Fréttablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 52
Mig er búið að dreyma um það lengi að mynda alla Jökuldælinga og gera sýningu úr því. Í huganum var það kannski minna mál en það var í raun. Samt voru langflestir til í það,“ segir Ragnhildur Aðalsteinsdóttir, blaðamaður og ljósmyndari, sem hefur sett upp ljósmyndasýninguna Bændur á Jökuldal í ferðaþjónustu- stöðinni Á hreindýraslóðum, sem er veitingastaður, gisting og gallerí að Skjöldólfsstöðum á Jökuldal. „Ég byrjaði fyrir ári, í sauðburði, þá var ég í viku, tók síðan tvo mánuði í verkefnið í fyrrasumar, fór í réttir í fyrrahaust og var svo í eina viku núna í vetur. Ég er með rúmlega sex- tíu myndir á sýningunni, þær eru frá öllum bæjum og af flestum einstak- lingum sveitarinnar, bæði börnum og fullorðnum.“ Ragnhildur kveðst líka hafa myndað þá sem eru hættir búskap, nefnir Ragnar og Birnu á Hákonar- stöðum sem dæmi. „Sumir Jökul- dælingar eru að vinna á Egilsstöðum með búskapnum, aðrir eru fluttir þangað vegna aldurs og ég er ekki að búa neitt til, þetta eru allt sannar sögur. Sumar myndirnar eru úr fjár- húsum og hesthúsum en ég tók líka myndir inni í kaffi og af konum að prjóna. Reyndi að hafa efnið sem fjölbreyttast,“ segir hún og tekur fram að myndirnar séu prentaðar hjá Héraðsprenti á Egilsstöðum. Ragnhildur ólst upp á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal, þar býr nú bróður- sonur hennar, Aðalsteinn Sigurðs- son. „Ég er Jökuldælingur því Hrafn- kelsdalur gengur inn úr Jökuldal og telst til sömu sveitar,“ segir hún og kveðst hafa haft áhuga á ljósmyndun frá því hún var tíu ára og fékk fyrstu myndavélina. Sérstaklega aðhyllist hún heim- ildaljósmyndun og hana hafi hún meðal annars lært úti í Kanada. Ragnhildur er nú blaðamaður á Vikunni og ljósmyndari í lausa- mennsku og var með tvær myndir úr Jökuldælaseríunni á sýningu Blaða- mannafélagsins í Gerðarsafni í vor. Leikskólinn Hulduberg í Mosfellsbæ auglýsir lausar stöður Hulduberg er sex deilda leikskóli. Þar eru um 140 börn á aldrinum 2-5 ára og eru aldursblöndun á öllum deildum. Áherslur í starfi leikskólans er umhverfismennt og að njóta og nýta náttúruleg gæði. Leikskólinn Hulduberg er staðsettur við Lágafellsskóla og íþróttamiðstöðina Lágafell. Auglýst eru laus eftrfarandi störf: • Staða leikskólakennara í deildarstjórn. Hæfnikröfur: - Leikskólakennaramenntun - Góð hæfni í mannlegum samskiptum - Jákvæðni og metnaður - Lausnamiðuð hugsun og færni til að koma hugmyndum í framkvæmd • Staða matráðs (75% - 100% starf ) Hæfnikröfur: - Þekking á gerð matseðla og samsetningu fæðis fyrir börn frá 18 mánaða aldri til 6 ára samkvæmt viðmiðum Manneldisráðs. - Frumkvæðni og skipulagshæfni við innkaup og vörustjórnun. - Færni sem nýtist í starfi og reynsla af störfum í mötuneyti Laun eru greidd í samræmi við kjarasamning Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga. Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2014. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og/eða fyrri störf skulu berast á netfangið hulduberg@mos.is. Upplýsingar um leikskólann má finna á heimasíðu skólans www.hulduberg.is. Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri Þuríður Stefáns- dóttir og aðstoðarleikskólastjóri Guðrún Viktorsdóttir síma 5868170 og 8670727. Fólk af báðum kynjum er hvatt til að sækja um störfin. Leikskólinn Hulduberg í Mosfellsbæ auglýsir lausar stöður Hulduberg er sex deilda leikskóli. Þar eru um 140 börn á aldrinum 2-5 ára og eru aldursblöndun á öllum deildum. Áherslur í starfi leikskólans er umhverfismennt og að njóta og nýta náttúruleg gæði. Leikskólinn Hulduberg er staðsettur við Lágafellsskóla og íþróttamiðstöðina Lágafell. Auglýst eru laus eftrfarandi störf: • Staða leikskólakennara í deildarstjórn. Hæfnikröfur: - Leikskólakennaramenntun - Góð hæfni í mannlegum samskiptum - Jákvæðni og metnaður - Lausnamiðuð hugsun og færni til að koma hugmyndum í framkvæmd • Staða matráðs (75% - 100% starf ) Hæfnikröfur: - Þekking á gerð matseðla og samsetningu fæðis fyrir börn frá 18 mánaða aldri til 6 ára samkvæmt viðmiðum Manneldisráðs. - Frumkvæðni og skipulagshæfni við innkaup og vörustjórnun. - Færni sem nýtist í starfi og reynsla af störfum í mötuneyti Laun eru greidd í samræmi við kjarasamning Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga. Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2014. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og/eða fyrri störf skulu berast á netfangið hulduberg@mos.is. Upplýsingar um leikskólann má finna á heimasíðu skólans www.hulduberg.is. Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri Þuríður Stefáns- dóttir og aðstoðarleikskólastjóri Guðrún Viktorsdóttir síma 5868170 og 8670727. Fólk af báðum kynjum er hvatt til að sækja um störfin. Tilkynning frá Yfir jörstjórn Mo fellsbæjar Kjörstaður vegna forsetakjörs sem fram fer þann 25. júní 2016 er í Lágafellsskóla við Lækjarhlíð og stendur kjörfundur kl. 9 - 22. Kjósendur eru minntir á að koma með persónuskilríki á kjörstað. Aðset r yfirkjörstjórnar á kjördag v rður á sama stað, sími 525-9200. Mosfellsbæ 20. júní 2016. Yfi kjörstjórn Mosfellsbæjar Þ rbjörg I. Jónsdóttir formaður Haraldur Sigurðsson Valur Oddsson Sannar sögur á sýningu um Jökuldælinga Lífsreynsla, umhyggja, íhygli og rósemd birtast í andlitum Jökuldælinga sem Ragnhildur Aðalsteinsdóttir hefur myndað. Sýning hennar, Bændur á Jökuldal, er á Skjöldólfsstöðum. 1. Lilja Óladóttir, Guðný Halla Sóllilja og Hallur Gunnarsson spjalla við heimalningana í Sænautaseli. 2. Páll Pálsson er sjálfmennt- aður fræðimaður sem unir sér hvergi betur en á æskuheimilinu Aðalbóli. 3. Linda Björg Kjartansdóttir í Teigaseli og maður hennar, Jón Björgvin Vernharðsson, ásamt dætrum sínum tveimur, Heiðdísi Jöklu og Snærúnu Hrefnu. 4. Feðgarnir Jón Helgason á Refshöfða og Helgi Hrafn Jónsson í vélaskemm- unni. MyndiR/RAGnHiLduR „Ég dvaldi hjá gömlum sveitungum og fangaði augnablikin í daglegu lífi þeirra,“ segir Ragnhildur. FRÉTTABLAðið/ViLHeLM 1 2 3 4 Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 2 3 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R40 M e n n I n G ∙ F R É T T A B L A ð I ð menning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.