur alvarlega það umboð sem kjósendur hafa treyst henni fyrir og segist stefna ótrauð að betri heimi, með aukin jöfnuð og velferð að leiðarljósi. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á félagsstörfum og stjórnarmálum. Ég vil láta gott af mér leiða í samfélaginu okkar og valdi því að fara þessa leið. Ég hef gott og traust bakland, sem er forsenda þess að geta starfað á hinum pólitíska vettvangi.“ svarar hún hispurslaust, spurð um upphafið að stjórnmálaþátttökunni hjá sér. Samhliða setu sinni í bæjarstjórn Fjarðabyggðar, hefur Eydís gegnt ýmsum trúnaðarstörfum á vettvangi sveitarfélaganna, s.s. í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga, Hafnasambands Íslands, Starfsendurhæfingar Austurlands og Vaxtasamnings Austurlands. Það vita svo eflaust færri, að henni voru upphaflega ætluð allt önnur örlög en að alast upp á Austfjörðum. Foreldrar Eydísar, Ásbjörn Guðjónsson og Guðrún Valgerður Friðriksdóttur, eru fædd og uppalin í Vestmannaeyjum, en í kjölfar eldgossins í Heimaey tók fjölskyldan sig upp og fluttist austur á firði. Skömmu síðar eða um sumarið 1973, fæddist Eydís og ólst upp á Eskifirði. Þar býr hún nú með eiginmanni sínum, Kristjáni Svavarssyni, umhverfistækni hjá Alcoa og tveimur yngstu sonunum. Barnalán er mikið á bænum, en Eydís á Ásbjörn, 25 ára, Andrés, 24 ára og Pálma sem er 12 ára og stjúpbörnin Þórhildi, 31 árs og Svavar Kristján, 24 ára. Málefnasamningur meirihlutans (Fjarðalistans og Framsóknarflokks) undirritaður í júní 2018. Á myndinni eru: Pálína Margeirsdóttir, Sigurður Ólafsson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir og Einar Már Sigurðarson í efri röð. Fyrir framan eru þau Jón Björn Hákonarson og Eydís Ásbjörnsdóttir. Eydís með syni sínum, Pálma Kristjánssyni, við opnun Norðfjarðarganga þann 11. nóvember 2017.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.