Fréttablaðið - 23.06.2016, Side 44
EM2016
http://www.seeklogo.net
Tómas Þór Þórðarson
tomas@365.is
Ármúli 15 - Simi: 515 0500 - www.fasteignakaup.is
verð 9,9 millj.
Ögn – fallegt sumarhús
við Breiðafjörðinn
Við Krossá, Skarðströnd í Dölum
Gulli Long verður með heitt á könnunni,
laugardaginn 25. júní
Uppl. og bókun á skoðun í síma 690-1586
Erna Valsdóttir
lögg. fasteignasali
s. 892-4717
2 3 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R32 s p o R T ∙ F R É T T A B L A ð I ð
sport
FóTBoLTI „Ég mun muna eftir þess-
ari stundu þangað til ég dey,“ sagði
Aron Einar Gunnarsson, lands-
liðsfyrirliði Íslands í fótbolta, um
fögnuðinn með 10.000 stuðnings-
mönnum Íslands eftir sigurinn á
Austurríki, 2-1, á Stade de France í
gærkvöldi. Stund í sögu þjóðar sem
mun svo sannarlega aldrei gleymast.
Sigurinn kom Íslandi í 16 liða úrslit
Sigurlaunin sæt á Stade de France í gær
Íslenska landsliðið í fótbolta komst í 16 liða úrslit á Evrópumótinu í gær þegar strákarnir okkar unnu Austurríki, 2-1, á Stade de France.
Eftir erfiðan leik voru það varamennirnir sem innsigluðu sigurinn í stærsta leik liðsins frá upphafi. Loksins mætir Ísland Englandi.
Kári Árnason, besti leikmaður Íslands í sigrinum á Austurríki á Stade de France í gær, fagnar hér eftir leik með því að veifa íslenska fánanum fyrir framan tíu þúsund syngjandi Íslendinga. FréttAblAðið/Vilhelm
EM í frumraun liðsins á stórmóti.
Eftir að komast yfir með marki
Jóns Daða Böðvarssonar á 18. mín-
útu fékk íslenska liðið á sig jöfn-
unarmark í seinni hálfleik þegar
það, einu sinni sem oftar á mótinu,
bakkaði of aftarlega og bauð hætt-
unni heim. Eins og alltaf varðist
íslenska liðið vel og Hannes var
meira og minna frábær í markinu
fyrir utan ein sprellitilþrif sem
kostuðu næstum mark. En í gær var
stundin okkar, stund strákanna,
stund íslensku þjóðarinnar.
Þegar Arnór Ingvi Traustason
skoraði sigurmarkið í uppbótartíma
eftir sendingu frá Theodór Elmari
Bjarnasyni ætlaði allt um koll að
keyra hjá íslensku stuðningsmönn-
unum. Fullorðið fólk bókstaflega
grét í stúkunni og ekki hættu tárin
að flæða þegar pólski dómarinn
flautaði til leiksloka. Litla Ísland
komið áfram og það með sigri þegar
jafntefli var nóg. Strákarnir unnu
fyrir þessu, sköpuðu sér sína eigin
heppni og skrifuðu enn og aftur
nýjan kafla í íslenska fótboltasögu.
Skipta um þjóðhátíðardag
„Strákarnir börðust fyrir sigurmark-
inu. Við vorum heppnir á köflum
en sýndum frábært hugarfar út leik-
inn. Það voru margir þreyttir í lokin
enda höfum við spilað nánast á sama
liðinu í keppninni. En, eins og við
höfum alltaf sagt, við erum stoltir af
leikmönnunum okkar,“ sagði Heimir
Hallgrímsson, annar landsliðsþjálfara
Íslands, eftir leikinn.
Heimir og Lars gerðu enga breyt-
ingu á liðinu sem var búið að koma
Íslandi í þessa stöðu. Þetta sama lið
byrjaði leikinn aftur á móti mun
betur en síðustu leiki og greinilegt
að menn voru orðnir langþreyttir á
að gera ekkert nema verjast. Jóhann
Berg Guðmundsson var hársbreidd
frá því að skora eitt af mörkum
mótsins eftir nokkrar sekúndur.
Saga íslenska liðsins er einstök
og ekki að ástæðulausu að kastljós
heimsins er á strákunum okkar.
Sagan er stór og litlu sögurnar í
stóru bókinni svo magnaðar. Fyrra
markið í gær skoraði Jón Daði Böðv-
arsson. Selfyssingurinn sem átti ekki
fyrir æfingagjöldum þegar hann var
lítill og féll með Selfossi fyrir aðeins
fjórum árum úr Pepsi-deildinni
skoraði fyrir Ísland í stærsta leik
liðsins frá upphafi á Stade de France.
Einstakur strákur í einstöku liði.
Fyrir utan það var Jón, ásamt Kára
Árnasyni, besti maður vallarins.
„Ég held að þýðing þessa sigurs
fyrir íslensku þjóðina sé örugg-
lega að nú sé vilji til þess að breyta
þjóðhátíðardeginum úr 17. júní í 22.
júní,“ sagði Heimir Hallgrímsson
eftir leikinn.
england, Nice
„Þegar við skoruðum sigurmarkið
fór ég bara í eitthvað „zone“. Ég
man ekki neitt. Svo eftir leikinn fer
maður og fagnar með fólkinu og
sér þar í stúkunni litla frænda sinn,
besta vin, mömmu og bróður. Þetta
er nákvæmlega það sem maður
vill,“ sagði Aron Einar við blaða-
menn eftir leik en fyrirliðinn, sem
er að spila meiddur og fórna sér fyrir
liðið, var enn í geðshræringu þegar
hann reyndi að útskýra líðan sína.
Ekki nóg með að Ísland hafi
komist áfram heldur eru sigurlaunin
eins sæt og þau verða. Í fyrsta sinn í
sögunni mætir Ísland stórliði Eng-
lands með allar sínar stjörnur úr
ensku úrvalsdeildinni. Í hvert sinn
sem dregið er til undankeppni HM
eða EM vonast íslenska þjóðin eftir
að að mæta Englandi. Fyrst biðin er
búin að vera svona löng var um að
gera að gera þetta með stæl og mæta
Englandi bara á stórmóti.
Sérstaklega gaman
„Það horfa allir Íslendingar á ensku
úrvalsdeildina. Það er okkar deild
og það þekkja allir þessa leikmenn
sem við erum að fara að spila við.
Það verður sérstaklega gaman að
mæta Englandi á stórmóti því ég hef
aldrei spilað á móti Englandi,“ sagði
Aron Einar Gunnarsson.
Ég man ekki neitt.
svo eftir leikinn fer
maður og fagnar með
fólkinu og sér þar í stúkunni
litla frænda sinn, besta vin,
mömmu og
bróður. Þetta er
nákvæmlega
það sem
maður vill.
Aron Einar Gunn-
arsson, fyrirliði íslenska
landsliðsins