Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1983, Blaðsíða 77
bergi í Grímsnesi, bóndi að Hjalla í ölfusi
og Skálholti, kennari að Borg í Grímsnesi,
síðar stjórnarráðsfulltr. og ritstj. Stjórnar-
tíðinda, d. 23. 8. 1979, og Jórunn Hall-
dórsdóttir, f. 1. 4. 1892 í Þorlákshöfn, hús-
frú, d. 2. 10. 1919. Maki 10. 11. 1948: Sig-
ríður Theodórsdóttir Bjarnar, f. 10. 8. 1920
í Reykjavík, B.A. frá Háskóla Islands,
kennari við Hagaskóla, Gagnfræðaskóla
Austurbæjar og Réttarholtsskóla. Börn:
Theodór Skúli, f. 20. 12. 1951, skrifstofu-
stjóri Sölustofnunar lagmetis, maki: Ólöf
Helga Pálmadóttir, fóstra, Gunnlaugur, f.
3. 10. 1963, starfsmaður byggingafyrirtæk-
isins Hólabergs. — Var í kvöldskóla KFUM
í Reykjavík og við nám í Veslunarskól-
anum í tvö ár. Nám við Garðyrkjuskólann
að Reykjum 1939—41, við garðyrkjunám
í Bandaríkjunum 1943 og 1944. Garðyrkju-
stjóri KEA 1941—42. Garðyrkjumaður í
Reykjavík 1945—47 en sumarið 1946 garð-
yrkjustjóri Kf. Isfirðinga í Reykjanesi við
Djúp. Aukakennari við Garðyrkjuskólann
sumarið 1947. Innanþingsskrifari á Alþingi
á sex þingum frá 1945. Starfsmaður Lands-
banka Islands 1947—54. Bankafulltrúi í
Iðnaðarbankanum 1954—67. Síðan aðal-
gjaldkeri Lánasjóðs sveitarfélaga, Bjarg-
ráðasjóðs og Sambands ísl. sveitarfélaga.
Formaður Félags garðyrkjumanna 1945. 1
fyrstu stjórn Félags garðyrkjubænda. 1
stjórn Garðyrkjufélags Islands. 1 stjórn
Sambands ísl. bankamanna. Formaður
starfsmannafélags Iðnaðarbankans 1956. 1
ritnefnd Garðyrkjuritsins, og hefur skrifað
í það greinar um garðyrkju og gróður-
húsarækt.
73