Fréttablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 48
Innilegar þakkir fyrir auðsýndan hlýhug og vinsemd við andlát og útför Kristjönu Jónatansdóttur frá Nípá. Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á Hvammi Húsavík fyrir einstaka hlýju og góða umönnun. Friðbjörn Jónatansson og aðstandendur. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför hjartkærs eiginmanns míns, föður, afa og langafa, Sigurðar Jóelssonar kennara, Fögrubrekku 38, Kópavogi, sem lést 20. maí á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi. Sérstakar þakkir fær Karlakórinn Fóstbræður, stjórnandi hans Árni Harðarson og Þorgeir Andrésson einsöngvari fyrir yndislegan söng, sem gerði útförina einstaka. Guð blessi ykkur öll. Jóna Sveinsdóttir Edda Björk Sigurðardóttir Arndís Jóna Vigfúsdóttir Hafþór Már Hjartarson Steina Dögg Vigfúsdóttir Steinn Anton Kastbjerg Sigurður Jóel Vigfússon Halla Björk Vigfúsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Anna Lísa Einarsdóttir Sandholt lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði 13. júní síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Jóhanna Bertha Sandholt Hallur Kristjánsson Hjörtur Sandholt Árdís Jónasdóttir Kolbrún Jónsdóttir Sandholt Sigurður Axelsson Jón Arnar Sandholt Linda María Friðriksdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Guðrún Jónasdóttir (Dúna) Trönuhjalla 13, Kópavogi, sem lést 18. júní verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 30. júní kl. 15. Steinar Júlíusson Jónas Þór Steinarsson Þórey Morthens Ragna Steinarsdóttir Þorsteinn G. Þórhallsson Júlíus Steinarsson Sigrún Guðmundsdóttir Eyvindur Steinarsson Gunnar Kristinn Steinarsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar og amma, Aðalbjörg Gunnlaugsdóttir lést á Landspítalanum í Fossvogi 16. júní sl. Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sólveig Róbertsdóttir Unnur Óskarsdóttir Þrúður Óskarsdóttir Snædís Lilja Ingadóttir, Aðalbjörn Unnar Jóhannsson, Andrea Eir Almqvist og Daniel Hugo Almqvist Innilegar þakkir þeim sem sýndu okkur hlýhug og alúð við andlát og útför elskulega föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og bróður, Guðvarðar Elíassonar Strikinu 3, Hjúkrunarheimilinu Ísafold. Þökkum starfsfólki Sólvangsvegi 1, heimahjúkrunar Hafnarfjarðar og starfsfólki Ísafoldar fyrir alúð og hlýju við umönnun í veikindum hans. Einnig fá Kiwanis-félagar í Eldborg þakkir. Hulda Guðvarðardóttir Björn Guðmundsson Elías Guðvarðarson Eva Bracola Ívar Már Arnbjörnsson Camilla Andersson Elva Elíasdóttir Hulda Fríða Björnsdóttir Jóhannes H. Hauksson Sigrún Elíasdóttir Hanna Elíasdóttir Ingvar Sveinsson langafabörn og aðrir aðstandendur. Knattspyrnufélagið Mjöðmin spilar í Gulldeildinni og er „íþróttastolt 101 Reykja-víkur“. Í liðinu hefur gegnum tíðina spilað rjóminn af lista- og menn- ingarliði miðbæjarins. Í kvöld heldur liðið upp á viðburðinn Bjúddarann á skemmtistaðnum Húrra í Naustunum, en það er ákaflega viðeigandi samastað- ur fyrir skemmtun skipulagða af þessu „hipstera“-liði enda þeirra helsta afdrep í miðbænum. Á Bjúddarann er sjálfsögðu opið fyrir almenning enda eru ansi margir liðsmenn Mjaðmarinnar starfandi skemmtikraftar og því tilvalið að sam- eina liðsskemmtunina og eitt allsherjar dansiball. Meðal þeirra listamanna sem spila eða hafa spilað með liðinu á einhverjum tímapunkti má nefna sem dæmi DJ Margeir, Arnór Dan úr Agent Fresco og Sturlu Atlas. Búningur liðsins var hannaður af engum öðrum en Guð- mundi Jörundssyni. „Bjúddarinn er í rauninni uppskeru- hátíð Mjaðmarinnar. Þar er sýnt brot af því besta úr því starfi sem hefur átt sér stað hjá leikmönnunum fyrir utan við stórkostlegan árangur liðsins. Við unnum náttúrulega B-deildina í Gull- deildinni, það náttúrulega vita það allir. Við erum að sýna hina hliðina líka. Þetta er allsherjar tónlistar- og listahá- tíð. Þetta er í grunninn styrktarhátíð fyrir félagsgjöldum og þátttökugjöldum í knattspyrnudeildum víðsvegar um heiminn. Ég er búinn að spila þrjú tíma- bil með Mjöðminni. Mjöðmin hefur gegnum árin verið svona tónlistar- og listatengt fótboltalið. Mikið grasrótar- indí-dót sem hefur komið upp úr þessu fótboltaliði,“ segir Jóhann Kristófer Stefánsson. leikmaður Mjaðmarinnar og einn af 101 Boys, hljómsveitinni hans Sturlu Atlas sem mun troða upp á Bjúddaranum. Ásamt Sturlu Atlas munu koma fram Högni Egilsson, best þekktur sem Högni í Hjaltalín, Gunnar Ragnarsson sem hefur gert garðinn frægan í hljómsveitinni Grísalappalísu – en hann er sagður til alls lík- legur – Hilmar Guðjónsson leikari mun kynna herlegheitin og síðan verður DJ Margeir á svæðinu til að þeyta skífum í hvert sinn sem þess þarf, en þó er líklegt að aðrir liðs- menn Mjaðmarinnar verði tilbúnir til að stökkva á spilarana. Verðið mun vera 1.500 krónur við dyr og allur ágóðinn rennur eins og áður segir í starf liðsins sem, að minnsta kosti að sögn Jóhanns, fer fram um allan heim. stefanthor@frettabladid.is Stolt 101 Reykjavíkur heldur uppskeruhátíð Uppskeruveisla knattspyrnufélagsins Mjaðmarinnar, Bjúddarinn, verður haldin í kvöld á skemmtistaðnum Húrra. Þar munu koma fram hinir ýmsu listamenn úr miðbænum. Jóhann Kristófer Stefánsson hefur spilað með Mjöðminni í heil þrjú tímabil og hann mun ásamt Sturlu Atlas og hinum meðlimum 101 Boys troða upp á Bjúddaranum í kvöld. FréttABlAðið/HAnnA 168 f.Kr. Rómverjar sigra Makedóníumenn í orrustunni við Pydna. 1372 Englendingar bíða ósigur fyrir sameinuðum flota Frakka og Kastilíumanna í orrustunni við La Rochelle. 1636 Herstjóraveldið í Japan bannar allar ferðir Japana til og frá landinu. Bannið gildir til ársins 1853. 1939 Hitamet er sett á Teigarhorni í Berufirði: Mesti mældur hiti á Íslandi frá upphafi mælinga, 30,5°C. 1941 Þýskaland hefur innrás í Sovétríkin. 1977 Hópferðabíll veltur í Biskupstungum og liggur við stórslysi. Í bílnum eru 46 farþegar af skemmtiferðaskipi og meiðast margir þeirra en enginn alvarlega. 1991 Á Snæfellsjökli falla hjón niður í alldjúpa sprungu en er bjargað. Merkisatburðir Mjöðmin hefur gegnum árin verið svona tónlistar- og listatengt fótbolta- lið. Mikið grasrótar-indí-dót sem hefur komið upp úr þessu fótboltaliði. 2 3 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R36 T í M A M ó T ∙ F R É T T A B L A ð I ð tíMaMót
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.