Fréttablaðið - 18.10.2016, Qupperneq 28
Hjartasteinn fjallar um
sterka vináttu tveggja
drengja sem eru að taka
sín fyrstu skref inn
í unglingsárin
og uppgötva
ástina.
„Við erum rosalega þakklát fyrir
þessi viðbrögð. Við höfum unnið
að þessu í fjölda ára og gaman að sjá
hvað myndin gengur vel í fólk,“ segir
Anton Máni Svansson, einn fram-
leiðenda kvikmyndarinnar Hjarta-
steinn. Myndin er fyrsta kvikmynd
leikstjórans Guðmundar Arnars
Guðmundssonar í fullri lengd og
vann um helgina til þrennra verð-
launa í aðalkeppni kvikmynda-
hátíðarinnar í Varsjá í Póllandi.
Myndin hlaut flest verðlaun allra
á hátíðinni, en Guðmundur Arnar
var valinn besti leikstjórinn, Baldur
Einarsson hlaut sérstök dómnefnd-
arverðlaun fyrir leik sinn í Hjarta-
steini og myndin vann til kirkju-
verðlauna hátíðarinnar.
Verður sýnd víða um heim
Hjartasteinn fjallar um sterka vin-
áttu tveggja drengja sem eru að taka
sín fyrstu skref inn í unglingsárin og
uppgötva ástina og fóru tökur fram
haustið 2015 á Borgarfirði eystri,
Seyðisfirði, í Vopnafirði og Dyr-
hólaey. Í umsögn dómnefndar um
valið á kirkjuverðlaunum hátíðar-
innar í Varsjá segir meðal annars
að þau hafi ekki aðeins verið veitt
Hjartasteini vegna listrænna gæða
myndarinnar, heldur einnig and-
legra og mannlegra þátta hennar. Þá
er tekið fram að myndin sýni á lág-
stemmdan hátt fram á getu manns-
ins til að vaxa og þroskast.
Hjartasteinn var heimsfrumsýnd
í Venice Days dagskrá kvikmynda-
hátíðarinnar í Feneyjum í septem-
ber og vann þar til Queer Lion-verð-
launa hátíðarinnar. Eftir það hefur
hún verið sýnd á fleiri alþjóðlegum
kvikmyndahátíðum, meðal annars í
Toronto í Kanada og Busan í Suður-
Kóreu. Aðspurður segir Anton Máni
að nákvæm dagsetning frumsýning-
ar myndarinnar hér á Íslandi hafi
ekki enn verið ákveðin, en það verði
í kringum áramótin næstu. „Þangað
til verður myndin á stanslausu
flakki milli landa og kvikmynda-
hátíða. Eftir jól fer hún svo líka á
fjölda hátíða, til dæmis í Banda-
ríkjunum, Brasilíu, Danmörku
og Grikklandi.
G u ð m u n d u r
Arnar leik-
s t j ó r i e r
mest í því að
ferðast með myndinni, en sjálfur
fer ég til að mynda með henni til
Þýskalands og Úkraínu,“ útskýrir
Anton Máni og bætir við að af við-
brögðunum hingað til að dæma líti
út fyrir að myndin verði sýnd víða
um heim. „Í mörgum löndum erum
við í viðræðum um sölu á myndinni
og þær ganga mjög vel.“
Sigursæll stuttmyndaleikstjóri
Eins og áður sagði er Hjartasteinn
fyrsta mynd Guðmundar Arnars í
fullri lengd en hann hefur áður vakið
athygli, meðal annars fyrir stutt-
myndina Hvalfjörður, sem reyndist
sigursæl á kvikmyndahátíðum og
vann til sérstakra dómnefndarverð-
launa í aðalkeppni kvikmyndahá-
tíðarinnar í Cannes árið 2013.
kjartang@frettabladid.is
Dagskrá:
13:30 -13:40 Setning málþings
Björn Bjarki Þorsteinsson, varaformaður Samtaka fyrirtækja í
velferðarþjónustu og framkvæmdastjóri Brákarhlíðar
13:40-13:55 Umhverfi og staða fyrirtækja í velferðarþjónustu
Pétur Magnússon, formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og forstjóri Hrafnistuheimilanna
13:55-14.25 Stutt erindi frá stjórnmálaflokkum
Eygló Harðardóttir, Framsóknarflokki
Hanna Katrín Friðriksson, Viðreisn
Sigrún Gunnarsdóttir, Björt framtíð
Óli Björn Kárason, Sjálfstæðisflokki
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Samfylkingu
Steinunn Þóra Árnadóttir, Vinstri græn
Jón Þór Ólafsson, Pírötum
Að framsögum loknum verða pallborðsumræður.
Fundarstjóri: Sigmar Guðmundsson, fjölmiðlamaður
Er vilji til breytinga?
Er raunverulegur vilji hjá stjórnmálaflokkum að bæta
þjónustu við veika einstaklinga og aldraða?
Málþing á vegum Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Björn Bjarki
Þorsteinsson
Pétur Magnússon Eygló Harðardóttir Hanna Katrín
Friðriksson
Sigrún Gunnarsdóttir
Óli Björn Kárason Steinunn Þóra
Árnadóttir
Sigríður
Ingibjörg Ingadóttir
Jón Þór Ólafsson Sigmar
Guðmundsson
Allir velkomnir,
aðgangur ókeypis
Málþingi verður haldið á Hótel Natura (áður Hótel Loftleiðir)
Þingsal 2, þriðjudaginn 18. október kl. 13:30-15:30
Málþing
Hótel Natura
Þriðjudaginn
18. október
13:30-15:30
Guðmundur Arnar Guðmundsson leikstjóri og Anton Máni Svansson framleiðandi
taka hér á móti verðlaunum fyrir Hjartastein á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í
september.
myndin verður á
stanslausu flakki
milli landa og kvikmynda-
hátíða og eftir jól fer hún
svo líka á fjölda hátíða.
hjartasteinn
Handrit og leikstjórn: Guð-
mundur Arnar Guðmundsson.
Helstu hlutverk: Baldur Einars-
son, Blær Hinriksson, Diljá Vals-
dóttir, Katla Njálsdóttir, Jónína
Þórdís Karlsdóttir og Rán Ragnars-
dóttir.
hjartasteinn fékk þrenn
verðlaun í varsjá
Fyrsta kvikmynd leikstjórans guðmundar arnars guðmundssonar
í fullri lengd var sigursæl á kvikmyndahátíðinni í Varsjá um helgina.
Myndin verður frumsýnd hér á Íslandi í kringum áramótin.
1 8 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r24 L í f I Ð ∙ f r É t t A b L A Ð I Ð
Lífið