Breiðholtsblaðið - nov. 2018, Síða 11

Breiðholtsblaðið - nov. 2018, Síða 11
11BreiðholtsblaðiðNÓVEMBER 2018 Ýmsar breyt ingar hafa verið gerðar á verslun Nettó í Mjóddinni. Ásýnd hennar hefur verið uppfærð og aðgengi að vörum bætt til muna. Vöruúrval verður sífellt fjölbreyttara og nýjungar líta dagsins ljós. Megin breytingin felst þó í að teknir hafa verið í notkun nýjar sjálfsafgreiðslustöðvar þar sem viðskiptavinir afgreiða sig sjálfir. Þegar komið er í verslunina vekur bjart yfirbragð hennar strax athygli og hversu aðgangur að vörum er góður. Vörum er raðað upp með þeim hætti að mjög auðvelt er að koma auga á þær og nálgast. Algengt er að fólk komi með innkaupalista í stórar verslanir á borð við Nettó eða nýti minnisrými í símum sínum til þess að minna sig á hvað fólk vanhagar um. Margir þekkja að hafa þurft að fara nokkra hringi um í verslunum til að finna það sem það hefur skráð á lista sína eða telur sig þurfa að kaupa. Með nýrri uppfærslu á vörustæðum í Nettó í Mjódd ætti slíkt ferðalag að vera óþarft því auðvelt er að ganga að hverju og einu og stutt á milli vara sem tengjast á einhvern hátt. Þegar ferð um verslunina er lokið og hvort sem keypt hefur verið í stóra innkaupakerru eða minni er komið að því að greiða fyrir vörurnar. Í stað þess að fara í biðröð við næsta afgreiðslukassi getur fólk nú farið að sjálfsafgreiðslukössum þar sem það setur strikamerkin á vörunum að skanna sem les um hvaða vöru er að ræða og hvað hún kostar. Kassinn reiknar síðan út heildarverð innkaupanna og færir yfir í posa sem les greiðslukort viðskiptavina. Í þessu felast mikið þægindi einkum þegar fólk hefur vanist þessum verslunarmáta. Hefðbundnum greiðslukössum hefur þó ekki alveg verið lokað – en fækkað og eru þeir einkum hugsaðir fyrir fólk sem kýs að greiða með peningum. Þessum nýja verslunarmáta hefur verið tekið mjög vel en sumir þurfa smá tíma til þess að venjast nýjungunum. Að lokum má geta þess að nú er hægt að panta vörur á vefnum netto.is og sækja þær síðan í Mjóddina. Það skapar hagræði og tíma að þurfa ekki að ganga sjálfur um verslunina og raða sjálfur í innkaupakörfuna. Verslunin uppfærð og sjálfsafgreiðsla tekin upp Nettó í Mjódd Nú fer hver að verða síðastur að panta tíma fyrir jólin. Tímapantanir í síma 557-2910. Hársetrið er staðsett í Æsufelli 6 á neðstu hæð. Facebook.com/harsetrid og instagram.com/harsetrid. brm.is ORÐ HAFA ÁHRIF Möntru armböndin. Þau einu sönnu. Sígild í einstökum gjafaumbúðum. Silfur, gull, rósagull. Eingöngu í Systrasamlaginu. Erum á Óðinsgötu 1 Netverslun: systrasamlagid.is www.breiðholt.is

x

Breiðholtsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.