Fréttablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 32
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Fa cebook
Buxur frá ROBELL
7.900 kr.-
Str. 36-52
Litir: blátt, svart,
brúnt, grátt og hvítt
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
Flott sumarföt fyrir flottar konur
Björn segist spá mikið í föt og er kominn á samning hjá Eskimo Models.
Hvernig myndirðu lýsa eigin stíl?
„Basic street style“, myndi ég
segja.
Uppáhaldsflíkin? Græni bomber-
jakkinn minn er í uppáhaldi akk-
úrat núna. Vegna þess að hann
er klassískur og passar við flest
allt. Ég spái mikið í föt.
Hvar kaupirðu fötin? Uppáhalds-
búðin mín er Zara því þar finn ég
oftast eitthvað flott en svo versla
ég líka mikið á netinu.
Tískufyrirmynd? Ég fylgist mikið
með tísku á samfélagsmiðlum
eins og Instagram og þar er
örugglega uppáhalds Daniel Fox
(Ig: magic_fox).
Hvenær hófst fyrirsætuferillinn?
Rétt fyrir áramót var haft sam-
band við mig frá Eskimo og mér
var boðið að koma í „casting“
og sirka mánuði seinna fékk ég
samning. Ég hef ekki fengið nein
stór verkefni eins og er en ég
hlakka til að fá eitthvað skemmti-
legt að gera. Ég hef verið í mynd-
böndum hjá Dansstúdíó World
Class og hef æft dans þar í sirka
10 ár. Ég er reyndar að vinna í
einu skemmtilegu verkefni núna,
en ég má ekki segja frá því strax,
því miður.
Hvað ertu að læra? Ég er á hug-
vísindabraut í Kvennaskólanum.
Hvar ertu að vinna? Ég vinn
í afgreiðslunni í World Class
Laugum.
Hvernig verður sumarið? Ég ætla
bara að vinna eins og ég get og
gera eitthvað skemmtilegt með
vinum mínum.
Græni bomberinn
í UppáHaldi
Björn Boði Björnsson er sautján ára fyrirsæta hjá Eskimo. Hann spáir
mikið í föt og verslar mikið á netinu þegar hann bætir í fataskápinn. Í
sumar ætlar hann að vinna eins og hestur og skemmta sér með vinum.
2 3 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R2 F ó l k ∙ k y n n I n G A R b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G A R b l A ð ∙ T í s k A