Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 2019, Blaðsíða 27

Sveitarstjórnarmál - 2019, Blaðsíða 27
www.landsnet.is RAFMAGNAÐ SAMBAND VIÐ FRAMTÍÐINA og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun skipi stöðugt hærri sess í stefnumörkun og starfi evrópskra sveitarfélaga. Íslensk sveitarfélög eru hér engin undantekning og eru Kópavogsbær og Mosfellsbær á meðal brautryðjenda hér á landi hvað varðar heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Evrópskar samstarfsáætlanir Á vegum Evrópusambandsins eru reknar viðamiklar samstarfsáætlanir, sem miða að aukum félagslegum og efnahagslegum jöfnuði og stuðningi við atvinnuþróun og hagvöxt. Áætlanirnar eru víðtækar og ná til opinberra aðila, sveitarfélaga, fyrirtækja, félagasamtaka og einstaklinga. Ákveðið hefur verið, að á næsta styrkjatímabili 2021-2027, verði áhersla aukin á verkefni sem tengjast loftslagsáætlun Evrópusambandsins. Stefnt er að sem mestri samþættingu áætlananna við loftslagsmarkmið sambandsins og verður a.m.k. 25% styrkjafjármagnsins eyrnamerkt verkefnum á sviði loftslagsmála. EES- samningurinn tryggir íslenskum aðilum aðgang að áætlunum Evrópusambandsins. Í því felast fjölmörg tækifæri fyrir íslensk sveitarfélög, bæði hvað varðar aðgang að fjármagni og samstarf við sveitarfélög innan Evrópusambandsins. Í hverju felst sérstaða sveitarfélaga og lykilhlutverk? Stjórnendur sveitarfélaga gegna lykilhlutverki fyrir aðgerðir stjórnvalda í loftslagsmálum. Samkvæmt Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna eru 70% aðgerða til þess að draga úr losun og 90% fyrirbyggjandi aðgerða bundnar sveitarstjórnarstiginu. Frh. á næstu síðu

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.