Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1983, Blaðsíða 71
Garðar Guðmundsson. Sat SVS 1936—38.
F. 17. 10. 1919 á Siglufirði og uppalinn
þar. For.: Guðmundur Hannesson, f. 17.
3. 1881 að Stað í Aðalvík, bæjarfógeti á
Siglufirði, d. 15. 9. 1970, og Friðgerður R.
Guðmundsdóttir, f. 19. 10. 1887 í Korpu-
dal, Arnarfirði, húsmóðir, d. 9. 5. 1973.
Maki 23. 11. 1968: Kristín Bjarnadóttir, f.
9. 8. 1926 í Hafnarfirði, ritari við sendi-
ráð Bandaríkjanna í Reykjavík. — Starf-
aði lengi hjá Vegagerð ríkisins. Á hrepps-
skrifstofunni í Borgarnesi 1956—58 og síð-
ar sveitarstjóri á Reyðarfirði. Var um
fjölda ára starfsmaður í launabókhaldi
varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli.
Garðar Viborg. Sat SVS 1936-38. F. 29.
1. 1917 á Flateyri í önundarfirði og upp-
alinn þar. For.: Guðmundur Pétursson, f.
20. 3. 1891 að Bæ í Trékyllisvík, húsa-
meistari á Flateyri, og María Hálfdánar-
dóttir, f. 28. 10. 1890 að Meirihlíð í Bol-
ungarvík, húsmóðir, d. 14. 2. 1981. Maki
12. 10. 1940: Margrét Ásmundsdóttir, f.
13. 10. 1916 á Akranesi, skrifstofumaður
og húsmóðir. Börn: Áslaug, f. 8. 7. 1941,
húsmóðir, Brynjar, f. 20. 3. 1943, kennari,
Gréta María, f. 8. 3. 1945, húsmóðir, Guð-
mundur, f. 13. 6. 1946, ljósmyndari, Ás-
mundur, f. 15. 9. 1947, tæknifræðingur í
Luxembourg, Sigurlaug, f. 5. 4. 1949,
skrifstofumaður og húsmóðir, Garðar, f.
10. 4. 1951, sálfræðingur í Lundi. — Var
við verslunarstörf framan af árum. Fram-
kvæmdastjóri Sf. Björg á Drangsnesi í
átta ár. Var við útgerð í tvö ár og önnur
67