Fréttablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 44
EM2016 http://www.seeklogo.net Tómas Þór Þórðarson tomas@365.is Ármúli 15 - Simi: 515 0500 - www.fasteignakaup.is verð 9,9 millj. Ögn – fallegt sumarhús við Breiðafjörðinn Við Krossá, Skarðströnd í Dölum Gulli Long verður með heitt á könnunni, laugardaginn 25. júní Uppl. og bókun á skoðun í síma 690-1586 Erna Valsdóttir lögg. fasteignasali s. 892-4717 2 3 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R32 s p o R T ∙ F R É T T A B L A ð I ð sport FóTBoLTI „Ég mun muna eftir þess- ari stundu þangað til ég dey,“ sagði Aron Einar Gunnarsson, lands- liðsfyrirliði Íslands í fótbolta, um fögnuðinn með 10.000 stuðnings- mönnum Íslands eftir sigurinn á Austurríki, 2-1, á Stade de France í gærkvöldi. Stund í sögu þjóðar sem mun svo sannarlega aldrei gleymast. Sigurinn kom Íslandi í 16 liða úrslit Sigurlaunin sæt á Stade de France í gær Íslenska landsliðið í fótbolta komst í 16 liða úrslit á Evrópumótinu í gær þegar strákarnir okkar unnu Austurríki, 2-1, á Stade de France. Eftir erfiðan leik voru það varamennirnir sem innsigluðu sigurinn í stærsta leik liðsins frá upphafi. Loksins mætir Ísland Englandi. Kári Árnason, besti leikmaður Íslands í sigrinum á Austurríki á Stade de France í gær, fagnar hér eftir leik með því að veifa íslenska fánanum fyrir framan tíu þúsund syngjandi Íslendinga. FréttAblAðið/Vilhelm EM í frumraun liðsins á stórmóti. Eftir að komast yfir með marki Jóns Daða Böðvarssonar á 18. mín- útu fékk íslenska liðið á sig jöfn- unarmark í seinni hálfleik þegar það, einu sinni sem oftar á mótinu, bakkaði of aftarlega og bauð hætt- unni heim. Eins og alltaf varðist íslenska liðið vel og Hannes var meira og minna frábær í markinu fyrir utan ein sprellitilþrif sem kostuðu næstum mark. En í gær var stundin okkar, stund strákanna, stund íslensku þjóðarinnar. Þegar Arnór Ingvi Traustason skoraði sigurmarkið í uppbótartíma eftir sendingu frá Theodór Elmari Bjarnasyni ætlaði allt um koll að keyra hjá íslensku stuðningsmönn- unum. Fullorðið fólk bókstaflega grét í stúkunni og ekki hættu tárin að flæða þegar pólski dómarinn flautaði til leiksloka. Litla Ísland komið áfram og það með sigri þegar jafntefli var nóg. Strákarnir unnu fyrir þessu, sköpuðu sér sína eigin heppni og skrifuðu enn og aftur nýjan kafla í íslenska fótboltasögu. Skipta um þjóðhátíðardag „Strákarnir börðust fyrir sigurmark- inu. Við vorum heppnir á köflum en sýndum frábært hugarfar út leik- inn. Það voru margir þreyttir í lokin enda höfum við spilað nánast á sama liðinu í keppninni. En, eins og við höfum alltaf sagt, við erum stoltir af leikmönnunum okkar,“ sagði Heimir Hallgrímsson, annar landsliðsþjálfara Íslands, eftir leikinn. Heimir og Lars gerðu enga breyt- ingu á liðinu sem var búið að koma Íslandi í þessa stöðu. Þetta sama lið byrjaði leikinn aftur á móti mun betur en síðustu leiki og greinilegt að menn voru orðnir langþreyttir á að gera ekkert nema verjast. Jóhann Berg Guðmundsson var hársbreidd frá því að skora eitt af mörkum mótsins eftir nokkrar sekúndur. Saga íslenska liðsins er einstök og ekki að ástæðulausu að kastljós heimsins er á strákunum okkar. Sagan er stór og litlu sögurnar í stóru bókinni svo magnaðar. Fyrra markið í gær skoraði Jón Daði Böðv- arsson. Selfyssingurinn sem átti ekki fyrir æfingagjöldum þegar hann var lítill og féll með Selfossi fyrir aðeins fjórum árum úr Pepsi-deildinni skoraði fyrir Ísland í stærsta leik liðsins frá upphafi á Stade de France. Einstakur strákur í einstöku liði. Fyrir utan það var Jón, ásamt Kára Árnasyni, besti maður vallarins. „Ég held að þýðing þessa sigurs fyrir íslensku þjóðina sé örugg- lega að nú sé vilji til þess að breyta þjóðhátíðardeginum úr 17. júní í 22. júní,“ sagði Heimir Hallgrímsson eftir leikinn. england, Nice „Þegar við skoruðum sigurmarkið fór ég bara í eitthvað „zone“. Ég man ekki neitt. Svo eftir leikinn fer maður og fagnar með fólkinu og sér þar í stúkunni litla frænda sinn, besta vin, mömmu og bróður. Þetta er nákvæmlega það sem maður vill,“ sagði Aron Einar við blaða- menn eftir leik en fyrirliðinn, sem er að spila meiddur og fórna sér fyrir liðið, var enn í geðshræringu þegar hann reyndi að útskýra líðan sína. Ekki nóg með að Ísland hafi komist áfram heldur eru sigurlaunin eins sæt og þau verða. Í fyrsta sinn í sögunni mætir Ísland stórliði Eng- lands með allar sínar stjörnur úr ensku úrvalsdeildinni. Í hvert sinn sem dregið er til undankeppni HM eða EM vonast íslenska þjóðin eftir að að mæta Englandi. Fyrst biðin er búin að vera svona löng var um að gera að gera þetta með stæl og mæta Englandi bara á stórmóti. Sérstaklega gaman „Það horfa allir Íslendingar á ensku úrvalsdeildina. Það er okkar deild og það þekkja allir þessa leikmenn sem við erum að fara að spila við. Það verður sérstaklega gaman að mæta Englandi á stórmóti því ég hef aldrei spilað á móti Englandi,“ sagði Aron Einar Gunnarsson. Ég man ekki neitt. svo eftir leikinn fer maður og fagnar með fólkinu og sér þar í stúkunni litla frænda sinn, besta vin, mömmu og bróður. Þetta er nákvæmlega það sem maður vill. Aron Einar Gunn- arsson, fyrirliði íslenska landsliðsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.