Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.12.2019, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 05.12.2019, Blaðsíða 18
Við settumst niður með Erlingi Bjarnasyni, rekstrarstjóra Kapal- væðingar við Hafnargötu í Keflavík, spurðum hann út í sérstöðu fyrir- tækisins og hvaða þýðingu hún hefur fyrir bæjarbúa Reykjanesbæjar. Fjarskiptafyrirtæki í Reykja- nesbæ sem keppir við risana „Kapalvæðing er lítið svæðisbundið fjarskiptafyrirtæki, líkt og Vodafone, Síminn og Nova svo eitthvað sé nefnt en bara miklu minna í sniðum og miklu persónulegra fyrir vikið. Hingað geturðu komið til að kaupa áskrift að interneti og sjónvarpi og við þjónustum þig frá A til Ö. Við erum samt ekki í símadæminu, erum eingöngu með sjónvarp og internet sem við sendum út um ljósleiðara og Coax-tengingar innan bæjarmarka. Við höfum verið að leggja kapla í 25 ár. Reykjanesbær hefur til dæmis verið að leigja aðgang að ljósleiðaranum okkar í mörg ár. Á sínum tíma keyptum við kapalkerfið af Kadeco á Vellinum, eða Ásbrú eins og það heitir í dag, við vorum að hugsa til framtíðar og lögðum ljósleiðara í það kerfi sem allir íbúar að Ásbrú hafa nú aðgang að og geta fengið þjónustu okkar. Við erum einnig búnir að leggja ljósleiðara í mörg hverfi í Reykjanesbæ og ætlum okkur að veita okkar bestu gæði og þjónustu. Við höfum einnig haft mikinn áhuga að bæta inn jarðarförum og brúðkaupum og einnig barnamessu og guðsþjónustu en eigum bara eftir að klára þau mál,“ segir hann. Augnablik tengir fólk saman „Við erum með mjög vinsæla sjón- varpsrás sem sumir kalla bæjarrásina eða Víkurfréttarás því Kapalvæðing og Víkurfréttir voru með þessa rás á sínum tíma. Þarna erum við að sýna gömul myndaalbúm frá bæjarbúum og tímasetjum ljósmyndirnar nógu lengi þannig að fólk geti horft vel á alla myndina. Gamlir Keflvíkingar og Njarðvíkingar hafa gaman af þessu og við skreytum þessar gömlu myndir með viðeigandi sígildum íslenskum dægurlögum. Það passar svo vel við tíðarandann í ljósmyndunum. Gamlar ljósmyndir vekja upp góðar minningar og stundum fæ ég hringingar frá fólki úti í bæ sem spyr hvort það sé ekki að fara koma nýtt myndaalbúm. Við erum með samning við Byggðasafnið og höfum fengið myndir þaðan til sýninga á Augnablik og að auki fengið fullt af myndaalbúmum sem bæjar- búar hafa gefið okkur. Þá höfum við einnig fengið gefins úr dánarbúum, þetta er endalaust myndefni. Það má því segja að Augnablik sé rás sem tengir fólk saman,“ segir Elli Bjarna en það er hann oftast kallaður og segir okkur næst frá þemahelgunum sem Augnablik býður upp á. Rifjum upp Kanasjónvarpið „Á veturna erum við oft með þema- helgar og þá sýnum við gamlar, klass- ískar bíómyndir eða þætti úr Kanasjón- varpinu, sem margir kannast við frá því að AFRTS sjónvarpsstöðin var og hét og jafnvel fréttatíma frá herstöðinni sem var á Vellinum. Nokkrir vinsælir þættir fara þá í loftið eins og Bonanza, Lost in Space, Combat, Voyage to the Bottom of the Sea. Ég á meira að segja gömlu stillimyndina úr Kanasjónvarpinu. En í desember erum við með skemmtilegt jólaþema.“ Krakkar á glugganum okkar Þeir sem aldir eru upp í Keflavík og Njarðvík muna vel eftir Kanaútvarpinu og -sjónvarpinu. Þá var hægt að horfa á sjónvarp sem byrjaði útsendingar á daginn sem var kannski ekkert allt of vinsælt fyrir foreldra keflvískra barna sem áttu að fara að læra strax eftir Augnablik gleður marga bæjarbúa Augnablik er sérlega vinsæl rás í sjónvarpi sem aðeins áskrifendur Kapalvæðingar í Reykjanesbæ geta séð. Heyrst hefur af gömlum Keflvíkingum og Njarðvíkingum, íbúum bæjarins, sem sitja límdir við skjáinn á meðan þeir horfa á persónulegar myndir úr myndaalbúmi á rásinni og rifja upp í leiðinni fyrri tíma í bæjarfélaginu, einnig hafa þeir hjá Kapalvæðingu verið með myndbönd frá Viðari Oddgeirs heitnum og Guðmundi í Garði, Steinboga, til sýningar svo eitthvað fleira sé nefnt. Stundum er helgarþema, til dæmis Kanasjónvarpið eins og það var en þá fá áhorfendur að sjá gamla þætti eins og Bonanza eða Combat og fleiri þætti. Suðurnesja­ magasín Víkurfrétta, nýjasti þátturinn rúllar einnig á Augnabliki viku í senn. Erlingur Bjarnason er rekstrarstjóri Kapalvæðingar. Fjölskylda mín var með þeim fyrstu sem fékk svart/hvítt sjónvarp eða í kringum 1960. Tækið var auðvitað keypt á Vellinum og smyglað út en þetta gerðu margir ... Mar ta Eiríksdóttir marta@vf.is VIÐTAL MÁNUDAGA KL. 21:30 HRINGBRAUT OG VF.IS Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis HÖ NN UN : V ÍK UR FR ÉT TIR Allsherjaratkvæðagreiðsla Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða- greiðslu í Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis um kjör aðalstjórnar samkvæmt B-lið laga um stjórnarkjör og stjórn sjómannadeildar, ásamt trúnaðarmannaráði, stjórn sjúkrasjóðs, orlofs- heimilasjóðs, fræðslusjóðs og varamönnum þeirra samkvæmt lögum félagsins. Tillögum skal skila á skrifstofu félagsins í síðasta lagi klukkan 16:00 föstudaginn 13. desember 2019. Hverri tillögu skal fylgja stuðningsyfirlýsing tilskilins fjölda félagmanna samkvæmt reglugerð ASÍ þar að lútandi. Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins. Kjörstjórn VSFK og nágrennis 18 VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.