Fréttablaðið - 18.10.2016, Síða 28

Fréttablaðið - 18.10.2016, Síða 28
Hjartasteinn fjallar um sterka vináttu tveggja drengja sem eru að taka sín fyrstu skref inn í unglingsárin og uppgötva ástina. „Við erum rosalega þakklát fyrir þessi viðbrögð. Við höfum unnið að þessu í fjölda ára og gaman að sjá hvað myndin gengur vel í fólk,“ segir Anton Máni Svansson, einn fram- leiðenda kvikmyndarinnar Hjarta- steinn. Myndin er fyrsta kvikmynd leikstjórans Guðmundar Arnars Guðmundssonar í fullri lengd og vann um helgina til þrennra verð- launa í aðalkeppni kvikmynda- hátíðarinnar í Varsjá í Póllandi. Myndin hlaut flest verðlaun allra á hátíðinni, en Guðmundur Arnar var valinn besti leikstjórinn, Baldur Einarsson hlaut sérstök dómnefnd- arverðlaun fyrir leik sinn í Hjarta- steini og myndin vann til kirkju- verðlauna hátíðarinnar. Verður sýnd víða um heim Hjartasteinn fjallar um sterka vin- áttu tveggja drengja sem eru að taka sín fyrstu skref inn í unglingsárin og uppgötva ástina og fóru tökur fram haustið 2015 á Borgarfirði eystri, Seyðisfirði, í Vopnafirði og Dyr- hólaey. Í umsögn dómnefndar um valið á kirkjuverðlaunum hátíðar- innar í Varsjá segir meðal annars að þau hafi ekki aðeins verið veitt Hjartasteini vegna listrænna gæða myndarinnar, heldur einnig and- legra og mannlegra þátta hennar. Þá er tekið fram að myndin sýni á lág- stemmdan hátt fram á getu manns- ins til að vaxa og þroskast. Hjartasteinn var heimsfrumsýnd í Venice Days dagskrá kvikmynda- hátíðarinnar í Feneyjum í septem- ber og vann þar til Queer Lion-verð- launa hátíðarinnar. Eftir það hefur hún verið sýnd á fleiri alþjóðlegum kvikmyndahátíðum, meðal annars í Toronto í Kanada og Busan í Suður- Kóreu. Aðspurður segir Anton Máni að nákvæm dagsetning frumsýning- ar myndarinnar hér á Íslandi hafi ekki enn verið ákveðin, en það verði í kringum áramótin næstu. „Þangað til verður myndin á stanslausu flakki milli landa og kvikmynda- hátíða. Eftir jól fer hún svo líka á fjölda hátíða, til dæmis í Banda- ríkjunum, Brasilíu, Danmörku og Grikklandi. G u ð m u n d u r Arnar leik- s t j ó r i e r mest í því að ferðast með myndinni, en sjálfur fer ég til að mynda með henni til Þýskalands og Úkraínu,“ útskýrir Anton Máni og bætir við að af við- brögðunum hingað til að dæma líti út fyrir að myndin verði sýnd víða um heim. „Í mörgum löndum erum við í viðræðum um sölu á myndinni og þær ganga mjög vel.“ Sigursæll stuttmyndaleikstjóri Eins og áður sagði er Hjartasteinn fyrsta mynd Guðmundar Arnars í fullri lengd en hann hefur áður vakið athygli, meðal annars fyrir stutt- myndina Hvalfjörður, sem reyndist sigursæl á kvikmyndahátíðum og vann til sérstakra dómnefndarverð- launa í aðalkeppni kvikmyndahá- tíðarinnar í Cannes árið 2013. kjartang@frettabladid.is Dagskrá: 13:30 -13:40 Setning málþings Björn Bjarki Þorsteinsson, varaformaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og framkvæmdastjóri Brákarhlíðar 13:40-13:55 Umhverfi og staða fyrirtækja í velferðarþjónustu Pétur Magnússon, formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og forstjóri Hrafnistuheimilanna 13:55-14.25 Stutt erindi frá stjórnmálaflokkum Eygló Harðardóttir, Framsóknarflokki Hanna Katrín Friðriksson, Viðreisn Sigrún Gunnarsdóttir, Björt framtíð Óli Björn Kárason, Sjálfstæðisflokki Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Samfylkingu Steinunn Þóra Árnadóttir, Vinstri græn Jón Þór Ólafsson, Pírötum Að framsögum loknum verða pallborðsumræður. Fundarstjóri: Sigmar Guðmundsson, fjölmiðlamaður Er vilji til breytinga? Er raunverulegur vilji hjá stjórnmálaflokkum að bæta þjónustu við veika einstaklinga og aldraða? Málþing á vegum Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Björn Bjarki Þorsteinsson Pétur Magnússon Eygló Harðardóttir Hanna Katrín Friðriksson Sigrún Gunnarsdóttir Óli Björn Kárason Steinunn Þóra Árnadóttir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir Jón Þór Ólafsson Sigmar Guðmundsson Allir velkomnir, aðgangur ókeypis Málþingi verður haldið á Hótel Natura (áður Hótel Loftleiðir) Þingsal 2, þriðjudaginn 18. október kl. 13:30-15:30 Málþing Hótel Natura Þriðjudaginn 18. október 13:30-15:30 Guðmundur Arnar Guðmundsson leikstjóri og Anton Máni Svansson framleiðandi taka hér á móti verðlaunum fyrir Hjartastein á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í september. myndin verður á stanslausu flakki milli landa og kvikmynda- hátíða og eftir jól fer hún svo líka á fjölda hátíða. hjartasteinn Handrit og leikstjórn: Guð- mundur Arnar Guðmundsson. Helstu hlutverk: Baldur Einars- son, Blær Hinriksson, Diljá Vals- dóttir, Katla Njálsdóttir, Jónína Þórdís Karlsdóttir og Rán Ragnars- dóttir. hjartasteinn fékk þrenn verðlaun í varsjá Fyrsta kvikmynd leikstjórans guðmundar arnars guðmundssonar í fullri lengd var sigursæl á kvikmyndahátíðinni í Varsjá um helgina. Myndin verður frumsýnd hér á Íslandi í kringum áramótin. 1 8 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r24 L í f I Ð ∙ f r É t t A b L A Ð I Ð Lífið

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.