Fréttablaðið - 18.10.2016, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 18.10.2016, Blaðsíða 12
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Sara McMahon sara@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Hafliði Helgason Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri í Bolungarvík, skrifar grein í Fréttablaðið 6. október sl. og leggur út af nýlega birtu áliti Skipulagsstofnunar vegna aukins eldis með norskættaðan eldislax í opnum sjókvíum í Patreksfirði og Tálknafirði. Í greininni fer bæjarstjórinn með rangt mál er hann segir að niðurstaða Skipulagsstofnunar hafi verið „að neikvæð áhrif af sjóeldi séu óveruleg og að öllu afturkræf“. Hið rétta Hið rétta er að um hættu á erfðablöndun segir í niðurstöðu álits Skipulagsstofnunar: „Alþjóðahaf- rannsóknaráðið hefur staðfest að á hverju ári strýkur lax í miklu magni úr eldi og að eldisfiskur finnist all- staðar í ám á landsvæðum þar sem eldi í sjókvíum er starfrækt. […] Skipulagsstofnun telur að eftir því sem laxeldi dreifist víðar um firði Vestfjarða og heildarum- fang framleiðslunnar vex sé líklegt að hætta aukist á að eldislaxar nái að hrygna í vestfirskum ám og hafi möguleika á að blanda erfðaefni við villtan lax. Stofn- unin telur að ef blendingar ná fótfestu í viðkomandi laxastofni verði áhrifin varanleg og óafturkræf.“ Allir villtir stofnar í hættu Rannsóknir hafa sýnt að eldislax sem sleppur ferðast allt að 2.000 km undan hafstraumum áður en hann leitar upp í ár til hrygningar (L. Hansen, 2006). Það samsvarar ferðalagi stroklaxa einn og hálfan hring umhverfis Ísland. Þar með eru allir villtir laxastofnar landsins í hættu vegna stroklaxa úr eldiskví hvar sem er við landið. Því er ljóst að framtíðarsýn bæjastjórans um að njóta náttúrunnar og veiða í fallegri á er tálsýn verði fiskeldi í opnun sjókvíum með norskættuðum eldislaxi stundað við Ísland. Eina leiðin til að villtu stofnarnir haldi velli í sátt við fiskeldi er ef það er stundað með sjálfbærum hætti á landi eða í lokuðum kerfum í sjó. Er til of mikils mælst að það sé gert þannig að af starfseminni verði ekki þau varanlegu og óafturkræfu áhrif á náttúru landsins sem Skipu- lagsstofnun talar um? Nærsýni Yngvi Óttarsson verkfræðingur Rannsóknir hafa sýnt að eldislax sem sleppur ferðast allt að 2.000 km undan hafstraumum áður en hann leitar upp í ár til hrygningar. MIÐASALA HEFST Á FIMMTUDAG Miðasala fer fram á Tix.is og í síma 551-3800. Póstlistaforsölur Senu Live og Jólagesta fara fram 19. október kl. 10. Skráðu þig á póstlista Jólagesta á www.jolagestir.is. Nánar á www.sena.is/jolagestir. 10. desember í höllinni AFMÆLISTÓNLE IKAR Viðkomum með jólin til þín! Vandinn sem blasir við er að ef aðgengi að fjármun- um er aukið án þess að til komi meira framboð af húsnæði, þá en einsýnt að það leiði til hækkunar húsnæðis- verðs. Fréttablaðið hefur að undanförnu fjallað nokkuð um fasteignamarkaðinn og horfur á honum. Samtök iðnaðarins hafa að undanförnu vakið athygli á stöðu hús-næðismarkaðar og í gær kom út skýrsla um íbúðamarkaðinn hjá Íslandsbanka sem sagt er frá í blaðinu í dag. Enda þótt húsnæðisverð hafi hækkað mikið síðustu ár, eru enn ekki merki um að fasteignabóla hafi myndast að mati sérfræðinga. Það ber þó að hafa í huga að slíkar bólur hafa gjarnan þau einkenni að þá fyrst gera menn sér grein fyrir þeim þegar þær eru sprungnar. Megindrifkraftar fasteignaverðs eru kaupmáttur og aðgangur að lánsfé. Þar á eftir kemur svo framboð og eftirspurn. Byggingarkostnaður er svo sú breyta sem hefur áhrif á framboðshliðina með þeim hætti að ef verð fer undir byggingarkostnað, þá hætta menn að byggja. Þetta má glöggt sjá úti á landi þar sem lítil eftirspurn leiðir til verðs sem er langt undir bygg- ingarkostnaði. Þar er því ekkert byggt, þrátt fyrir skort á húsnæði. Á höfuðborgarsvæðinu er verð hátt og hæst í 101 Reykjavík. Stefna borgaryfirvalda um þéttingu byggðar hefur fært áherslu frá ódýrari íbúðum í úthverfum í dýrar íbúðir í eða við miðborg. Þessi stefna hefur hentað eldra fólki sem minnkar við sig og selur einbýlishús og flytur miðsvæðis í fremur dýrar blokkaríbúðir. Vöxtur ferðaþjónustu hefur einnig þrýst upp verði miðsvæðis í borginni. Stefnan hefur valdið uppsöfnuðum vanda hjá ungu fólki sem hefur ekki efni á að kaupa slíkar íbúðir sem fyrstu íbúð.  Vaxandi kaupmáttur og hátt atvinnustig ætti að gefa ungu fólki rými til að mynda nokkurt eigið fé til fyrstu kaupa. Í aðdraganda kosninga hafa stjórn- málaflokkarnir keppst við að leggja fram tillögur um hvernig eigi að auðvelda ungu fólki fyrstu íbúðarkaup. Allt er það væntanlega sett fram af góðum hug. Vandinn sem blasir við er að ef aðgengi að fjár- munum er aukið án þess að til komi meira framboð af húsnæði, þá er einsýnt að það leiði til hækkunar húsnæðisverðs. Miðað við tölur frá Samtökum iðnaðarins, þá mun að óbreyttu áfram verða skortur á smærri íbúðum fyrir ungt fólk. Aðalástæða þess er að skortur er á lóðum til að mæta þessari þörf. Það stendur því upp á sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og þá einkum Reykjavíkurborg að sveigja stefnu sína um þéttingu byggðar að því að auka framboð ódýrari kosta fyrir ungt fólk. Fyrirséð er að það verður tímabundið á kostnað þéttingu byggðar.  Verði ekki brugðist við þessu er hætt við að býsna stór hópur ungs fólks verði innlyksa í foreldrahúsum langt fram á fullorðinsár. Það er engum hollt að fresta því langt fram eftir aldri að standa á eigin fótum. Kynslóð föst í foreldrahúsum Réttu áherslurnar? Hafa átt trúnaðarsamtöl eftir fáleika, var fyrirsögn fréttar sem var á forsíðu Morgunblaðsins í gær. Var þar vísað til þess að þeir Sigurður Ingi Jóhannsson for- sætisráðherra og formaður Fram- sóknarflokksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forveri hans, hefðu ræðst við eftir hreint út sagt reyfarakennda atburðarrás á flokksþingi Framsóknarflokksins fyrr í haust. Það er kannski eðlilegt að menn velti fyrir sér á hvaða vegferð við erum þegar flestum þykir meira spennandi að birta slíkar fréttir á forsíðu dagblaðs, tveimur vikum fyrir kosningar, í stað þess að ræða málefnaáherslur í kosningabaráttunni. Sneypuförin Hugmynd Pírata um að flokkar mæti til kosninga með einhvers- konar fyrirheit um stjórnarsam- starf að loknum kosningum er ekki ný af nálinni. Í raun svipar henni mjög til norrænna stjórnmála þar sem flokkar mynda blokkir langt fyrir kosningar. Hugmyndin hefur þó ekki verið reynd hér, ef undanskilið er kosningabandalag Samfylkingarinnar fyrir Alþingis- kosningar 1999, áður en til form- legrar stofnunar flokksins kom. Sú aðferðarfræði sem reynd var um helgina, að kynna fyrst drög að kosningabandalagi í fjölmiðlum, en ætla síðan að ræða við þá sem maður vill mynda kosningabanda- lag með skilar Pírötum í besta falli engu. jonhakon@frettabladid.is 1 8 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r12 s k o Ð U n ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.