Brautin - 15.12.1998, Síða 15

Brautin - 15.12.1998, Síða 15
BRAUTIN Grýla Grýla hefur lítið verið nefnd á nafn á undanförnum árum er jólin nálgast. Það er eins og þessi gamla skrukka sé endan- lega að falla í gleymskunnar dá og kannski ekki skrítið því fæstir nota þá uppeldisaðferð í dag að hræða börn sín með forynjum og illfyglum til að halda þeim góðum. En það væri synd ef Grýla gleymdist með öllu því um hana eru til bæði skemmtilegar sögur og kvæði. Þetta var hörkukvendi sem varð mörg þúsund ára gömul, átti þrjá eiginmenn og að minnsta kosti sjötíu og tvö börn. Ekki nóg um það heldur var það hennar að sjá um að fæða fjöl- skyldu sína og klæða og fer ekki sögum af því að eiginmenn hennar hafi hjálpað mikið til við þá iðju. Eiginkonan Grýla En byrjunin á eiginkonunni Grýlu. Hún er mikilfengleg ásýndum og ekki laust við að hún hafi skyggt á eiginmenn sína alla bæði hvað útlit og athæfi varðaði. Fyrsti eigin- maður hennar er talinn hafa verið Boli og áttu þau fjölda barna saman. Hann andaðist úr elli fjörgamall og hafði lengi áður legið í kör. Annar eigin- maður Grýlu kallaðist Gustur. Af honum fara litlar sögur og er talið að Grýla hafi étið hann þegar hann geispaði golunni. Þriðji eiginmaðurinn og jafn- framt sá frægasti var Leppalúði. Þau voru að minnsta kosti í fimm þúsund ár í hjónabandi og átti hann tuttugu og eitt barn. Móðirin Grýla Það er erfitt að gera sér í hugarlund hvers konar móðir Grýla hefur verið. En þó virðist hún hafa borið önn fyrir sínum afkvæmum og lagt rnikið á sig til að fæða þau og klæða. Ekki er vitað með vissu hvaða börn hún átti með hveijum eiginman- na sinna enda ekki einu sinni víst að hún hafi átt þau öll ein- ungis með þeim. Nafngreind börn Grýlu voru: Leppur, Skreppur, Langleggur og Leiðindaskjóða, Þröstur, Þrándur, Böðvar, Brynki, Bolli, Hnútur, Koppur, Kyppa, Strokkur, Strympa, Dallur, Dáni, Sleggja, Sláni, Djangi, Skotta, Nípa, Típa, Næja, Tæja, Nútur, Pútur, Kútur, Bútur, Hnútur, Stútur, Strútur, Nafar, Tafar, Láni, Gráni, Loki, Poki, Leppatuska, Loðinn, Lúpa, Lápur, Skrápur, Stefnir, Taska, Stikill, Flaska, Kyllir, Höttur, Botni, Bokka, Ausa, Askur, Ljótur, Skráma, Stampur, Stefna, Mösull, Mukka, Hnyðja, Hnýfill, Bikkja, Jónas tveir og Þóra, Völustallur og Bóla, Sigurður og Sóla, Dúðadurtur, og tvíburarnir Sighvatur og Syrpa sem dóu bæði. Að auki eru jólasveinarnir taldir synir Grýlu og verða bömin þá áttatíu og fimm að tölu. Jólasveinarnir eru tvímæla- laust þau börn Grýlu sem lengst hafa náð í lífinu. Þeir hafa sann- arlega ekki gleymst í tímanna rás og virðast ætla að lifa minn- ingu móður sinnar. En þeir hafa líka gert það sem móðir þeirra gerði ekki, fylgst með tímanum og breytt um ímynd í aldanna rás. Þeir voru óttalega kranga- legir í útliti fram eftir öllu, illa og fjölskylda til fara og það sem er öllu verra hrekkjóttir við börn sér í lagi. Bannað að hræða börn með jólasveinum Það er líklega tvennt sem hjálpaði til við að breyta ímynd jólasveinanna. I fyrsta lagi Húsagatilskipunin árið 1746 en þar var lagt bann við því að hræða börn með jólasveinum. Þar segir að nú skuli „sá heimskulegi vani, sem hér og þar skal hafa verið brúkanlegur í landinu, að hræða böm með jólasveinum eða vofum aldeilis vera afskaffaður.” Ekki var farið mikið eftir þessu fram eftir, en þó hefur þetta vakið fólk til umhugsunar. Alveg fram á þessa öld fer sögum af því að börn hafi verið hrædd með jólasveinum. En þá kom til sögunnar seinna atriðið sem breytti ímynd jólasveinanna. Það var hinn evrópski heilagi Nikulás sem klæddist rauðu og var ekkert nema góðvildin. Jólasveinaímyndinni ógnað á ný í dag eru jólasveinarnir sem sagt góðir og skemmtilegir, börnin hræðast þá ekki lengur en bíða þess í stað spennt eftir komu þeirra. En þá er komin ný ógnun fyrir jólasveinaímyndina, ógnun markaðssetningarinnar. Eins og flestir vita koma ís- lensku jólasveinarnir til byggða einn og einn í senn frá 12. desember og fram að jólum og síðan fara þeir til baka heim í sömu röð næstu þrettán daga, sá síðasti á þrettándanum. Þessi skemmtilegi siður hjálpar bör- nunurn að telja dagana til jóla og auka spennuna frá degi til dags. En óvarkárir markaðsbraskarar hafa kúvent þessum sið svein- anna eða hundsað hann með öllu. Nú sjást jólasveinarnir á ferli allt frá miðjum nóvember og eru greyin svo illa undirbúin að þeir kunna ekki einu sinni jólalögin almennilega. Það má furðu sæta að svo lítil þjóð sem Islendingar eru geti ekki komið sér saman um jafn einfalt, en samt mikilvægt atriði sem koma jólasveinanna er. Ekki er hægt að banna neinum að narra jólasvein í bæinn allt of snemma en hugsandi kaupmenn ættu að gera sér grein fyrir að það kann ekki góðri lukku að stýra að láta græðgina ná yfirhöndinni þegar jólasveinatrú og tilhlökkun barnanna er lögð að veði. í Alþýðuhúsinu 29.desembernk. kl. 20.00. Vestmannaeyjalistinn Sendum Vestmannaeyingum öllum bestu óskir um gleðileg jól ogfarsœlt komandi ár 0 Skeljungur Sendum Vestmannaeyingum öllum bestu óskir um gleðileg jól ogfarsœlt komandi ár (Vmlufémiita ffaími Sendum Vestmannaeyingum öllum bestu óskir um gleðileg jól ogfarsœlt komandi ár Völundur Sendum Vestmannaeyingum öllum bestu óskir um gleðileg jól ogfarsælt komandi ár Lögmenn Vestmannaeyj um Sendum Vestmannaeyingum öllum bestu óskir um gleðileg jól ogfarsœlt komandi ár Sendum Vestmannaeyingum öllum bestu óskir um gleðileg jól ogfarsœlt komandi ár Raggi rakari Sendum Vestmannaeyingum öllum bestu óskir um gleðileg jól ogfarsælt komandi ár Skóvinnustofa Stefáns Sendum Vestmannaeyingum öllum bestu óskir um gleðileg jól ogfarsælt komandi ár ^Undir nálina Sendum Vestmannaeyingum öllum bestu óskir um gleðileg jól ogfarsœlt komandi ár Útgerðarfélag Vestmannaeyja

x

Brautin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Brautin
https://timarit.is/publication/1411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.