Vesturbæjarblaðið - sep. 2017, Side 11
11VesturbæjarblaðiðSEPTEMBER 2017
Nú er allt að fara af stað
í félagsmiðstöðinni á Afla-
grandi. Harmónikuball verður
mánudaginn 2. október þar
sem nýstofnuð hljómsveit af
Vitatorginu leikur fyrir dansi.
Ætlunin er að efna til har -
mónikuballs fyrsta mánudag
í hverjum mánuði. Ballið fer
þannig fram að dansað er fram
að kaffi en að kaffidrykkju
lokinni er sungið. Með því eru
verið að bjóða meiri fjölbreytni
einkum fyrir þá sem ekki geta
dansað til þess að vera með og
eiga góða stund í salnum.
En mánudagsdansleikirnir
eru bara brot af því sem verið
er að gera í félagsstarfinu á Afla-
granda. Foreldramorgnarnir eru
að hefjast. Þeir verða á miðviku-
dagsmorgnum. Foreldramorgnar-
nir byggjast á því að foreldrar
koma sama með ung börn sín
og eiga góða stund. Nú kemur
eitthvað af nýjum foreldrum
í foreldrastarfið vegna þess að
sum börn sem voru þar á síðasta
ári eru komin í leikskóla. Þá má
geta þess að Leynileikhúsið
er að hefja námskeið fyrir fyrir
börn úr Grandaskóla. Skólinn
hefur ekki húsnæði til að sinna
þessu verkefni en mjög stutt er
á milli skólans og félagsstarfsins
á Aflagranda og geta börnin því
gengið á milli húsa. Línudansinn
er á sínu stað á Aflagrandanum.
Línudanstímarnir hafa alltaf verið
sérstaklega skemmtilegir. Fólk
hefur skemmt sér hið besta og
mikið verið hlegið. Upphaflega
var um tilraun að ræða en svo vel
mæltist línudansinn fyrir að nú
er hann orðinn fastur dagskrár-
liður. Línudansinn er á miðviku-
dögum og eftir dansinn og kaffi
kemur Hrafn Jökulsson með
bókmenntaerindi sitt. Leikfimin
er á sínum stað og einnig boccia
og nú er verið að kanna mögu-
leika þess að koma pokamiðstöð
á fót en það er hópur sem
mynd sauma innkaupapoka til
þess að draga úr notkun plast-
poka. Pokasmiðjur hafa starfað á
nokkrum stöðum á landinu. Ung
stúlka úr Hagaskóla kom þessari
hugmynd á framfæri og hér með
er lýst eftir fólki sem vill koma og
mynda svona hóp. Ætlunin er að
hefja pokasauminn í október ef
nægjanleg þátttaka næst.
Allt að fara af stað á Aflagranda
Frá Harmónikuballi á Aflagranda.
BÍLAVIÐGERÐIR
GRANDA
FISKISLÓÐ 83 - 101 REYKJAVÍK
S: 562 5999 S: 669 5999
Steinsmiðjan Rein | Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Kvarts steinn er unnin steinafurð. Við framleiðslu kvarts steinsins er nýtt það besta úr kvartsi með því að mylja
steininn niður, blanda í hann litar- og bindiefnum áður en steinninn er aftur pressaður saman.
Útkoman er mjög slitsterkt efni með þéttara yfirborð en hefðbundinn náttúrusteinn.
silestone.com
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendum með Silestone.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
Kvartssteinn
í eldhúsið
Þann 31. október næstkomandi
eru 500 ár liðin frá atburði sem
gerbreytti mannkynssögunni. Þá
mótmælti munkurinn Marteinn
Lúther aflátssölu kirkjunnar og
sagan segir að hann hafi neglt blöð
með 95 andmælum á kirkjudyrnar
í Wittenberg. Upp frá því hófst
atburðarás sem leiddi til þess að
kirkjan klofnaði.
Lúther var merkilegur höfundur.
Að sumu leyti var hann byltingar-
maður, framsýnn og frumlegur í
hugsun. Hann ögraði valdinu og
höfðaði fremur til samvisku sinnar
en embætta og samþykkta kirkjunn-
ar. Á öðrum sviðum var hann barn
síns tíma, fæddur á miðöldum og
lifði tíma mikilla átaka. Hann hvatti til
ofsókna gegn uppreisnarsinnum úr
röðum bænda og sendi frá sér kver
þar sem hann formælti gyðingum
með afdrifaríkum hætti.
Á okkar dögum tilheyra um 400
milljónir kristinna manna söfnuðum
sem kenna sig við guðfræði Lúthers.
Þjóðkirkjan á Íslandi er í þessum
hópi en þar er vel að merkja ekki
litið á þennan áhrifaríka mann
sem dýrling. Þvert á móti er gagn-
rýni og sjálfsmat inngreypt í hug-
myndafræði þessara samtaka og
er upphafsmaðurinn síður en svo
undanskilinn slíku.
Námskeiðið er ókeypis og hægt
er að sækja einn viðburð eða fleiri
í Neskirkju.
Sunnudagur 8. október kl. 16:00
Leikrit um Lúther
Verkið fjallar um æskuár Lúthers
og spurt hvers vegna hann setti
fram gagnrýni á kaþólsku kirkjuna
sem á þeim tíma þótti óhugsandi.
Stoppleikhópurinn flytur verkið eftir
handriti, í leikgerð og leikstjórn Val-
geirs Skagfjörðs og Stoppleikhópsins.
Leikritið er ætlað fullorðnum og eldri
börnum. Valgeir Skagfjörð, Eggert A.
Kaaber og Katrín Þorkelsdóttir fara
með hlutverk í sýningunni.
Þriðjudagur 10. október kl. 20:00
Gramsað í kolli Lúthers
Hvað var gamalt og hvað var nýtt
í þessari guðfræði? Fjallað verður
um helstu kenningar hans sem draga
má fram í slagorðum siðaskipt-
anna: Ritningin ein (sola Scriptura),
náðin ein (sola Gratia), trúin ein
(sola fidei).
Þriðjudagur 17. október kl. 20:00
Tímar umskipta og átaka
Hver var atburðarás siðaskipt-
anna, bæði á meginlandi Evrópu og
hér uppi á Íslandi? Hverjir komu þar
við sögu og hvað dilk drógu þeir
atburðir á eftir sér?
Þriðjudagur 24. október kl. 20:00
500 árum síðar
Hvað er að vera lúthersk? Sagt frá
starfi Lútherska heimssambandsins
sem er í hópi öflugustu hjálpar-
samtaka í heimi. Gestur kvöldsins er
Magnea Sverrisdóttir sem átti sæti í
stjórn sambandsins um árabil.
Þriðjudagur 31. október kl. 20:00
95 hurðir
Siðbótarafmæli í Neskirkju. Gagn-
rýni og sjálfsrýni á okkar dögum.
Opnuð verður sýning Rúnars Reynis-
sonar á 95 íslenskum kirkjuhurðum.
Samantekt og umræður.
Námskeið í tilefni 500
ára afmæli siðaskiptanna
Legið yfir Lúther í Neskirkju