Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.12.2019, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 05.12.2019, Blaðsíða 8
Með þessum orðum kvaddi kaupmannsfrúin Ása Olavsen börnin í Keflavík sem hún hafði boðið til sín í veislu, í fínasta hús bæjarins Fischershús, einn fagran sumardag í kringum aldamótin 1900. Frú Ása var eiginkona Ólafs Olavsens forstjóra og meðeiganda Duusverslunar. Og frú Ása stóð við sitt. Upp frá þessu stóð Duusverslunin fyrir glæsilegum jólatrésskemmtunum í Bryggjuhús- inu um tuttugu ára skeið. Þar komu saman öll börn bæjarins og úr ná- grannabyggðum, allt upp undir 300 börn og sáu þá mörg þeirra jólatré í fyrsta sinn. Skemmtunin hófst seinnipartinn og stóð fram undir mið- nætti. Dansað var í kringum jólatréð, söngvar sungnir og veitingar reiddar fram. Um miðnætti tók fullorðna fólkið við og skemmti sér fram eftir nóttu. Ljóst er að þessar skemmtanir hafa verið mikil upplyfting á þeim tíma þegar Keflavík var aðeins fátækt þorp og fátt við að vera. Frú Ása Olavsen tekur á móti börnunum Nú lítum við um öxl og rifjum upp þennan 100 ára gamla merkilega viðburð með jólatrésskemmtun í Bryggjuhúsinu í anda gömlu skemmtananna sunnudaginn 8. desember. Frú Ása Olavsen tekur á móti börn- unum eins og forðum og dansað verður í kringum jólatréð. Auðvitað mætir jólasveinn af gamla skólanum á svæðið. Við hvetjum fjölskyldur til að koma saman og njóta þess að líta til baka á gamlar hefðir og upplifa einfaldleika jólanna og hinn sanna jólaanda. Allir eru hjartanlega velkomnir á meðan húsrúm leyfir 8. desember og er aðgangur ókeypis. Jólaballið hefst stundvíslega kl. 14, dagskrá lýkur kl. 15. Ratleikur og óskalistar til jólasveinanna Á aðventunni stendur fjölskyldum einnig til boða að fara í ratleik í Bryggjuhúsinu og leita að gömlu jóla- sveinunum sem hafa falið sig hingað og þangað um húsið. Þá er hægt og biðja Skessuna í hellinum um að koma óskalista til jólasveinanna. G A M A L D A G S J Ó L AT R É S S K E M M T U N Í D U U S S A F N A H Ú S U M N Æ S TA S U N N U D A G Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í desember Apótekarinn Keflavík Suðurgötu 2 S: 421 3200 Apótekarinn Fitjum Fitjum 2 S: 534 3010 Apótekarinn Keflavík Aðfangadagur 24. desember kl. 9–12 Jóladagur 25. desember LOKAÐ Annar í jólum 26. desember kl. 10–14 27. desember kl. 10–19 Gamlársdagur 31. desember kl. 9–12 Nýársdagur 1. janúar LOKAÐ 2. janúar kl. 10–19 Apótekarinn Fitjum Aðfangadagur 24. desember kl. 10–12 Jóladagur 25. desember LOKAÐ Annar í jólum 26. desember LOKAÐ Gamlársdagur 31. desember kl. 10–12 Nýársdagur 1. janúar LOKAÐ Glæsilegar gjafir í jólapakkana fyrir alla fjölskylduna. Hlökkum til að sjá ykkur. - lægra verð 8 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 5. desember 2019 // 46. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.