Fréttablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 25
Alla 21. öld hefur Vesturblokk­in stundað hernaðaríhlutanir í Miðausturlöndum og nær­ sveitum. Stríð í seríu: Afganistan, Írak, Líbíu, Sýrlandi, en valdaskipta­ áformum í Íran hefur verið vikið til hliðar, rétt í bili. Stríðsmarkmið Að tryggja full yfirráð á þessu efna­ hagslega og hernaðarlega kjarna­ svæði. Framantalin lönd höfðu af ólíkum ástæðum ekki látið nógu vel að stjórn USA og Vestursins, sem settu þess vegna „valdaskipti“ þar á dagskrá. Þeirri dagskrá er fylgt fast þótt það kosti stríð, rústun ríkjanna og/eða sundurlimun. „Mannúðaríhlutun“ Yfirskriftir styrjaldanna eru mis­ munandi. Yfirskrift innrásar í Afganistan var að „ná hryðjuverka­ mönnum“ en í Írak að „finna gjör­ eyðingarvopn“. Hvort tveggja er löngu afhjúpað sem uppspuni. Stríð NATO­velda í Líbíu hafði vandaða og söluvæna yfirskrift: „íhlutun í mannúðarskyni“, vegna árása Gadd­ afís á þegna sína! En Sýrlandsstríðið? Afskipti Vestursins af Sýrlandi eru sett í flokk „mannúðaríhlutana“. Sagan sem sögð er á Vesturlöndum er að misþyrmingar Assad­stjórnar­ innar á eigin þegnum hafi kveikt „borgarastríð“ – vestræna frétta­ veitan malar þá frétt í sífellu, en talar líka stundum um átökin sem „trúar­ deilur“. „Alþjóðasamfélagið“ ku því hafa „verndarskyldu“, ástandið kalli á íhlutun í mannúðarskyni. Þó yfir­ skriftir fyrri íhlutana hafi augljós­ lega reynst fals gengur furðu vel að selja stríðið með þessari yfirskrift. Vesturlönd standa þarna sameinuð, nema helst í afstöðunni til sýr­ lenskra flóttamanna. Íslensk pressa tekur svo vel undir söng Vestursins að aldrei heyrist mishljómur. Aldrei. Fjórskipt Strategía í Sýrlandi Aðferð Vestursins til að brjóta and­ stöðu Sýrlands er fjórskipt: Við­ skiptabann, diplómatísk einangrun, stuðningur við „uppreisn“, hernað­ arinnrás. a) Viðskiptabann. Bandaríkin lögðu viðskiptabann á Sýrland frá 2004 (hafa hert það síðan) en ESB gerði hið sama 2013. Þetta á stóran þátt í þjáningum Sýrlendinga og land­ flótta. Ísland gengur í sama takt og hefur engin viðskipti við Sýrland (en hefur t.d. veruleg viðskipti við Tyrk­ land, Sáda og Ísrael). b) Diplómatísk einangrun. Íslenska vinstri stjórnin, líkt og Vestur­ blokkin öll, viðurkenndi árið 2012 „Þjóðareiningu“ uppreisnarhópa – National Coalition – sem lögmætt stjórnvald Sýrlands. Þessi viður­ kenning þýðir að Vestrið – Ísland með – stillir sér á bak við annan aðilann í sk. borgarastríði, gefur grænt ljós á uppreisn gegn stjórn­ Miðnæturhlaup Suzuki fer fram að kvöldi 23.júní 2016 í tuttugasta og órða sinn. Hlaupið hefst og endar í Laugardalnum. Að því loknu er öllum þátttakendum boðið í sund. Skráning og afhending hlaupagagna fer fram í Laugardalshöll í dag frá kl.16 og þar til 45 mínútum fyrir hverja ræsingu. UPPLÝSINGAR Á MARATHON.IS MIÐNÆTURHLAUP SUZUKI Í KVÖLD Suzuki er stoltur samstarfsaðili Miðnæturhlaups Suzuki og Reykjavíkurmaraþons 2 1 km Ræst kl.21:20 10 km Ræst kl.22:00 5 km Ræst kl.21:50 Þórarinn Hjartarson stálsmiður Vesturblokkin og Sýrlandsstríðið Vesturlönd standa þarna sameinuð, nema helst í af- stöðunni til sýrlenskra flótta- manna. Íslensk pressa tekur svo vel undir söng Vestursins að aldrei heyrist mishljómur. Aldrei. völdum sem viðurkennd eru af SÞ sem lögmæt. Þessi afstaða Íslands þýðir einnig að hjálparstarf héðan fer til uppreisnarafla og er því undir formerkjum „valdaskipta“. c) Stuðningur við uppreisn. Á papp­ írnum heitir það stuðningur við „hófsama uppreisnarmenn“ en Joe Biden, varaforseti USA, sagði það skýrt: „Hófsöm miðja var aldrei til“ í sýrlensku uppreisninni. Uppreisnin er frá byrjun borin uppi af trúar­ vígamönnum. „Borgarastríð“ og „uppreisn“ eru auk þess rangnefni, í fyrsta lagi af því að stór hluti and­ stöðunnar eru erlendir vígamenn (Wikipedia áætlar að þeir „may now number more than 11.000“). Í öðru lagi eru hryðjuverkaherirnir (og sk. uppreisn) fjármagnaðir utan­ lands frá, eru „staðgenglar“ erlendra velda. Frá upphafi hefur NATO­ landið Tyrkland lagt „uppreisninni“ til aðflutningsleiðir og aðdrættina, ekki síst vopnasendingar, en Sádar og Persaflóaríkin sjá mest um fjár­ mögnunina. Að baki stendur Vestrið, enda Sádar og Tyrkir (auk Ísraels) mikilvægustu bandamenn Vestur­ blokkarinnar í Miðausturlöndum. d) „Alþjóðlega bandalagið gegn ISIS“ hóf lofthernað yfir Sýrlandi (og Írak) í desember 2014, gegn vilja sýrlenskra stjórnvalda og þ.a.l. gegn alþjóðalögum. Aðilar bandalagsins eru Bandaríkin og Evrópustórveldin, ásamt helstu stuðningsríkjum ISIS, Tyrklandi og Persaflóaríkjum. Skal því ekki undra að þetta „stríð“ hafði þveröfug áhrif í því að veikja ISIS. Ekki fyrr en Rússar mættu á svæðið til aðstoðar við sýrlenska herinn tók ISIS að láta undan síga. Viðbrögð Vestursins núna við sókn Sýrlands­ hers eru endurskipulagning: Styðja við sveitir Al Kaída/Al Nusra (sem reynt er að skíra „hófsama“) og einn­ ig sveitir Kúrda á ákveðnum svæðum jafnframt því að senda inn eigin sérsveitir, bandarískar, franskar, breskar og þýskar. Öll áhersla er lögð á að hindra að Sýrlandsher skeri á aðflutningsleiðir „uppreisnarinn­ ar“ frá Tyrklandi, einkum að hann nái aftur borginni Aleppo, sem gæti ráðið úrslitum í stríðinu. Stríðs­ markmið Vestursins eru þau sömu, hafa þó hliðrast frá „valdaskiptum“ í Dam askus yfir í sundurlimun Sýr­ lands í a.m.k. þrennt eftir þjóðernis­ og trúarlínum, líkt og Írak. s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 25F i M M T u D A G u R 2 3 . j ú n í 2 0 1 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.