Fréttablaðið - 18.10.2016, Síða 32
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Bakþankar
Erlu Bjargar
Gunnarsdóttur
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ENGIHJALLA,
VESTURBERGI
OG ARNARBAKKA
Fyrst eftir að ég flutti til Dan-merkur á sínum tíma tók ég eftir öllu því sem ég var ekki
vön frá Íslandi. Konunum í búrk-
unum, hlýju golunni, hjólreiða-
mönnum í umferðinni. Og fatlaða
fólkinu! Sem mætti mér á gang-
stéttinni, sat við hlið mér í strætó
og afgreiddi mig í búðinni.
Það er mannlegt að taka eftir því
sem maður er ekki vanur að sjá.
Vera feiminn og forvitinn og skoða
vel. Og já, börnin mín störðu. En
það sem maður sér á hverjum degi
hættir fljótlega að vera framandi
og verður venjulegt. Hversdagslegt
og sjálfsagt. Hluti af daglegu lífi.
En af hverju var fatlað fólk mér
framandi? Það eru um fjögur
þúsund fötluð börn og fullorðnir
á Íslandi. Hversu marga hefur þú
séð á ævinni? Hversu oft hefur
þú talað við fatlaða manneskju?
Hefurðu unnið með einhverjum?
Farið á stefnumót? Átt vin? Það
næsta sem ég komst fötluðu fólki
þegar ég var krakki var að góla:
Fatlafól, fatlafól, flakkandi um á
tíu gíra spítthjólastól.
Það er því eðlilegt að spyrja:
Hvar er allt íslenska fatlaða fólkið?
Pistill sem hreyfihömluð kona
skrifaði í síðustu viku svarar þeirri
spurningu. Pistillinn fjallar um
hve illa henni gekk að fá vinnu
eftir háskólanám. Hún fékk þau
skilaboð að hún gæti ekki verið
á almennum vinnumarkaði því
hún notar göngugrind. Hæfileikar,
geta og menntun voru ekki til
umræðu. Starfsumsókn hennar
var stimpluð með stórum rauðum
stöfum: Fötluð! Svo kom annar
stimpill: Úrræði!
Fatlað fólk á Íslandi er ekki í
felum. Íslenskt samfélag er að fela
fatlað fólk. Á meðan fatlað fólk er
aðgreint í samfélagi manna verður
fjölbreytileikinn ekki hluti af dag-
legu lífi. Og við hin höldum áfram
að glápa.
Falið fatlað fólk