Vesturbæjarblaðið - sep. 2017, Side 10
10 Vesturbæjarblaðið SEPTEMBER 2017
Starfið í félagsmiðstöðinni
Frosta fer vel af stað og má
gr e ina mik la spennu og
eftirvæntingu fyrir komandi
mánuðum. Krakkarnir í 5. 6. og
7. bekk hafa skipulagt dagskrá 10
til 12 ára starfsins fyrir komandi
vikur og er margt skemmtilegt
framundan.
Til dæmis má nefna kökukeppni,
Minecraft byggingakeppni og
neonball í Hagaskóla. Unglingar-
nir í 8. til 10. bekk hafa einnig
skipulagt sína dagskrá og ætla þau
meðal annars að fara í ísferð, hafa
trúnóspjall, halda ball og keppa
við hinar félagsmiðstöðvar Tjarn-
arinnar í óhefðbundum greinum á
Tjarnarleikunum. Roleplayklúbb-
urinn og Umhverfisklúbburinn
hafa þegar tekið til starfa og eru
ýmsar fleiri hugmyndir í gangi
varðandi klúbba- og hópastarf
fyrir veturinn. Nokkrir áhugasamir
unglingar hafa þegar hafið
undirbúning fyrir stærri viðburði
vetrarins eins og Danskeppni
Samfés og hönnunarkeppnina
Stíl. Það er því fjölbreytt og
skemmtilegt starf framundan í
félagsmiðstöðinni Frosta í vetur
og ættu allir að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi.
Fjör í félagsmiðstöðinni Frosta
Frá félagsstarfinu í Frosta.
- starfið fer vel af stað
Frístundaheimilið Selið í
Melaskóla fékk á síðasta ári
þróunarstyrk hjá Reykjavíkur-
borg til þess að færa foreldra-
samskipti inn í nútímann.
Foreldrar vilja fá meiri upplýs-
ingar en áður og Selið vill mæta
foreldrum þar. Selið hafði
áður haldið úti heimasíðu og
facebook hóp sem Selinu þótti
skref í rétta átt en ekki nóg fyrir
foreldra nútímans.
Selið nýtti styrkinn vel og fór af
stað með ýmiss verkefni. Börnin
stofnuðu blaðamannaklúbb
sem gaf út tvö Selsblöð. Annað
að hausti og hitt að vori. Blaða-
mannaklúbburinn hélt einnig úti
vefsíðu þar sem er hægt að hlusta
á viðtöl, lesa það sem þau skrifa
og margt fleira. Selið gefur einnig
út veftímarit vikulega sem heitir
Vikupóstur þar sem farið er yfir
það sem hefur verið á döfinni og
veitir vikulega innsýn í starfið.
Skilaboðatafla Selsins er annar
hluti af verkefninu. Með henni fá
foreldrar allar helstu upplýsing-
ar og lykiltölur á hverjum degi.
Selið setti á fót snapchat aðgang
svo foreldrar geti fylgst með í
rauntíma hvað er í gangi og Selið
efldi myndbandagerð heilmikið til
að geta sýnt betur frá viðburðum
sem eiga sér stað. Verkefnið vakti
almennt mikla lukku hjá foreldr-
um og hefur verið góð áskorun
fyrir starfsfólk.
Nútíma foreldra-
samskipti í Selinu
BÍLSKÚRSHURÐIR
Smíðum hurðar eftir málum hverju sinni. Eigum alla
varahluti til á lager og því hægt að gera við skemmda hurð
frá okkur samdægurs.
Minnst 15.000 opnanir sem jafngildir 20 ára endingu miðað
við 2 opnanir á dag 365 daga ársins. Einangrun í hurðunum
er úr polyuretan sem hefur tvöfalt einangrunar gildi á við
polystyren og dregur einnig síður í sig vatn. Hafðu
samband í dag og fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum.
Bílskúrshurðir
Hágæða íslensk
framleiðsla
Stílhreint og
nútímalegt útlit
Framúrskarandi
einangrun og
þéttingar
Mikill styrkur gegn
vindálagi og veðrun
Gf
Fyrsta flokks
þjónusta og ráðgjöf
VAGNAR & ÞJÓNUSTA
Tunguháls 10,
110 Reykjavík
567-3440
vagnar@vagnar.is
www.vagnar.is
Smíðum hurðar eftir máli.
Eigum alla varahluti til á lager og því hægt að gera við
skemmda hurð frá okkur samdægurs.
Minnst 15. 00 op anir sem jafngildir 20 ára endingu
miðað við 2 opnanir á dag 365 daga ársins.
Einangrun í hurðunum er úr polyuretan sem hefur
tvöfalt einangrunar gildi á við polystyren og dregur
einnig síður í sig vatn. Hafðu samband í dag og
fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum.
Ekkert mun verða af því að Rússneska rétttrúnaðarkirkjan
reisi bjálkakofa fyrir starfsfólk og gesti kirkjunnar ásamt sölubúð
við Mýrargötu. Í umsögn skipulagsfulltrúa sem hafnað hefur ósk
rétttrúnaðarkirkjunnar kemur fram að lóðir við Mýrargötu séu ekki
ætlaðar fyrir smásölu í tímabundnum bjálkakofum.
Trúfélagið hefur fengið lóð frá borginni undir kirkju og safnaðarhús
á Mýrargötu 23 til 25. Félagið hafði sótt um að fá að reisa átta fermetra
söluhús og starfsmannaaðstöðu en breytti umsókninni og bað um
leyfi fyrir 26 fermetra húsi. Skipulagsfulltrúi telur að bjálkakofi fyrir
starfsmenn og gesti kirkjunnar sé óþarfur þar sem hvorki aðaluppdrættir
né framkvæmdir á lóðinni liggja fyrir að svo stöddu. Kofinn styrki heldur
ekki götumynd og sé ekki í samræmi við stefnu um virkar götuhliðar.
Þessi mynd var tekin þegar fyrsta skóflustungan var tekin að
Rússneskri rétttrúnaðarkirkju við Mýrargötu að viðstöddum Ólafi
Ragnari Grímssyni þáverandi forseta Íslands.
Engin rússneskur
bjálkakofi við Mýrargötu