Vesturbæjarblaðið - sep. 2017, Síða 13

Vesturbæjarblaðið - sep. 2017, Síða 13
13VesturbæjarblaðiðSEPTEMBER 2017 einungis merki til Erlings um að matmálstími væri upprunninn heldur hlýddum við öll hin kallinu, hættum leik þá hæst stóð og hver fór til síns heima í mat. Man enn þennan lagstúf. Áramótabrennur Ég get varla skilið við min- ningarnar úr Skjólunum án þess að minnast á áramótabren- nuna. Svo stóran sess sem hún skipaði í lífi okkar. Þær voru jafnan stórir viðburðir. Á tímabili voru fjórar áramótabrennur á strandlengjunni við Ægisíðu, Faxaskjól og Sörlaskjól. Söfnun hófst í byrjun nóvember og stóð sleitulaust til gamlársdags. Það sköpuðust ákveðnar hefðir í kringum brennuhaldið og hver brenna var með sínu sniði. Sam- keppnin var hörð um stærstu brennuna. Brennuhefðin hefur haldist þótt breytt sé. Ægisíðu- brennan sem við þekkjum í dag er gamla Faxaskjólsbrennan. Á þessum árum kom fólk saman við brennuna og söng hástöfum áramóta lög in . Í hver f inu bjuggu prýðis söngmenn þar á meðal faðir minn. Sundlaug Vesturbæjar og Háskólabíó Merki um aukna velsæld er án nokkurs vafa þegar tvö mannvirki risu á sjötta og sjöunda áratugunum í Vesturbænum. Háskólabíó og Sundlaug Vesturbæjar sem hafa rækilega sannað gildi sitt fyrir andlega og líkamlega iðkun. Bíóhefð var rík í Skjólunum og var tilkoma Háskólabíós sem hvalreki fyrir okkur. Bíóið var strax samkomustaður ungmenna í Vesturbænum. Ákjósanlegur staður. Vel staðsettur í miðri byggðinni og með stóru anddyri. Held að ég hafi séð nánast allar myndir sem sýndar voru þar á þessum árum. Bíóið varð einskonar félagsmiðstöð. Bíóferðin er ekki síður félagsleg athöfn en menningarleg eða skemmtun. Svo var auðvitað blossandi rómantík þarna. Ekki síðra í Skjólunum Það er alltaf jafn ánægjulegt að rekast á gamla æskufélaga á förnum vegi og taka spjall saman. Það er gott að búa í Kópavogi, segir máltækið. Það var ekki síðra að búa í Skjólunum á þessum árum skal ég segja. Tel mig afar lánsaman að hafa alist upp á góðu heimili, á fallegum stað á meðal góðra vina. Er hægt að biðja um meira? Bjarni ásamt eiginkonu sinni Sigrúnu Gunnarsdóttur og dætrum þeirra. Æ fleiri eldri borgarar mæta sér til gagns og ánægju á „Krossgötur” á þriðjudögum kl. 13:00. Þar er boðið er upp á erindi og kaffiveitingar og fólki gefst kostur á að kaupa súpu á vægu verði í hádeginu. Einnig er u kyr rðarstun- dir kl. 12:30 annan hvern þriðjudag. Margir góðir gestir hafa sótt okkur heim og margt er á döfinni. Árelía Eydís Guð- mundsdóttir hóf dagskrána og ræddi tækifærin sem standa til boða, „í seinni hálfleik" til að lifa innihaldsríku lífi; Bogi Ágústsson setti okkur inn í viðburði heimsmálanna og Árni Bergmann ræddi svo um „listina að eldast”. Loks er að geta heimsóknar hópsins á Bessastaði, þar sem forsetinn tók á móti okkur. Guðni Th. Jóhannesson var reglulegur gestur á Aflagranda um árabil og vann þar þakklátt starf. Framundan er viðburðarík dagskrá. Kristín Gunnlaugs- dóttir myndlistarkona kemur í byrjun október og svo syngja og flytja þeir Gissur Páll Gissurarson og Steingrímur Þórhallsson óð til hins fagra lífs í tali og söng. Dagskrána í held sinni má sjá á heimasíðu Neskirkju: www.neskirkja.is/ starfid/aldradir Fjöldi góðra gesta á krossgötum í Neskirkju Æskuheimilið við Faxaskjól sem foreldrar hans byggðu 1946.

x

Vesturbæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.