Sveitarstjórnarmál - 2019, Blaðsíða 23
23
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is • tengi@tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
OLÍUSKILJUR
• Þýsk gæði og hugvit
• Hægt að fá í mismunandi útfærslum
• Olíuskiljur í flokki II
• Áralöng reynsla
fyrir minni iðnaðargólf
Um helstu áhugamál segir Eydís, að
fjölskyldan hafi alltaf verið í fyrsta sæti.
„Seinustu árin höfum við haft tækifæri til að
ferðast víða sem við höfum mjög gaman af.
Svo er ég mikil félagsmálamannaeskja og
sem bæjarfulltrúi næ ég því að samtvinna
vinnuna mína og það áhugamál. Ég hef
áhuga á hönnun og nýsköpun og fylgist þar
með. Lestur góðra bóka er mín leið til að
slaka á“
Eydís var á síðasta kjörtímabili eina konan
af þremur bæjarráðsfulltrúum og kannast
vel við þá stöðu að vera „eina kona“. Hvernig
leggst það í hana? „Við verðum að vera
vakandi fyrir því að frammistöðu og hæfni
fólks til ákveðinna starfa ber að meta á fleiri
forsendum en kynjasjónarmiðum eingöngu.
En, ef ég er eina konan á staðnum og allt hitt
eru karlar, þá eru það auðvitað skýr skilaboð
um að fjölga þurfi konum. Að sjálfsögðu
skiptir alltaf máli að kynjahlutföll sé sem
allra jöfnust. Um það eru, held ég, allir
sammála. Að ég sé „eina“ eða „fyrsta“ konan
er því ekki lýsandi fyrir stöðu jafnréttismála,
hvorki hér fyrir austan eða landið í heild.
Sum vígi virðast bara falla seinna en
önnur,“ segir hún og áréttar að í því felist
þó ekki þau skilaboð, að slá megi slöku við,
hvorki í stjórnmálunum eða annars staðar
í samfélaginu. “Á síðustu misserum hefur
vitundarvakning um jafnrétti kynjanna, sem
betur fer aukist til muna með #metoo og Í
skugga valdsins byltingunni. Við verðum að
vera vakandi og breyta þessari menningu
sem hefur viðgengist alltof lengi. Þetta er
umræða sem má ekki sofna!“
Reglur um notkun snjalltækja í
skólum
Á síðasta ári vakti bæjarstjórn Fjarðabyggðar
athygli fyrir reglur um notkun snjallsíma
í grunnskólum sveitarfélagsins. Eydís
segir að þverpólitísk samstaða hafi tekist
um þá ákvörðun og hafi takmarkanir
tekið gildi frá og með 1. febrúar sl. „Áður
en ákvörðunin var tekin, var leitað eftir
áliti skólastjórnenda og sálfræðinga hjá
Skólaskrifstofu Austurlands,“ bendir Eydís
á og segir að álit sálfræðinganna hafi verið
það afdráttarlaust, að ákveðið var að setja
verulegar takmarkanir á notkun eigin
snjalltækja. „Rannsóknir benda til þess að
snjallsímar og samfélagsmiðlar hafi slæm
áhrif á einbeitingu, námsárangur, andlega
líðan og heilsu.“ Samhliða innleiðingu á
skýrum notkunarreglum hafi skólarnir verið
útbúnir nægum fjölda af snjalltækjum og
fartölvum svo að nemendur geti nýtt sér
netið til náms. „Þessi tæki eru í notkun
undir eftirliti kennara og eru ekki notuð á
milli kennslustunda. Það verður jafnframt
áhugavert að fylgjast með því hvernig
þróunin verður í skólastarfinu eftir þessar
breytingar.“
Eydís þekkir vel til skólastarfs. Næsta
haust eru 20 ár liðin frá því að hún gerðist
framhaldsskólakennari við Verkmenntaskóla
Austurlands í Neskaupstað. Það var árið
1999 og upphaflega ætlaði hún að kenna
BJARTSÝN BARÁTTUKONA