Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1983, Blaðsíða 22
son Isfirðingur — hann starfaði síðar við útgerð og fleira
á Isafirði — Marías var nokkuð vel lesinn cg var eitthvað
að stúdera pólitík, og vitnaði eitt sinn í Marx gamla, máli
sínu til stuðnings. Þá umhverfðist Jónas alveg, tók af sér
gleraugun, hummaði og skoaði og las honum og okkur
um leið pistilinn. Hann sagði okkur ýmsar sögur úr sínu
pólitíska lífi. T.d. þegar dr. Helgi Tómasson, yfirlæknir
á Kleppi, ætlaði að dæma hann geðveikan og koma honum
á Klepp. Þessar pólitísku ofsóknir stöfuðu af því að Jónas
gekk í berhögg við vilja læknafélagsins við setningu hér-
aðslækna, en læknastéttin hafði alltaf ráðið þessum veit-
ingum. Þetta endaði á þann veg að Jónas sem var þá
dómsmálaráðherra, rak Helga frá Kleppi, og skrifaði eina
þá allra frægustu blaðagrein sem um getur. „Stóru Bomb-
una.“ Við lásum hana náttúrlega ásamt Kleppsreiðinni,
gamankvæði sem hafði birst í Speglinum á sínum tíma.
Þetta voru skemmtilegir tímar og við kynntumst mönn-
um og málefnum og vorum raunverulega leidd inn í hring-
iðu stjórnmálanna.
Stundum dreifðist nú athyglin yfir á önnur og nálægari
svið eins og gengur, en Jónas var fljótur að uppgötva ef
við flögruðum eitthvað frá. Eitt sinn var ég eitthvað að
kljást við einn skólabróður minn, tók hann undireins eftir
því og segir. „Eh-hemm, eftir mörgum leiðum leita konur
ásta hjá karlmönnum.“ Allir skellihlógu og sáu sökudólg-
inn blóðrjóðan og skömmustulegan. Það þótti ekkert snið-
ugt að stelpurnar væru að leita á strákana. Það skyldi
vera með gamla laginu.
Guðlaugur Rósinkranz, sem siðar varð Þjóðleikhússtjóri,
kenndi okkur sænsku og hagfræði. Hann hafði verið í
Svíþjóð við nám og dáði mjög svo Svía, land og þjóð. Þess
vegna lærðum við sænsku en ekki dönsku. Mig minnir að
Guðlaugur hafi verið á þessum tírna formaður Norræna
félagsins, alla vega í stjórn og starfaði þar mikið. Guð-
laugur var mjög ötull og starfsamur að hverju sem hann
gekk. Ég man að hann bað okkur að selja Norræn jól,
og hvatti okkur til að ganga í Norræna félagið. Síðan hef
18