Vesturbæjarblaðið - sep. 2017, Side 2

Vesturbæjarblaðið - sep. 2017, Side 2
Heiti potturinn er sjóður sem styrkir opið félagsstarf í félagsmiðstöðvum og samfélagshúsum í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum. Félagsstarf í félagsmiðstöðvum/ Samfélagshúsum Velferðasviðs er vettvangur samskipta og skapandi athafna til þess að koma í veg fyrir félagslega einangrun. Einstaklingar og hópar geta sótt um styrki vegna verkefna í opnu félagsstarfi s.s. vegna námskeiða, ferðalaga, íþróttaiðkunar, fræðslu og skemmtana. Leitast skal við að veita styrki til verkefna sem eru opin öllum þátttakendum í félagsstarfi og falla að hlutverki félagsmiðstöðva/samfélagshúsa eða teljast á annan hátt vera í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun í félagsstarfi. Sjóðurinn styrkir einnig eflingu og þróun á verk- efnum sem þegar eru í gangi. Markmiðið með heita pottinum er að auka þátttöku og virkni í opnu og sjálfbæru félagsstarfi. Að auka hlut íþróttaiðkunar og hreyfingar í opnu og sjálfbæru félagsstarfi. Að efla fræðslu og miðlun upplýsinga í opnu og sjálfbæru félagsstarfi. Að rækta félagsauð og auka fjölbreytni í opnu og sjálfbæru félagsstarfi. Reglur um styrkveitingu eru að umsækjendur séu eldri en 18 ára. Verkefni verði framkvæmt í Vestur- bæ, Miðborg eða Hlíðum. Hámarksupphæð styrks er 200.000 krónur. Nánari upplýsingar veitir Sigríður Arndís Jóhannsdóttir í Þjónustumiðstöð Vesturbæ- jar, Miðborgar og Hlíða, sími – 411-1600. Umsóknar- frestur er til og með 2. október 2017. Umsóknar- eyðublöð má nálgast á heimasíðu Þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða. Umsókn skal senda inn á netfangið: sigridur. arndis.johannsdottir@reykjavik.is 2 Vesturbæjarblaðið Útgefandi: Borgarblöð ehf. Eiðistorgi 13-15 • 172 Seltjarnarnes • Pósthólf 171 Rit stjóri: Þórður Ingimarsson • Sími 551 1519 • 893 5904 Netfang: thordingimars@gmail.com Auglýsingasími: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298 Heimasíða: borgarblod.is Net fang: borgarblod@simnet.is Framkvæmda- og aug lýs inga stjóri: Krist ján Jó hanns son Um brot: Valur Kristjánsson Prentun: Landsprent ehf. Dreif ing: Morgunblaðið 9. tbl. 20. árgangur Vesturbæjarblaðinu er dreift í hvert hús í póstnúmerum 107 og 101. Nefnd hefur verið skipuð um hver geti orðið ásættanleg lausn á framtíð Reykjavíkurflugvallar. Hún á vanda fyrir höndum. Fáir kostir eru í stöðunni. Engum blandast hugur um að Reykjavíkurflugvöllur gegnir öryggishlutverki miðað við flugsamgöngur eins og þær eru í dag. En þurfa þær að vera svo um alla framtíð. Íslendingar hafa í raun aldrei byggt flugvöll. Reykjavíkur- og Keflavíkurflugvellir voru byggðir af Bretum og Bandaríkjamönnum vegna heimstyrjandarinnar 1939 til 1945. Spyrja hvar flugmál Íslendinga stæðu hefði ekki komið til styrjaldarátakanna. L jóst má vera að Reykjavíkurflugvöllur verður ekki gerður að millilandaflugvelli til hliðar við Keflavíkurflugvöll. Til þess er hann of lítill, stendur á of þröngu svæði og er að stærstum hluta inn í miðri borg. E igi Reykjavíkurflugvöllur að þjóna millilandaflugii verður að færa hann út á sjó – jafnvel út á Löngsker sem stundum hefur komið til umræðu. Íbúar Reykjavíkurborgar mundu aldrei sætta sig við aðflug og flugtök stórra farþegavéla yfir borginni á öllum tímum sólarings og alla daga ársins. E f Íslendingar ætla að verða miðlægir í flugsamgöngum yfir Atlantshafið eins og Loftleiðafrumherjarnir lögðu upp með verða þeir að byggja annan millilandaflugvöll í nánd við höfuðborgarsvæðið. Keflavíkurflugvöllur eins og hann er í dag getur ekki þjónað stöðug vaxandi flugumferð. E f til vill er spurningin um hvort valið standi á milli fluglestar eða flugvallar í nágrenni höfuðborgarinnar og þá líkast til í Hvassahrauni ef ekki verður hægt að ráðast í hvort tveggja. Reykjavíkurborg þarf líka á landinu sem liggur nú undir flugbrautum að halda til annars en flugvallar sem aldrei mun geta þjónað alþjóðlegri umferð. Ö ryggisþátturinn og framtíð flugmála sem byggist á nýrri flugvallagerð fara því saman. Um nýjan flugvöll og öryggið Vesturbæingar Í hvaða heita pott á ég að fara? SEPTEMBER 2017 ALHLIÐA MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR www.husavidgerdir.is/hafa-samband info@husavidgerdir.is - Sími 565-7070 Finndu okkur á Fegrun og lenging líftíma steyptra mannvirkja er okkar áhugamál. Við höfum náð góðum árangri í margs konar múr- og steypuviðgerðum, múrfiltun, steiningu og múrklæðningum. Hafðu samband Við skoðum og gerum tilboð! Hagaskóli fékk Menningar fánann fyrir framúrskarandi menningarstarf með börnum og unglingum og fyrir að hlúa að listakennslu og skapandi starfi á dögunum. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti fánann við líflega athöfn á Kjarvalsstöðum þar sem menningarstofnanir borgarinnar héldu stefnumót og kynntu fræðslustarf sitt á komandi skólaári. Hagaskóli er fyrsti unglingaskólinn í borginni sem flaggar Menningarfánanum. Í skólanum skipa list- og verkgreinar veigamikinn sess. Allir nemendur hafa víðtækt val og flóru listgreina í sinni stundatöflu. Hagaskóli er í Evrópusamstarfi um nýbreytni í kennsluaðferðum og tekur þátt í ýmsum þverfaglegum verkefnum sem miða að því að örva listsköpun. Eitt þeirra felur í sér að nemendur skrifa barnasögur sem þeir fara með í leikskóla í Vesturbænum og lesa upp fyrir börnin þar. Á vorin eru þemadagar þar sem nemendur fá frjálsar hendur til listsköpunar og sýna þeir afraksturinn á uppskeruhátíðinni Listadögum. Þá setur Hagaskóli upp leikverk annað hvert ár þar sem margir unglingar fá að spreyta sig í ólíkum hlutverkum sviðslistarinnar. Hagaskóli fékk Menningarfánann Menningarfáninn var afhentur á Kjarvalsstöðum. Heiti potturinn í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum - markmiðið að auka þátttöku og virkni í opnu og sjálfbæru félagsstarfi Seljum allt lín til Hótela, Gistiheimila, RB&B, Heilsustofnana og Veitingahúsa. Þýsk gæðavara frá Zollner sérstaklega hannað með mikinn þvott í huga og einstaklega slitsterkt.

x

Vesturbæjarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.