Fréttablaðið - 18.10.2016, Page 10
Norðausturkjördæmi í hnotskurn
Karlar
14.965
Konur
14.604
Fjöldi á kjörskrá
29.569
Fjöldi á kjörskrá á
bak við hvert þingsæti
2.957
Á kjörskrá í
kosningum 2013
29.035
Stærð kjördæmis
38.389 km2
buðu sig fram til
þess að leiða lista
Framsóknarflokks-
ins í Norðaustur-
kjördæmi í prófkjöri fyrir
kosningar.
Þingmenn sem hætta
kjörsókn í síðustu
kosningum
Úrslit síðustu kosninga
Þingmenn
Brynhildur
Pétursdóttir
þingmaður
Bjartrar framtíðar
Kristján Möller
þingmaður
Samfylkingarinnar
Höskuldur
Þórhallson
þingmaður Fram-
sóknarflokksins
201
6
Tíu framboð bjóða fram lista í Norðausturkjördæmi
fyrir alþingiskosningar 2016
Benedikt
Jóhannesson
Viðreisn
Sigurður
Eiríksson
Dögun
Logi
Einarsson
Samfylkingu
Kristján Þór
Júlíusson
Sjálfstæðis-
flokki
Sigmundur
Davíð Gunn-
laugsson
Framsóknar-
flokki
Sigurveig
Bergsteins-
dóttir
Flokki
fólksins
Steingrímur
J. Sigfússon
Vinstri
grænum
Einar
Aðalsteinn
Brynjólfs-
son
Pírötum
Preben
Pétursson
Bjartri
framtíð
Þorsteinn
Bergsson
Alþýðufylk-
ingunni
Sveitarfélög í kjördæminu
Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð,
Hörgársveit, Akureyrarkaupstaður,
Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandar-
hreppur, Grýtubakkahreppur,
Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppur,
Norðurþing, Tjörneshreppur, Sval-
barðshreppur, Langanesbyggð,
Vopnafjarðarhreppur, Fljótsdalshér-
að, Fljótsdalshreppur, Borgarfjarðar-
hreppur, Seyðisfjarðarkaupstaður,
Fjarðabyggð, Breiðdalshreppur og
Djúpavogshreppur.
6,5%
Aðrir
34,6%
22,6%
10,6%
15,8%
3%
83,4%
Þar er flugið í raun
eini valkosturinn
því þetta er tveggja daga ferð
ef þú ætlar að
keyra þetta
Björn Ingimarsson,
sveitarstjóri á
Fljótsdalshéraði
Jón Hákon Halldórsson
jonhakon@365.is
Kosningar
2016
Mér finnst brýnast
að koma heilbrigðis-
málunum í betra horf og að
íbúar landsbyggðarinnar
hafi sem greiðastan og
skjótastan aðgang að bráða-
þjónustu.
Rúnar Traustason,
kjötiðnaðarmeistari
og sjúkraflutninga-
maður
Kosningar snúast
um Evrópumál,
atvinnugreinina mína
ferðaþjónustu, sýnina á
gjaldtöku og hvaða leiðir
verða farnar, styrkingu innri
viða samfélagsins, mennta-
kerfi, heilbrigðis-
kerfi og
löggæslu.
Hrafnhildur Karls-
dóttir, hótelstjóri á
Akureyri
Mér finnst þurfa
skýrari stefnu
varðandi sjúkrahúsin úti á
landi. Það þarf að fara í
vinnu við að finna varanlega
lausn við flugvallarmálið í
Reykjavík og þá hvert á að
senda sjúklinga ef flugvöllur-
inn verður
færður.
Eggert Hákonar-
son, framleiðslu-
starfsmaður Alcoa
Fjarðaáls
Hvað segja kjósendur?
Hver eru Brýnustu
KosningAMálin?
Í Norðausturkjördæmi eru tíu þingmenn, þar af eru níu kjördæmakjörnir en einn jöfnunarþingmaður. Kjör-
dæmið nær frá Fjallabyggð til
Djúpavogshrepps. Á meðal odd-
vita kjördæmisins eru Kristján Þór
Júlíusson, heilbrigðisráðherra og
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
þingmaður Framsóknarflokksins
og fyrrverandi forsætisráðherra,
og Steingrímur J. Sigfússon, fyrrver-
andi ráðherra og fyrrverandi for-
maður VG. Miðað við niðurstöður
skoðanakannana er nær alveg víst
að þeir munu allir ná kjöri aftur.
Kristján Möller, fyrrverandi sam-
gönguráðherra, er þingmaður í
kjördæminu en hann verður ekki
í framboði þann 29. október næst-
komandi. Þá var Brynhildur Péturs-
dóttir þingmaður í kjördæminu
fyrir Bjarta framtíð en hverfur
líka af þingi núna. Óvarlegt væri
að fullyrða á þessari stundu hvort
Samfylkingunni eða Bjartri fram-
tíð takist að koma að manni í stað
þeirra Kristjáns og Brynhildar.
Þegar kemur að því að spyrja
hvaða málefni séu fólki efst í huga
í kjördæminu segist Agnes Anna
Sigurðardóttir, atvinnurekandi á
Árskógssandi í Eyjafirði, telja að
bilið á milli höfuðborgarinnar og
landsbyggðarinnar sé að breikka.
„Þá er ég ekki að kenna neinum
einum um. En mér finnst bara
eins og þetta sé að verða hvor sinn
þjóðflokkurinn oft og tíðum,“ segir
Agnes Anna. „Hvort sem það er
fyrir austan, vestan eða norðan,“
segir Agnes og bætir við að allir
landshlutar hafi sitthvað að bjóða
ferðamönnum. Þá telur Agnes Anna
brýnt að efla bæði skólaþjónustu og
heilbrigðismál.
Björn Ingimarsson, sveitarstjóri
á Fljótsdalshéraði, segir samgöngu-
málin skipta Austfirðinga mestu
máli, bæði samgöngur á landi og í
lofti. „Við erum þannig staðsett frá
höfuðborgarsvæðinu að við erum
ekki í skotfæri,“ segir hann. Aust-
firðingar þurfi að sækja mjög stóran
hluta þjónustunnar, eins og heil-
brigðisþjónustu, til höfuðborgar-
svæðisins.
„Þar er flugið í raun eini val-
kosturinn því þetta er tveggja daga
ferð ef þú ætlar að keyra þetta,“ segir
Björn. Vandinn sé sá að kostnaður-
inn við flugsamgöngur sé svo hár að
það sé varla á færi einstaklinga að
greiða hann. Því hafi menn á Fljóts-
dalshéraði lagt áherslu á að skoðað
verði alvarlega að fara almennings-
samgönguleið eins og gert hafi verið
í nokkrum öðrum löndum. Það
myndi fela í sér niðurgreiðslur hins
opinbera á flugfargjöldum. „Svo eru
það að sjálfsögðu vegasamgöngurn-
ar sem menn þurfa að halda áfram
að lagfæra,“ segir hann.
Björn segir að í þriðja lagi þurfi
að koma fjarskiptamálum í lag.
„Við höfum reyndar sagt það að ef
menn koma fjarskiptunum í lag þá
þurfi þeir ekkert að hafa áhyggjur af
okkur – þá þurfi ekki að vera nein
byggðaframlög,“ segir hann. Þar á
hann við að það þurfi að ljósleiðara-
væða dreifbýlið. Stór hluti þéttbýlis-
ins fyrir austan sé heldur ekki með
góðar tengingar. „Þetta er orðið lyk-
ilatriði í atvinnulífinu að menn séu
með alvöru tengingar og líka bara
spurning um þegar yngra fólk velur
sér búsetu, þá er þetta orðið það
stórt vægi í lífi fólks að þetta verður
að vera í lagi,“ segir Björn.
Telur að bil milli höfuðborgar
og landsbyggðar sé að breikka
Uppbygging heilbrigðisþjónustu og menntakerfis er kjósendum ofarlega í huga í Norðausturkjördæmi. Á
Austfjörðum tala menn fyrir niðurgreiðslum á flugsamgöngum, enda tveggja daga leið frá Reykjavík. Einnig
er áhersla lögð á áframhaldandi umbætur í vegamálum og að haldið verið áfram með lagningu ljósleiðara.
Akureyri er stærsta sveitarfélagið í norðausturkjördæmi. Íbúar þar eru um 19
þúsund. FréttABlAðið/Pjetur
4
1 8 . o K t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r10 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A Ð I Ð